Fréttablaðið - 18.05.2013, Qupperneq 4
18. maí 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
MENNING Arna Kristín Einars-
dóttir hefur verið ráðin fram-
kvæmdastjóri
Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands.
Hún tekur við
af Sigurði Nor-
dal í haust en
ráðið er í starfið
til fjögurra ára.
Arna Krist-
ín er með
meistara gráðu
í menningar- og
menntastjórnun frá Háskólanum
á Bifröst. Hún hefur verið tón-
leikastjóri og staðgengill fram-
kvæmdastjóra hjá Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands frá árinu 2007.
Áður starfaði Arna við skipu-
lagningu menningarviðburða hjá
Hafnarfjarðarbæ og í Norræna
húsinu. Þá hefur hún starfað sem
flautuleikari hjá Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands og í Bretlandi. - bs
ARNA KRISTÍN
EINARSDÓTTIR
Sinfóníuhljómsveit Íslands:
Arna nýr fram-
kvæmdastjóri
70% Viðar Þorkelsson, for-stjóri Valitors, segir yfir 70 prósent af daglegum útgjöldum íslenskra
heimila greidd með
greiðslukortum.2Leikmaður KR, Baldur Sig-urðsson, skoraði bæði mörk KR í 2-0 sigri á hans gamla félagi, Kefl avík. Hann var leikmaður umferðarinnar, að mati Fréttablaðsins.
11.05.2013 ➜ 17.05.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
LEIÐRÉTT
Ranghermt var í blaði gærdagsins að
fallið hafi verið frá sleppingu laxa-,
urriða- og silungaseiða í Kópavogslæk
og Kópavogstjörn. Við afgreiðslu bæjar-
stjórnar var tillaga bæjarfulltrúa VG
að við framkvæmdina yrði sérstaklega
horft til friðunar Kópavogs og nýrra
náttúruverndarlaga aðeins felld.
VIRKJANIR Orka sem ekki verður nýtt
í álver í Straumsvík verður ekki sjálf-
krafa færð í önnur verkefni heldur seld
hæstbjóðanda.
„Það er hlutverk fyrirtækisins að
hámarka afraksturinn af þeim orkuauð-
lindum sem fyrirtækinu er trúað fyrir,“
segir Magnús Þór Gylfason, upplýsinga-
fulltrúi Landsvirkjunar. Hann segir að
markmið Landsvirkjunar sé að bjóða
samkeppnishæf kjör á raforku með
langtímasamningum.
Fram hefur komið að álverið í
Straumsvík mun ekki nýta alla þá orku
sem fyrirhugað var samkvæmt samn-
ingum. Samningur er í gildi á milli
Rio Tinto Alcan, sem rekur álverið,
og Landsvirkjunar, um kaup á 75 MW.
Meðal annars til að uppfylla þann samn-
ing réðst Landsvirkjun í byggingu Búð-
arhálsvirkjunar. Samningurinn gildir
til ársins 2036 og verða fyrirtækin að
ná saman ef bregða á út af honum.
Það er hins vegar ekki þannig að orka
frá ákveðinni virkjun fari beina leið til
notandans. Orkan fer inn á dreifikerfið
og notandinn fær síðan umsamið magn,
hver sem uppruni orkunnar er.
Fréttablaðið hefur greint frá því að
hugmyndir hafi verið uppi um að sú
orka sem ekki nýtist í Straumsvík gæti
farið í fyrirhugað álver Norðuráls í
Helguvík. Það er þó engan veginn víst.
Losni Rio Tinto undan orkukaups-
samningunum verður orkan einfaldlega
boðin hæstbjóðanda til sölu. Það gæti
vissulega verið Norðurál, en þarf þó
ekki að vera. Norðurál hefur ekki enn
skrifað undir orkusölusamninga við HS
Orku og Orkuveitu Reykjavíkur, þannig
að ekkert er sjálfgefið í þessum efnum.
Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku,
segir að fyrirtækið geti útvegað um 100
MW af orku til álvers í Helguvík þrem-
ur árum eftir að farið verður í fram-
kvæmdir. OR áformar byggingu Hvera-
hlíðarvirkjunar, meðal annars til að sjá
álveri í Helguvík fyrir orku.
Sú staðreynd að OR fékk ekki undan-
þágu frá hertri mengunarvarnarreglu-
gerð fyrir jarðvarmavirkjanir getur
hins vegar sett strik í þann reikning,
að minnsta kosti hvað tímasetningu
varðar.
„Við byggjum ekki nýja virkjun á
meðan þetta er óleyst. Hvenær það
verður vitum við ekki, það verður að
koma í ljós,“ sagði Bjarni Bjarnason,
forstjóri OR, í samtali við Fréttablaðið
27. apríl.
kolbeinn@frettabladid.is
Engin orka er eyrnamerkt
ákveðnum verkefnum
Orka sem ekki nýtist í fyrir fram ákveðin verkefni, eins og Straumsvík, verður seld hæstbjóðanda. Ekki er hægt
að ráðstafa henni fyrir fram í önnur verkefni. Enn er ósamið um raforkusölu til fyrirhugaðs álvers í Helguvík.
Dr. Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri
segir að í raforkukerfi landsins séu á milli
100 og 200 megavött ónýtt. Þau væri
hægt að nýta ef kerfið væri tengt öðru
dreifingarkerfi, en það gerist ekki nema með
sæstreng. „Síðan er auðvitað ákveðin orka
strönduð í kerfinu vegna þess að flutnings-
netið dugir ekki til.“
Þetta afl er þó ekki þess eðlis að hægt sé
að reikna með því í stóriðju. „Þetta er í raun
og veru það afl sem við verðum að hafa til
reiðu ef eitthvað kemur upp á. Þetta er að
hluta til framleiðslugeta sem þarf að vera
umfram til að tryggja öryggi í kerfinu.“
Allt að 200 MW ónýtt í kerfinu
HELGUVÍK Enn er ósamið um orku fyrir álver í Helguvík. Norðurál hefur ekki skrifað undir orkusölusamninga við HS Orku
og OR. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
GUÐNI A.
JÓHANNESSON
37 gegn 30 atkvæðum á þinginu í Minnesota í Banda-
ríkjunum í vikunni urðu til þess að hjónabönd sam-
kynhneigðra eru nú leyfileg í ríkinu.
3037
50
MILLJARÐAR
KRÓNA
Auðkennum
65.000 Svía var
stolið í fyrra og
þjófnaðurinn nam
allt að 50 millj-
örðum íslenskra króna.
Brotum af þessu tagi
hefur fjölgað í Svíþjóð
um 200 prósent á tíu árum.
Starfsfólki Lata-
bæjar hefur fjölgað
um 150 manns nú
á stuttum tíma.
Samkvæmt tölum frá fjármála-
stjóra fyrirtækisins hafa um
4,5 milljarðar króna streymt
inn í íslenska hagkerfið frá
Latabæ undanfarin tvö ár.
150
7.000.000
Arnaldur Indriðason rithöfundur
hefur samanlagt selt bækur sínar
í vel yfi r 7.000.000 eintökum
um allan heim. Ef 7.000.000
eintök af bókum Arnaldar
væru sett á eina bókahillu
væri hún um 140.000
metrar að lengd.
167.902 ferðamenn
hafa lagt leið sína til
Íslands frá áramótum.
Það er 42.000 fl eiri en í
fyrra. Aukning milli ára
nemur 34 prósentum.
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Annar í hvítasunnu
5-10 m/s.
BEST NORÐAUSTANLANDS Það léttir til og hlýnar heldur um norðaustanvert
landið í dag og má búast við allt að 16°C. Væta um tíma og svalara vestan til.
10°
10
m/s
10°
12
m/s
8°
11
m/s
9°
9
m/s
Á morgun
8-15 V-til, annars hægari.
Gildistími korta er um hádegi
7°
7°
10°
12°
8°
Alicante
Basel
Berlín
21°
22°
19°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
23°
19°
22°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
22°
22°
22°
London
Mallorca
New York
16°
20°
20°
Orlando
Ósló
París
31°
24°
17°
San Francisco
Stokkhólmur
21°
17°
9°
5
m/s
8°
6
m/s
12°
5
m/s
10°
5
m/s
13°
6
m/s
12°
8
m/s
5°
10
m/s
8°
7°
7°
13°
15°
SJÁVARÚTVEGUR
Ýsa komin í þorskverð
Útflutningsverðmæti fyrsta árs-
fjórðungs sýnir að fersk ýsa er komin
í þorskverð. Á sama tímabili í fyrra var
þorskurinn seldur á 18% hærra verði.
Þetta er niðurstaða Landssambands
smábátaeigenda sem vann úr gögnum
Hafstofunnar. Í ár hefur ýsan hækkað í
verði á sama tíma og þorskverð hefur
gefið eftir.