Fréttablaðið - 11.05.2013, Page 38

Fréttablaðið - 11.05.2013, Page 38
11. maí 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 38 Barist um farseðilinn til Svíþjóðar Evrópumót kvennalandsliða í knattspyrnu hefst þann 10. júlí í Svíþjóð. Landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson glímir við þann hausverk næstu vikurnar að móta 23 manna landsliðshóp sinn. Stærstur hluti hópsins verður sjálfskipaður atvinnumönnum erlendis en hér heima berjast nokkrar ungar og bráðefnilegar stelpur um laus sæti í hópnum. FRAMTÍÐIN ER BJÖRT Sandra María, Glódís Perla og Elín Metta verða að óbreyttu í lykilhlutverki hjá íslenska kvenna- landsliðinu næsta áratuginn og gott betur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Glódís Perla Viggósdóttir Fæðingarár: 1995 Lið: Stjarnan Staða: Miðvörður Leikir í efstu deild: 17 A-landsleikir: 7 Skemmtileg staðreynd: ■ Glódís Perla var nýorðin 14 ára þegar hún lék sinn fyrsta landsleik af 24 leikjum með U17 liði Íslands. Hún er leikjahæsti leikmaður liðsins frá upphafi. Hefur spilað fyrir Íslands hönd í Danmörku, Færeyjum, Póllandi, Finn- landi, Sviss, Austurríki, Belgíu, Hollandi, Spáni, Skotlandi og Svíþjóð. Þorlákur Árnason, þjálfari Stjörnunnar: „Leik- skilningurinn er hennar besti kostur og svo er enginn í deildinni með betri ristarspyrnur langt fram völlinn. Hún er góður stjórnandi og talar vel við samherja sína. Hún hefur þroskast mikið andlega á einu ári, hefur bætt sig mikið sem varnarmaður og er nú þegar orðin mun betri leikmaður en í fyrra.“ Íslenska landsliðið leikur í annað sinn á meðal tólf bestu þjóða Evrópu eftir frumraun sína í Finnlandi árið 2009. Þá töpuðust allir leikir liðsins. Ísland hafnaði í öðru sæti í riðli sínum í undankeppninni en lagði Úkraínu að velli í umspili um laust sæti í lokakeppninni í Svíþjóð. Íslensku stelpurnar eru í B-riðli ásamt Þýskalandi, Hollandi og Noregi. Þjóð- verjar eru fyrir fram taldir sterkasta þjóðin enda sjöfaldir Evrópumeistarar, í öðru sæti heimslistans og hafa lyft bikarnum á síðustu fimm Evrópumót- um. Ísland og Noregur voru saman í riðli í undan- keppninni og unnu þjóðirnar sinn leikinn hvor. Holland er einu sæti fyrir ofan Ísland á listanum. Ísland spilar leiki sína í Kalmar og Växjö og er fyrsti leikurinn gegn Norðmönnum í Kalmar þann 11. júlí. Í úttektinni var miðað við unga leikmenn á Ís- landi sem hafa spilað færri en tíu A-landsleiki. Elísa Viðarsdóttir Fæðingarár: 1991 Lið: ÍBV Staða: Hægri bakvörður Leikir í efstu deild: 37 A-landsleikir: 8 Skemmtileg staðreynd: ■ Draumur Elísu var að spila A-lands- leik með systur sinni Margréti Láru. Þær voru í fyrsta skipti saman í byrjunarliði landsliðsins í 1-0 sigri á Kína á Algarve-mótinu í mars 2012. Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV: „Hún hefur mikla hlaupagetu, mikinn hraða og er mjög sterk í stöðunni einn gegn einum í vörninni. Hún er mjög sterk andlega og í algjöru toppformi. Hún er nánast jafnvíg á báða fætur og með góða skallatækni. Hún tekst mjög vel á við mótlæti og er mikill karakter. Hún fékk ekki knattspyrnuhæfileikann í vöggugjöf. Það er metnaður hennar og vilji sem hefur komið henni svona langt.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Elín Metta Jensen Fæðingarár: 1995 Lið: Valur Staða Framherji Leikir í efstu deild: 27 A-landsleikir: 4 Skemmtileg staðreynd: ■ Elín Metta hefur skorað 24 mörk í 27 leikjum í efstu deild eða næstum því mark að meðaltali í leik. Hún skoraði 17 mörk í 14 leikjum með U17 ára landsliði Íslands. Hún varð yngsti leikmaður frá upphafi til að hljóta gullskóinn í efstu deild kvenna sumarið 2012. Helena Ólafsdóttir, þjálfari Vals: „Hún er marka- skorari af guðs náð, þefar uppi færin og nýtir þau mjög vel. Hún er góð með boltann og nær að halda hraða með boltann á tánum. Hún á auðvelt með að gera hluti á eigin spýtur, hefur að vissu leyti leyfi til þess en verður enn betri þegar hún lærir að nýta samherjana betur. Það er rosalega gaman að vinna með henni því hún vill læra og tekur leiðsögn mjög vel.“ Guðmunda Brynja Óladóttir Fæðingarár: 1994 Lið: Selfoss Staða: Framherji Leikir í efstu deild: 18 A-landsleikir: 0 Skemmtileg staðreynd: ■ Guðmunda Brynja er fyrsti leik- maðurinn sem valinn er í A-landsliðs- hóp Íslands sem leikmaður Selfoss. Hún fór fyrir liði Selfoss sem tryggði sér sæti í efstu deild sumarið 2011 þrátt fyrir að vera ýmist veik eða meidd allt tímabilið. Guðmunda spilaði sem markvörður í yngstu flokkum. Gunnar Rafn Borgþórsson, þjálfari Selfoss: „Hún hefur gríðarlegan viljastyrk og mikinn metnað. Hún er dugleg að æfa, tekur leiðsögn gríðarlega vel og hefur þroskast mikið sem leikmaður. Hún er með svakalegan sprengikraft, ekki bara á fyrstu metrum heldur rífur sig áfram í hverju skrefi. Hún er rosalega fljót, með mikið markanef og er óhrædd að láta vaða á markið og keyra á varnarmennina.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Sandra María Jessen Fæðingarár: 1995 Lið: Þór/KA Staða: Vinstri kantur Leikir í efstu deild: 33 A-landsleikir: 6 Skemmtileg staðreynd: ■ Sandra hefur verið sjóðheit í treyju A-lands- liðsins og skorað þrjú mörk í sex leikjum. Hún skoraði með sinni fyrstu snertingu í A-landsleik gegn Ungverjalandi eftir að hafa verið inni á vellinum í þrjár mínútur. Faðir Söndru hefur getið sér gott orð sem aðstoðardómari hér á landi. Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þórs/KA: „Hún hefur ofboðslega mikinn vilja til þess að ná lengra, hlustar vel og er alltaf að uppgötva eitthvað nýtt. Hún er með skemmtilega blöndu af því að vera nánast jafnfætt og eldfljót. Hún er dugleg að koma sér í færi og er með mikið markanef. Hennar hraði og sprengikraftur hentar mjög vel á vinstri kantinum.“ Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is EVRÓPUMÓTIÐ Í SVÍÞJÓÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.