Stígandi - 01.10.1946, Qupperneq 73
eiginlegar samfara margs konar geislum, sem streyma frá lifandi
verum og oft liafa verið nefndir blik, „aura“ eða ljósvakabaugur.
Þessi tegund af skyggni mun þróast allört, og henni fylgja ýmsir
augnasjúkdómar, unz nýjar kynslóðir koma til sögunnar, sem
liafa tileinkað sér gáfuna, en eru lausar við sjúkdómana. Það má
því búast við tímabilþ sem gerir allmiklar kröfur til augnlækna
og sérfræðinga í augnasjúkdómum; af þeim verður krafizt sérlega
mikillar nákvæmni og tækni í þeim sérgreinum, er fjalla um
geislanir og sveiflur.
Loks hætta menn að neyta fæðu í jafnstórum stíl og nú á sér
stað. Menn líta á mikla matmenn með megnasta viðbjóði. Það er
nú þegar farið að votta fyrir stefnubreytingu í þessa átt. Blöðin
eru full af auglýsingum, sem bjóða upp á létta rétti. Salat, fjör-
efni og hitaeiningar eru nöfn, sem allir kannast við, og menn og
konur, sem korna við söguna á síðustu tímum eins og einvaldar
og kvikmyndastjörnur, 'hafa sínar kreddur og kenningar á þessum
sviðum, svo að lítið ímyndunarafl þar.f til að sjá, hvert straumur
tímans stefnir.
Frá grófri og þungri fæðu nútímans mun mannkynið snúa sér
að og aðhyllast ihið gagnstæða. Það mun ganga svo langt í þessum
sökurn, að segja má, að það gangi með matar„dellu“. Þá eta menn
samkvæmt því, er stjörnuspekingar fyrirskrifa, eða eftir því... sem
nýjustu kenningar sveiiflufræðanna, geislananna, tunglkomanna
eða annarra fræða fyrirskipa. Með öðrum orðum: Eftir því sem
hverjum og einum kemur í hug í það og það skiptið. En upp af
öllu þessu spettur svo vísdómur reynslunnar, og þá læra menn
að neyta matar síns samkvæmt því áformi, er þeir setja sér og
hæfir bezt lífsvenjum þeirra. Seinni tíma vísindi munu vísa þeim
leiðina til fulls skilnings á þessum málum. Fæða framtíðarinnar
verður létt og ljúfleng og að mestu ósoðin, en hlaðin af sólskini.
Þá rætast máske draumar jurtaætunnar að fullu, en á margvís-
legri hátt og fjölskrúðugri en hana dreymdi um, áður en menn
komust í kynni við geislanirnar. Málmblönduseyði verða mikið
notuð. Fullkomin einangrun og innöndun steinefna geimgeisl-
anna mun verða talin hávísindaleg aðferð, en samfara henni kem-
ur :hin nýja stjörnuspeki og beinir mannkyninu inn á nýjar
brautir, sem vísa fram á leið til þeirrar tækni, sem í eyrum vesælla
nútíðarmanna myndi hljóma sem eitt hið fegursta ævintýri.
Friðgeir H. Berg þýddi.
STÍGANDI 311