Fréttablaðið - 11.05.2013, Side 88
11. maí 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 56
➜ Ragnheiður Bjarnason er
einn af stofnendum Samsteyp-
unnar sem hefur sett upp nýtt
verk á hverju ári frá árinu 2006
auk þess að vera sjálfstætt
starfandi listamaður.
Uppruni, arfleifð og nútímamerk-
ing brúðkaupa er inntakið í gjörn-
ingnum „The White Walkers“
sem Ragnheiður Bjarnason dans-
ari fremur í Verónaborg á Ítalíu
í dag. Gjörningurinn er hluti af
hátíðinni Verona Risuona, sem
einblínir á list í almenningsrými.
„The White Walkers“ er gjörn-
ingur um ástina, sem er viðeig-
andi yrkisefni í Veróna, sögusviði
Rómeu og Júlíu, einnar frægustu
ástarasögu fyrr og síðar.
„Gjörningurinn er um ástina,
að kaupa sér ást eða vera virki-
lega ástfangin,“ segir Ragnheiður.
„Ég set upp spurningar um hjóna-
bandið eða brúðkaup í samhengi
nútímans. Upprunalega gekk brúð-
kaup út á að karlmaður keypti sér
brúði sem átti svo að sjá um hann
til æviloka, einhvers konar au pair
sem elur honum einnig erfingja að
ríkidæminu. Þótt þessi gildi séu
dottin upp fyrir í dag er sú hefð
enn við lýði að brúðir skuli vera
í hvítum kjól. Í verkinu velti ég
fyrir mér hverju sætir.“
Ragnheiður útskrifaðist frá
dansbraut LHÍ árið 2009 en er
nú í meistaranámi í svonefndum
„Contemporary Performative
Art“ við við háskólann í Gauta-
borg. - bs
Sýnir nýjan gjörning
á listahátíð í Veróna
Ragnheiður Bjarnason veltir brúðkaupum fyrir sér.
„THE WHITE WALKER“ Ragnheiður veltir fyrir sér hvers vegna við höldum í fornar
brúðkaupshefðir þótt inntak hjónabandsins og staða kvenna í þeim hafi breyst í
aldanna rás. MYND/RAGNHEIÐUR BJARNASON
Ævintýrið hófst þannig að Sin-fóníuhljómsveit-in í Færeyjum falaðist eftir tón-listarævintýri og
var tónskáldið Kári Bæk fengið
til þess að semja tónlistina.
Hann vildi fá mig til að semja
söguna og það varð úr. Ég fékk
svo Janus frá Húsagarði mynd-
skreyti til þess að gera mynd-
ir við ævintýrið þegar það var
komið á blað og úr varð Veiða
vind,“ segir Rakel Helmsdal,
færeyskur barnabókahöfundur,
sem stödd er hér á landi ásamt
Kára og Janusi.
Tilefnið er útkoma bókar-
innar Veiða vind á íslensku og
flutningur Sinfóníuhljómsveitar
Íslands á ævintýrinu. En hvern-
ig varð sagan til? „Sagan er
byggð á börnunum mínum þrem-
ur. Eldri strákurinn minn var
að læra ljóð um Ólaf liljurós þar
sem kemur fyrir að veiða hind.
Það heyrðist þeim yngsta vera
sagt veiða vind, þaðan kemur
nafn sögunnar sem segir frá leik
systkina þar sem Litlibróðir og
stóra systir hans, Didda, búa sér
til ævintýralegan heim álfa og
riddara. Ævintýrið var svo flutt í
Þórshöfn og tókst vel til.“
Verk Rakelar eru íslenskum
barnabókalesendum að góðu
kunn því hún er einn þriggja
höfunda bókanna um Litla og
stóra skrímslið.
„Við erum enn að vinna að
sögunum um skrímslin þó að ég
viti ekki nákvæmlega hvenær
sú næsta kemur út,“ segir Rakel,
sem hefur, auk þess að semja
sögurnar með hinni íslensku
Áslaugu Jónsdóttur og hinum
norska Kalle Güettler, búið til
skrímslabrúður fyrir brúðu-
leikhúsið sitt í Færeyjum. „Það
er ekki hlaupið að því að lifa af
því að vera rithöfundur í Fær-
eyjum þannig að maður þarf að
hafa mörg járn í eldinum. Ég hef
verið allt í öllu í brúðuleikhús-
inu, nema ég hef verið með leik-
stjóra með mér,“ segir Rakel.
Hún og ferðafélagar henn-
ar eru mjög spennt fyrir tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands í dag. „Við hlökkum ótrú-
lega mikið til að fylgjast með
ævintýrinu í þessu fallega húsi,
Hörpu,“ segir hún að lokum.
sigridur@frettabladid.is
Býr til barnabækur
og brúður í leikhús
Misskilningur sonar færeyska höfundarins Rakelar Helmsdal á ljóðlínu bálksins
um Ólaf Liljurós varð henni innblástur að sögunni Veiða vind sem út er komin á
íslensku. Rakel er einn höfunda bókanna um Litla og stóra skrímslið.
Veiða vind segir frá litlabróður sem nennir
ekki að hanga inni og drífur sig út í ótryggt
aprílveðrið sem sveiflast á milli allra árs-
tíðanna eins hratt og systir hans skiptir um
trélit. Þegar út er komið tekur ímyndunar-
aflið völdin og hann lendir í æsispennandi
ævintýri þar sem við sögu koma álfastúlka,
grimmur björn, háfleygur örn og síðast en ekki síst forneskjulegur
dreki. Sagan kom fyrst út í Færeyjum 2011 og af því tilefni flutti Sin-
fóníuhljómsveit Færeyja verkið í Norðurlandahúsinu í Þórshöfn við mikinn
fögnuð. Upptaka af þeim tónleikum fylgir með íslensku útgáfunni, ásamt
flutningi Benedikts Erlingssonar á sögunni sem Þórarinn Eldjárn þýddi.
Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur á fjölskyldutónleikum í dag tónlistar-
ævintýrið Veiða vind. Þar er Benedikt einnig sögumaður en Bernharður
Wilkinsson er við stjórnvölinn. Tónleikarnir hefjast klukkan tvö.
Sinfó flytur Veiða vind
RAGNHEIÐUR BJARNASON
Fremur gjörning í Veróna í dag.
BÚA TIL ÆVINTÝRI
Rakel Helmsdal, Janus
frá Húsagarði og Kári
Bæk eru höfundar
tónlistarævintýrsins
Veiða vind.
Sýningunni Tilraun til að beisla
ljósið, sem nú stendur yfir í
Hafnar borg, lýkur á morgun
sunnudaginn 12. maí.
Á þessari sýningu eru verk
nokkurra starfandi listamanna
skoðuð útfrá myndgerð nýaldar-
fræðanna. Jafnframt eru sýnd
myndverk nokkurra annarra
Íslendinga er fást við myndgerð
sem talin er hafa heilandi áhrif
eða tekur mið af nýaldarspeki. Á
sýningunni mætast þannig mynd-
list og heilun og gefst sýningar-
gestum færi á að velta fyrir sér
hugmyndafræðilegum og fagur-
fræðilegum tengingum listarinn-
ar við hin andlegu svið.
Sýningin er opin frá tólf til
fimm.
Myndlist og heilun
mætast í Hafnarborg
Síðasti sýningardagur á Tilraun til að beisla ljósið er
á morgun. Fjölmargir listamenn eiga þar verk.
LJÓSIÐ BEISLAÐ Verk eftir Daða
Guðbjörnsson sem er eitt verkanna á
sýningunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MENNING
AÐGANGUR ÓKEYPIS
HÁDEGISTÓNLEIKAR
Í NORÐURLJÓSUM, HÖRPU
ÞRIÐJUDAGINN 14. MAÍ KL.12:15
ERLA BJÖRG KÁRADÓTTIR SÓPRAN
HANNA ÞÓRA GUÐBRANDSDÓTTIR SÓPRAN
ANTONÍA HEVESI, PÍANÓ
ÓPERUARÍUR
OG DÚETTAR
EFTIR BELLINI,
PUCCINI O.FL.