Fréttablaðið - 11.05.2013, Blaðsíða 94
11. maí 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 62
GAR
ÐIN
N
Í SUMAR MUN BJÖRN JÓHANNSSON
VEITA VIÐSKIPTAVINUM BYKO RÁÐGJÖF
VEGNA FRAMKVÆMDA Í GARÐINUM
Hálftíma ráðgjöf kostar 5.900 kr.
Sú upphæð nýtist sem inneign þegar
keypt er pallaefni í garðinn í BYKO.
Björn Jóhannsson
landslagsarkitekt.
GARÐA
HÖNNU
NPANTAÐU RÁ
ÐGJÖF
VIÐ
TILLÖGUR UNNAR Í ÞRÍVÍDD
Skráning á netfangið
gudrunhalla@byko.is
og í síma 5154144
kl. 10-16 virka daga.
PANTAÐU RÁÐGJÖF
Alex James, bassaleikari Blur, hefur leikstýrt sinni
fyrstu stuttmynd, sem ber heitið Life Is Short.
James leikur einnig hlutverk í myndinni, sem hann
tók upp í Los Angeles í síðasta mánuði þar sem Blur
kom fram á tónlistarhátíðinni Coachella.
Í stuttmyndinni er einnig að finna nýtt sólólag
frá James, Superordinator.
Á tónleikum í Hong Kong á mánudag
sagði Íslandsvinurinn Damon Albarn,
söngvari Blur, að hljómsveitin ætlaði að
nýta tímann í borginni til að taka upp nýja
plötu.
ALEX JAMES LEIKSTÝRIR
ALEX JAMES Leikur
einnig í nýrri stuttmynd
sem hann leikstýrir.
Söngkonan Bonnie Tyler er nokkuð róleg
yfir þátttöku sinni í Eurovision fyrir hönd
Bretlands. Illa hefur gengið undanfarin ár
hjá Bretlandi í keppninni. Til dæmis hlaut
þjóðin ekkert stig árið 2003 með laginu Cry
Baby með Jemini.
Í þetta sinn mætir hin 61 árs stjarna
Tyler á svið með lagið Believe In Me.
Það var tekið upp í Nashville og hljóm-
ar á nýjustu plötu hennar Celtic Swan.
„Það væri gaman ef ég yrði ekki síðust,“
sagði hún við The Telegraph en bætti
við: „Mér er alveg sama hvort ég vinn
eða ekki.“
Leikaranum Simon Pegg finnst líf kollega síns
Toms Cruise vera „klikkað“. Þeir léku saman
í hasarmyndinni Mission: Impossible - Ghost
Protocol sem kom út 2011.
„Hans líf er klikkað en það er einfaldlega
sniðið að því að búa til kvikmyndir,“ sagði Pegg
við Total Film. „Hann er bara þannig mann-
eskja. Mér fannst mjög gott að vinna með
honum og hann var mjög duglegur. Það
kom aldrei neitt upp sem tengdist öllu
því skrýtna sem maður les um hann í
blöðunum.“ Pegg leikur næst í mynd-
inni Star Trek Into Darkness.
Finnst líf Toms Cruise klikkað
BONNIE TYLER
Söngkonunni er sama
hvort hún vinnur
Eurovision eða ekki.
Sama um sigur í Eurovision
Minning bresku söngkonunn-
ar Amy Winehouse, sem lést
sumarið 2011, verður heiðruð
með tíu vikna langri sýningu
á Gyðingasafninu í Camden-
hverfinu í London.
Sýningin, sem sögð er „ein-
læg og persónuleg“, stendur yfir
frá 3. júlí til 15. september. Alex
Winehouse, bróðir söngkonunnar,
aðstoðaði við uppsetninguna og
meðal þess sem til sýnis verður
eru fyrsti gítarinn hennar, plötu-
safnið, Grammy-verðlaunagripir
og kjólar sem Winehouse klædd-
ist á tónleikum.
„Amy var afar stolt af uppruna
sínum,“ segir Alex Winehouse um
sýninguna.
Sýna fyrsta gí-
tar Winehouse
AMY WINEHOUSE Var mörgum harm-
dauði sumarið 2011.
SIMON PEGG Leikarinn segir
að líf Cruise sé „klikkað“.
Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg fer fram á Patreksfirði dagana 15.
til 17. ágúst en ekki um hvítasunnuhelgina líkt og áður.
Á hátíðinni verða nýjar íslenskar heimildarmyndir frumsýndar
auk þess sem besta heimildarmyndin árið 2013 verður valin af
áhorfendum. Á heimasíðu Skjaldborgar kemur fram að aðstandendur
hátíðarinnar ætli að brydda upp á ýmsum nýjungum í ár.
Umsóknarfrestur mynda er til 15. júní og getur kvikmyndagerðar-
fólk sótt um beint á vefsíðunni Skjaldborg.com.
Skjaldborg fer fram í ágúst
BREYTTIR
TÍMAR Skjald-
borgarhátíðin
fer fram í
ágúst í stað
hvítasunnu-
helgarinnar.