Fréttablaðið - 18.05.2013, Side 24

Fréttablaðið - 18.05.2013, Side 24
18. maí 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24 2007 Félagið Trans Ísland var stofnað. Það hefur verið stuðningsnet trans- fólks og gefið út bækling um málefni þess. Þá hafa forsvarsmenn þess veitt fræðslu í húsakynnum Samtakanna 78 og farið í skóla ef óskað er. Valur Stefán var í rauninni bara nafn sem mér var gefið þannig að ég er alveg nákvæmlega sama manneskjan þótt ég heiti nú Ugla Stefanía en loksins fékk ég að vera ég sjálf.“ Fólk hefur sagt að ég sé allt önnur og miklu opn-ari og hamingjusam-ari manneskja eftir að ég varð kona. Þannig að þetta var algjörlega rétt skref,“ segir Ugla Stefanía Jóns- dóttir um þá kynbreytingu sem hún hefur gengið í gegnum. Hún geisl- ar af sjálfsöryggi þegar hún renn- ir löngum fingrunum gegnum sítt hárið. Við hittumst í húsnæði Samtak- anna 78 þar sem Ugla Stefanía hefur starfað sem fræðslufulltrúi. Nú er hún hins vegar á förum norður í Húnavatnssýslu ásamt kærastan- um sínum að aðstoða foreldra henn- ar við búskap. Að sjálfsögðu er hún spurð nánar út í gæjann. „Við kynnt- umst í febrúar í fyrra, áður en ég fór í aðgerðina og við höfum búið saman hérna í Reykjavík. En hann er svo mikið borgarbarn og langar að prufa að vera í sveitinni. Hann er yndislegur strákur og styður mig alveg fullkomlega.“ Þessi umræða vekur upp spurningu um kynhvöt- ina, hvort hún sé til staðar hjá Uglu Stefaníu, þrátt fyrir aðgerðina sem hún undirgekkst. „Já, það er ekkert vandamál hjá mér,“ segir hún hisp- urslaust en bætir við. „Oft eru samt transkonur með tiltölulega lítið af því hormóni sem eykur kynhvöt hjá einstaklingum, en það er persónu- bundið.“ Sagðist vera kona fjögurra ára Ugla Stefanía kveðst hafa leikið sér með hvað sem var sem lítill dreng- ur. „Ég lék mér með dúkkur, bíla, pleimó og úti við, þannig að það var mjög blandað. En mér finnst fynd- ið hvað fólk nennir að horfa mikið á leikföng og lesa í þau, eins og þau geti eitthvað vísað inn í framtíð- ina. Mér finnst það frekar merki um grunnhyggni af því að ég held að það skipti voða litlu máli hvaða leikföng maður leikur sér með sem barn.“ Spurð hversu gömul hún hafi verið þegar hún fór að hugsa um sig sem kvenkyns svarar hún. „Alvar- legustu pælingunum man ég eftir þegar ég svona 13 til 14 ára. Ég sá á netinu fullt af transfólki sem búið var að fara í aðgerðir og svo horfði ég líka á þátt hjá Opruh Winfrey þar sem transkona sagði frá og ég var alveg límd við sjónvarpið. Kannski var þetta hugarástand byrjað fyrr þótt ég hafi kannski ekki áttað mig almennilega á því. Frænka mín segir að ég hafi sagt við hana þegar ég var fjögurra ára að ég væri kona en ég man ekki eftir því sjálf.“ Ugla Stefanía hét áður Valur Stef- án en kom opinberlega út úr skápn- um sem kona í ársbyrjun 2010 og gekkst undir aðgerð á kynfærum síðasta sumar. „Þó að ég sé búin að fara í gegnum formlegt kynleið- réttingarferli þá lýkur því í rauninni aldrei, til dæmis þarf ég alltaf að taka inn hormóna af því að líkami minn framleiðir ekki nógu mikið af kvenhormónum sjálfur og það þarf að halda þeim við. En það var mik- Fannst ég vera í röngu hlutverki Fyrir rúmum þremur árum var Ugla Stefanía Jónsdóttir í hlutverki alvörugefins ungs manns sem bar nafnið Valur Stefán. Nú brosir hún við heiminum sem hávaxin stúlka með fullkominn vöxt, sítt hár og marglitar neglur. Hún er búin að fara í gegnum kynleiðréttingu og segir lífið í raun ekki hafa byrjað fyrr en það ferli hófst. STIKLAÐ Á STÓRU Í SÖGU TRANSFÓLKS Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is 1931 Fyrsta farsæla kyn leið- réttingar aðgerðin á heimsvísu, svo vitað sé. Þar var líffræði- legum karli breytt í konu. 1952 Fyrsta aðgerð sem lukkaðist á Norður- löndunum, fór fram í Danmörku. Hún var gerð á manni sem breyttist í konu. Christine Jorgensen hét hún og prýddi eftir það forsíður ótal tímarita. 1972 Svíþjóð var fyrsta landið í veröldinni sem setti lög um transfólk. Þau voru á ýmsan hátt gölluð en var breytt til batnaðar 1. júlí síðastliðinn. 1989 Fyrsta kynleið- réttingaraðgerðin á Íslendingi, svo vitað sé, var gerð úti í Noregi. 1997 Fyrsta kynleið- réttingaraðgerðin framkvæmd á Íslandi. 1995 Anna Kristjáns- dóttir vélfræðingur var annar Íslendingurinn sem gekkst undir kyn- leiðréttingaraðgerð. 2012 Lög sem eiga að tryggja ein- staklingum með kynáttunarvanda, jafna stöðu fyrir lögum á við aðra voru samþykkt á Alþingi 11. júní í fyrrra. Þau eru númer 57/2012. 1930 1940 1950 1960 1970 1980 1990 2000 2010 DAMA „Ég tók eftir því fyrir jólin að pabbi sagði að ég mætti vera með mömmu að baka í staðinn fyrir að koma út og hjálpa honum. Það var pínu öðruvísi viðhorf en áður.“ ill léttir að komast í aðgerðina síð- asta sumar hér á Landspítalanum, það var lokaskrefið í þessu stóra dæmi,“ segir hún. En hvernig leið henni í strákalíkamanum? „Mér leið ekki vel. Var þó aldrei greind þung- lynd en ég var oft mjög djúpt hugsi af því mér fannst ég vera í röngu hlutverki.“ Hún segir lífið alger- lega hafa breyst til batnaðar. „Það má segja að lífið hafi í rauninni ekki byrjað fyrr en í þessu ferli,“ segir hún. Hvað skyldi henni hafa þótt erf- iðast? „Að koma út úr skápnum og byrja að lifa sem Ugla alltaf og alls staðar. Þessi félagslegu tengsl voru erfiðasti parturinn. Ég hafði svo miklar áhyggjur af höfnun. Þetta var ekki ein ákvörðun heldur fjölda- mörg skref,“ segir Ugla Stefanía og kveðst hafa notið góðrar leiðsagnar. „Ég þekkti Önnu Kristjánsdóttur og ég var í sambandi við hana þegar ég var að byrja að koma út úr skápn- um. Svo er ein náskyld mér sem fór í gegnum sama ferli þannig að ég hafði sterkar fyrirmyndir og góðar manneskjur sem gátu leitt mig.“ Enginn hvellur Foreldrar Uglu Stefaníu eru bændur á Stóra-Búrfelli í Húnavatnshreppi. Hún segir þau hafa tekið ákvörðun hennar um kynbreytingu ótrúlega vel, miklu betur en hún hefði búist við. „Ég hafði kviðið alveg rosalega fyrir að segja þeim þetta. Var búin að byggja upp gríðarlega sápukúlu en svo varð enginn hvellur þegar hún sprakk. Það var kannski svolít- ið erfitt fyrir foreldra mína að byrja að nota nýja nafnið og tala um mig alltaf í kvenkyni. Það tók alveg um ár þangað til það fór að vera alveg eðlilegt. Mamma sagði að það hefði ekki komið henni á óvart þegar ég kom út úr skápnum en margir héldu að ég væri samkynhneigður karl- maður því ég hef alltaf verið mjög kvenleg.“ Skyldi henni ekki hafa dottið það í hug sjálfri? „Nei, það passaði einhvern veginn aldrei inn í myndina hjá mér. Ég pældi nátt- úrulega í því af því allir voru að segja það en ég kom samt aldrei út úr skápnum sem samkynhneigður karlmaður því að ég hef alltaf bara upplifað mig sem konu.“ Er Valur Stefán þá alveg farinn úr henni? „Valur Stefán var í rauninni bara nafn sem mér var gefið þann- ig að ég er alveg nákvæmlega sama manneskjan þótt ég heiti nú Ugla Stefanía en loksins fékk ég að vera ég sjálf.“ Spurð hvort hún sinni sömu störf- um þegar hún kemur að Stóra-Búr- felli og hún gerði áður en hún lét breyta sér svarar Ugla Stefanía: „Já, ég hjálpa til í sauðburði, fer út að mjólka og geri allt þetta venju- FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.