Fréttablaðið - 11.05.2013, Side 96
11. maí 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 64
„Þótt þessi mynd sé enginn
Óskars kandídat er þetta ágætis
ræma,“ segir Óttar Guðnason.
Hann var kvikmyndatökumað-
ur Hollywood-myndarinnar The
Numbers Station með stjörn-
unni John Cusack í aðalhlutverki,
sem er frumsýnd hér á landi um
helgina.
Aðspurður segist Óttar hafa
fengið verkefnið í gegnum danska
leikstjórann Kasper Barfoed en
þeir hafa unnið saman við auglýs-
ingagerð. Einnig hjálpaði það til að
framleiðendurnir Sean- og Bryan
Furst þekktu vel til Baltasars Kor-
máks og vissu af starfi Óttars við
myndirnar A Little Trip to Heaven
og Inhale. Þeir eiga einnig réttinn
á erlendri endurgerð Mýrarinnar,
sem þeir hafa ekki nýtt.
The Numbers Station var kvik-
mynduð að öllu leyti í Suffolk-sýslu
í Englandi, norðaustur af London,
á svæði þar sem herstöðin Bent-
waters stóð. „Hún varð gerð í hálf-
gerðum spreng, á 25 dögum, bæði
út af peningum og þeim tíma sem
leikararnir höfðu. Það er mjög
stuttur tími fyrir svona mynd í
fullri lengd. En þetta var mjög
skemmtilegt og það var gaman að
vinna með Cusack. Þetta er frek-
ar myrkur persónuleiki en samt
indælis náungi inni við beinið,“
segir Óttar - fb
Gaman að vinna
með John Cusack
Kvikmyndatökumaðurinn Óttar Guðnason starfaði
með John Cusack við tökur á The Numbers Station.
Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP Óttar Guðnason ásamt Malin Åkerman og John Cusack við
tökur á The Numbers Station.
➜ Óttar tók nýlega upp
tvær stórar auglýsingar
fyrir Mini Cooper í Los
Angeles. Í næstu viku
myndar hann auglýsingar
fyrir Samsung í Barselóna
og Marokkó.
Sjóðheitur poppari
og tískuáhugamaður
Pharrell Williams er einn heitasti tónlistarmaðurinn í dag. Lagið Get Lucky sem
hann syngur með frönsku sveitinni Daft Punk hefur slegið í gegn, auk þess sem
lagið Blurred Lines sem hann syngur með Robin Thicke hefur notið vinsælda.
Williams hóf feril sinn með N.E.R.D. og hefur síðan þá starfað með fj ölda tónlistar-
manna. Hann hefur unnið fern Grammy-verðlaun og er mikill tískuunnandi.
2002 Ásamt Justin Timberlake árið
2002. Williams var einn af upptöku-
stjórum Justified, fyrstu sólóplötu
Timberlake. NORDICPHOTOS/GETTY
2006 Pharrell Williams og rapparinn
Snoop Dogg vígalegir á MTV-tónlistar-
verðlaununum í Kaupmannahöfn.
2008 Pharrell Williams, tískuhönnuðurinn
Marc Jacobs og Kanye West á góðri
stundu í París.
2013 Pharrell Williams með unnustu sinni,
tískuhönnuðinum Helen Lasichanh.
2004 Ásamt hótelerfingjanum Paris
Hilton og Fred Durst úr Limp BIzkit í Los
Angeles.
TÖFFARI
Popparinn
starfrækir
tískulínurnar
Billionaire
Boys Club og
Ice Cream
Footwear.
Glympse
Staðsetningarkerfi snjallsíma er orðið
svo gott að nú getur þú staðsett sím-
ann þinn nánast upp á sentímetra á
korti eða í einhvers konar appi. Þetta
hefur Glympse notfært sér og gerir
það stórkostlega. Í Glympse getur þú
nefnilega deilt staðsetningu þinni
með vinum þínum. Vinirnir fá ekki
alltaf að sjá hvar þú ert heldur aðeins
þegar þú gefur þeim leyfi til þess.
Um leið stillir þú hversu lengi þú vilt
að þeir sjái hvar þú ert.
Notagildið er margvíslegt. Segjum
sem svo að vinir hafi mælt sér mót á
kaffihúsi niðri í bæ. Annar vinurinn
er svo orðinn of seinn og sendir
hinum staðsetningu sína. Sá sem er
mættur getur þá fylgst með því hvar
vinurinn er og hversu langt er í hann
á meðan hann drekkur kaffið sitt.
Glympse hefur verið til síðan árið
2009 en hefur nú gengið í endur-
nýjun lífdaga og fékk nýverið sæti
í „Nýtt og nytsamlegt“-listanum á
Apple App Store.
APP VIKUNNAR
Skýringar:
App fyrir Apple-tæki
App fyrir Android-tæki
App fyrir Windows