Fréttablaðið - 11.05.2013, Síða 26
11. maí 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26
Fer með aðalhlutverkið í Jesus
Christ Superstar í sameiginlegri
uppfærslu MA og VMA.
NOKKRIR BAUTASTEINAR Á ÆVI EYÞÓRS INGA
Eitt af sérkennum Eyþórs er hið síða,
ljósa hár sem hann hefur skartað síðan
hann var sextán ára. Móðir hans segir
það hafa farið í taugarnar á henni í
fyrstu og hún hafi suðað í honum að
fara í klippingu. „En núna gæti ég ekki
hugsað mér að hafa hann öðruvísi.“
Hárið er Eyþóri svo til heilagt, eftir sigur-
inn í undankeppninni tók hann það fram
að hann væri reiðubúinn til að gera hvað
sem áður en hann færi utan til Malmö
nema að fara í klippingu.
„Það kemur ekki til greina að láta
skerða hárið,“ segir Guðbjörg. „En hann
segist ekki ætla að verða síðhært gamal-
menni. Hann á því eftir að fara í klippingu
einhvern daginn en ekki á næstunni.“
VERÐUR EKKI SÍÐ-
HÆRT GAMALMENNI
2004 2007 2008 2010 2011 2011-2012 2013
Tekur þátt í upp-
færslu Leikfélags
Akureyrar á Ólíver.
Sigrar
í Bandinu
hans
Bubba.
Eyþór Ingi sigrar í
Söngvakeppni framhalds-
skólanna með laginu
Framtíð bíður, sem hann
flutti fyrir Verkmennta-
skólann á Akureyri.
Leikur Riff Raff í uppfærslu LA á Rocky
Horror Picture Show. Tilnefndur til
Grímunnar fyrir söng sinn í verkinu. Er
gestasöngvari með Stuðmönnum og túrar
um landið með þeim. Gengur til liðs við
hljómsveitina Todmobile og syngur inn á
plötuna 7 sem kom út ári síðar.
Leikur Berger í uppfærslu
Silfurtunglsins á Hárinu
í Hofi og Hörpu.
Fer með hlutverk Maríusar
í Vesalingunum
í Þjóðleikhúsinu.
Sigrar í undankeppni
Eurovision á Íslandi
með laginu Ég á líf.
verið saman síðan 2009, þegar
Eyþór stóð á tvítugu. Soffía, sem
er Húsvíkingur og vinnur á tann-
læknastofu, er sjö árum eldri en
Eyþór. Þau kynntust einu og hálfu
ári áður en í viðtali við DV árið
2010 sagði Eyþór að aldursmunur-
inn hefði komið í veg fyrir að þau
byrjuðu saman fyrr.
„Við komumst hins vegar fljót-
lega að því að aldur skiptir ekki
máli, þar sem við gátum ekki hætt
að hugsa hvort um annað,“ sagði
hann þá. Móðir Eyþórs segir hann
ávallt hafa verið fullorðinn í sér,
bæði til orðs og æðis.
„Kannski er það vegna þess
að hann umgekkst langafa sinn
og langömmu sína mjög mikið,“
segir hún. „Enn þann dag í dag
segir fólk við mig: Það getur ekki
verið að hann sé bara 23 ára.“
Undir það tekur Soffía, sem segir
aldursmuninn ekki hafa sett strik
í reikninginn þegar á hólminn var
komið. „Ég hristi höfuðið þegar
hann sagði mér hvað hann væri
gamall, því þegar ég var að tala
við hann hvarflaði ekki að mér að
þessi maður væri yngri en ég.“
Soffía Ósk átti tvær dætur frá
fyrra sambandi, Báru Katrínu og
Kristínu Emmu. Soffía segir það
bera þroska Eyþórs vitni hversu
áreynslulaust hann tileinkaði sér
uppeldishlutverkið aðeins tvítug-
ur að aldri. „Hann er ótrúlega
ljúfur og ábyrgur og tekur föður-
hlutverkið alvarlega.“ Fyrir rúmu
áru eignuðust þau saman dóttur-
ina Elvu Marín.
Rólegur rokkari
Í útliti er Eyþór staðalímynd
rokkarans og sækir greinilegan
innblástur í átrúnaðargoð sín frá
hippatímanum. Hann hefur hins
vegar ekki tileinkað sér lífshætti
þeirra, sem einkenndust af partí-
standi og sukki. Hann er í fullri
dagvinnu sem pabbi en á kvöldin
klæðir hann sig í rokkgallann og
stígur á svið. „Hann er ótrúlega
rólegur og þolinmóður og líklega
manna ólíklegastur til að rústa
hótelherbergi,“ segir Soffía Ósk
og hlær. Ottó segir að eflaust hefði
velgengni í tónlistarbransanum
stigi mörgum jafnöldrum Eyþórs
til höfuðs og þeir látið glepjast
af freistingum hans. „Það hefur
aldrei verið vandamál hjá honum;
hann er bara sami Eyþór og maður
þekkti. Hann er mjög þroskaður og
hefur sterka jarðtengingu.“ Sjálfur
segir Eyþór rokkið ekki snúast um
„sex, drugs and rock n‘ roll“. „Nú
til dags snýst rokkið svo mikið um
það að vera heiðarlegur og sam-
kvæmur sjálfum sér. Rokkarar
þurfa ekki lengur að ganga um í
leðurbuxum, vera uppdópaðir og
líma húsgögnin sín á hvolf, það er
bara liðin tíð,“
Soffía heldur því þó til haga
að hann sé ekki skaplaus. „Hann
er mikil tilfinningavera og rétt-
sýnn; getur verið mjög fastur á
sínu, sérstaklega þegar hann veit
að hann hefur á réttu að standa.“
Eyþór er tónlistarmaður af lífi
og sál og á sér fá áhugamál utan
hennar. Ottó segir að þótt hippa-
rokkið sé í uppáhaldi hjá honum
hafi hann víðfeðman smekk.
„Hann kann bara gott að
meta, hvort sem það heitir Led
Zeppelin, Radiohead eða Rufus
Wainwright.“
Eyþór hefur engan áhuga á
íþróttum, er nánast antisportisti
og Soffía segir að það hafi unnið
með honum á sínum tíma að hann
hertekur ekki sjónvarpið á sunnu-
dögum yfir enska boltanum. Hann
er hins vegar mikill sælkeri og
finnst gott að gera vel við sig í
mat og drykk. Uppáhaldið var
plokkfiskur sem Anton afi hans
heitinn eldaði en nú kann hann
ekkert betur að meta en grillaða
hnísu að hætti föður síns.
Þeir sem þekkja Eyþór nefna
óstundvísi sem hans helsta löst.
„Hann er náttúrulega með
athyglisbrest á háu stigi og oft
í litlu sambandi við klukkuna,“
segir Soffía og hlær. „Hann
hefur hins vegar lært að lifa með
því og þetta kemur ekki niður á
vinnunni.“
Ótrúlega sjálfsgagnrýninn
Allir eru sammála um að hann
geri gífurlegar kröfur til sjálfs sín,
stundum of miklar.
„Hann er mjög sjálfsgagnrýn-
inn og harður við sjálfan sig,“
segir Soffía. „Það getur sjálf-
sagt verið kostur, hann er líklega
þar sem hann er vegna þess að
hann gerir miklar kröfur til sín.
Hann er með fullkomnunaráráttu;
aldrei fyllilega ánægður og finnst
hann alltaf geta gert betur.“
Undir það tekur móðir hans.
„Kröfurnar eru svo miklar að þær
geta staðið honum fyrir þrifum.
Ég hugsa að þetta sé að hluta til
ástæða fyrir því að hann er ekki
enn búinn að gefa út sólóplötu,“
en Eyþór vinnur nú um mundir að
sinni fyrstu plötu með eigin efni.
Fjölmargir ástvinir Eyþórs
ætla til Malmö og eru ekki í
nokkrum vafa um að hann eigi
eftir að glansa á sviðinu.
„Honum líður svo vel á svið-
inu,“ segir Soffía. „Hann verður
kannski stressaður á undan, þótt
hann láti ekkert á því bera. Fær
kannski hnút í magann. En það
hverfur um leið og hann stígur á
sviðið.“
Á ÆFINGU Í MALMÖ Eyþóri líður vel á sviði. Hann verður stundum stressaður fyrir tónleika en um leið og hann stígur á svið
fyllist hann öryggi og kvíðinn lætur undan. MYND/VALGEIR MAGNÚSSON