Fréttablaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 8
11. maí 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
ÁLFTANES Tónlistarskólinn verður sam-
einaður skólanum í Garðabæ.
SKÓLAR Kennarar og foreldrar
nemenda við Tónlistarskóla Álfta-
ness segja skólann ekki mega
breytast úr sjálfstæðri og öflugri
skólastofnun í afskekkt útibú.
„Fyrir sameiningu Garðabæjar
og Álftaness var því heitið að
engar breytingar yrðu gerðar á
skólahaldi í nýju sveitarfélagi.
Bæjarstjórn verður að standa við
þau loforð,“ segir hópurinn í bréfi
til bæjaryfirvalda.
Bæjarráðið segir að ávallt
hafi verið rætt um hagræðingu
við stjórnunarlega sameiningu
tónlistarskóla beggja sveitar-
félaganna. Stjórn Tónlistarskóla
Garðabæjar eigi að semja reglu-
gerð fyrir sameinaðan skóla sem
byrji í haust. - gar
Áhyggjur á Álftanesi:
Tónlistarskóli
verði ekki útibú
MIÐ-AFRÍKULÝÐVELDIÐ, AP Veiði-
þjófar drápu að minnsta kosti
26 fíla í Dzanga Bai-þjóðgarðin-
um í Mið-Afríkulýðveldinu fyrir
skemmstu. Fílastofninn hefur
minnkað mikið á undanförnum
árum vegna veiðiþjófnaðar.
Sautján vopnaðir menn úr upp-
reisnarhreyfingunni Seleka komu
inn í Dzanga Bai fyrr í vikunni og
eru taldir hafa drepið dýrin. Íbúar
á svæðinu hafa svo tekið kjöt af
hræjunum. Uppreisnarhreyfingin
steypti forseta landsins af stóli í
mars. - þeb
Fílum fækkar hratt:
Veiðiþjófar
drápu 26 fíla
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
GÓÐAR GRÆJUR
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Vestmannaeyjum
1400W, 360 lítr./klst.
Þolir 50°C heitt vatn
5 metra barki, sápubox
Black&Decker
háþrýstidæla max bar 110
14.990,- 1700W, 370 lítr./klst.
Þolir 50°C heitt vatn
5,5 metra barki, sápubox
Black&Decker
háþrýstidæla max bar 130
28.990,-
2100W, 420 lítr./klst.
Þolir 50°C heitt vatn,
8 metra málmbarki,
sápubox,
með bursta
Black&Decker
háþrýstidæla max bar 150
51.990,-
Arges HKV-100GS30
1000W, 30 lítrar
27.900,-
Save the Children á Íslandi
MÖLVAÐ STRÆTÓSKÝLI BMW-bifreið fór út af Suðurlandsbraut síðdegis í gær og klessti á strætóskýli við götuna. Talið er
að bifreiðin hafi verið á miklum hraða því strætóskýlið splundraðist og bifreiðin stöðvaðist ekki fyrr en langt utan vegar. Þá
lenti bifreiðin á tveimur trjám; annað rifnaði upp með rótum og hitt brotnaði. Ökumaðurinn var fl uttur á slysadeild og bifreiðin
skemmdist nokkuð. Mildi þykir að ekki hafi farið verr, en börn voru í skýlinu skömmu áður en óhappið varð. Loka þurft i hluta
Suðurlandsvegar um tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Mildi að ekki fór verr