Fréttablaðið - 18.05.2013, Blaðsíða 26
18. maí 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26
KYNÁTTUNAR VANDI
er skilgreindur í íslenskum lögum
sem „upplifun einstaklings frá
unga aldri sem telur sig hafa
fæðst í röngu kyni og óskar að
tilheyra hinu kyninu“.
„Íslenskum konum fjölgaði um
fimm nú í vikunni en körlum
fækkaði að sama skapi,“ segir
sænski skurðlæknirinn Gunnar
Kratz, prófessor í Linköping,
sem hefur dvalið hér á landi
undanfarna daga og gert kyn-
leiðréttingaraðgerðir á fimm
einstaklingum. Hver skurðað-
gerð tekur um tvo og hálfan
tíma og tvo daga í þessari viku
gerði hann tvær á dag. Gunnar
hefur nánast sérhæft sig í svona
lækningum og þetta er fjórða
ferð hans til Íslands í þeim
erindagjörðum á síðustu þremur
árum. Í þeim heimsóknum hefur
hann breytt kynfærum nítján
einstaklinga og þannig hjálpað
þeim að finna sig í réttum lík-
ama en þess má geta að á tíma-
bilinu 2001 til 2009 voru engar
aðgerðir framkvæmdar hér.
„Það var uppsöfnuð þörf hér á
Íslandi því kynáttunarvandamál
fara ekkert í burtu heldur
bíða bara ef engar aðgerðir eru
gerðar í mörg ár,“ segir Gunnar.
Bjargar lífi margra
Í Svíþjóð fjölgaði kynleiðrétt-
ingaraðgerðum stöðugt frá
miðjum tíunda áratugnum og
fram á miðjan áratug 21. aldar
en nú er komið jafnvægi á, að
sögn Gunnars. Um 50 til 60
Svíar fara árlega í þær og einn-
ig kemur fólk hvaðanæva að úr
heiminum til að gangast undir
þær. Gunnar hefur gert nokkrar
aðgerðir í Noregi en segir fyrir-
hugað að kenna skurðlæknum
þar og jafnvel á Íslandi handtök-
in við þær.
Strax í skurðlæknanám-
inu kveðst Gunnar hafa feng-
ið áhuga á kynleiðréttingarað-
gerðum. „Mér finnst gott að
gera aðgerðir á frísku fólki og
göfugt að frelsa það úr fjötr-
um sem það er í, jafnvel bjarga
þannig lífi þess því sjálfsmorð-
stíðni er há hjá þeim sem vakna
á hverjum morgni í vitlausum
líkama.“ Hann kveðst ekki líta
svo á að hann breyti ímynd fólks
og persónu leika heldur sé hann
einmitt styrkja persónuleika
einstaklinganna með aðgerð-
inni og láta þeim líða vel í sínum
kroppum.
Transkarl gæti haldið leginu
„Þetta er það sem allir spyrja
um,“ segir Gunnar þegar hann
er spurður hvort erfiðara sé að
breyta konu í karl en öfugt. Svo
kemur svarið. „Þegar karlmanni
er breytt í konu þá höfum við
gnægð af efni til að vinna með en
þegar konu er breytt í mann þá
vantar okkur efni. Það er vanda-
málið. Við höfum úr tveimur
aðferðum að velja en hvorug er
fullkomin. Það er auðvitað hægt
að taka hluti eins og húð og fitu
af líkamanum hvar sem er, bæta
silíkoni við og búa til stóran lim
og kröftugan en sem vantar alla
kynferðislega næmni. Önnur
aðferð snýst um að stækka sníp-
inn í kynfærum konunnar með
testosteróni, hann lítur þá út eins
og typpi sem hægt er að pissa
með en verður aldrei stærri en
þumalfingur. Hins vegar hefur
hann kynferðislega tilfinningu.
Í Svíþjóð kjósa um 80% trans-
manna þann litla.“
Karl sem breytir sér í konu
getur ekki fætt barn því legið
vantar. Gunnar segir hins vegar
konu sem breytir sér í karl geta
haldið sínu legi og borið barn
undir belti. „En það væri óneitan-
lega hjákátleg sjón,“ segir hann
brosandi.
Göfugt að frelsa fólk úr fjötrum
Hinn sænski Gunnar Kratz, prófessor í skurðlækningum í Linköping, hefur síðustu daga gert
fimm kynleið réttingaraðgerðir hér á landi. Hann vill láta fólki líða vel í sínum kroppi.
SKURÐLÆKNIRINN Þegar karlmanni er breytt í konu þá höfum við gnægð af efni til að vinna með en þegar konu er breytt í
mann þá vantar okkur efni. Það er vandamálið,“ segir Gunnar Kratz prófessor. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Margrét de Leon
Magnúsdóttir
er móðir þrettán
ára stúlku sem er
líffræðilega fædd
drengur en hefur
sagst vera stelpa
frá því tveggja ára
aldri. Margrét hefur stofnað hóp á
fésbókinni sem nefnist Hin börnin.
„Þetta er ekki félag heldur fésbókar-
síða sem ég setti á laggirnar til að
foreldrar barna með kynáttunarvanda
gætu verið í sambandi,“ segir hún.
Stúlkan valdi sér nafnið Freyja
Dögg og móðir hennar segir alla
þekkja hana undir því. „Dóttir mín
upplifir sig sem stúlku og hefur alltaf
gert. Við leyfum henni að vera hún
sjálf og njóta sín eins og hún er þó
svo faðir hennar kalli hana hana enn
drengjanafninu Micael. Hún hagar
sér í fyllsta máta eins og eðlileg
stelpa, klæðist kjólum og hangir með
sínum vinkonum. Hún segir sjálf að
hún ætli í aðgerð þegar hún verði
átján ára og vilji hafa mig hjá sér á
spítalanum.“
„Ég fór fyrir hreina tilviljun að
aðstoða transfólk um 1998 og vissi
þá hreinlega ekkert um þennan
málaflokk. Síðan hef lagt mig
fram um að kynnast því, fara á
ráðstefnur og lesa mér til. Ég var
einn framan af en nú erum við,
með nýjum lögum frá Alþingi,
komin með nefnd hjá Landspítal-
anum um málefni þessara ein-
staklinga og ég er bara hluti af
henni þannig að nú koma miklu
fleiri að þessu starfi en áður,“
segir Óttar Guðmundsson geð-
læknir.
Faðir á háum hælum
Ekki kveðst Óttar sjá um að
greina hvoru kyninu fólk til-
heyrir, þá ákvörðun hafi það
tekið áður en það komi til hans.
„Ég hef aldrei greint fólk með
kynáttunarvanda sem vissi ekki
af því sjálft. En auðvitað kemur
fólk með gríðarlega mikla van-
líðan, þótt hún sé mismikil. Það er
erfitt að ganga með þá bjargföstu
tilfinningu að vera í röngum lík-
ama. Ég sem læknir fylgist með
þeim einstaklingum sem fara í
kynleiðréttingarferli, hvernig
þeim líður og hvernig breytingin
gengur fyrir sig. Fólk fer líka í
viðtöl við sálfræðing, iðjuþjálfa,
talmeinafræðing og hormóna-
lækni.“ Óttar segir einnig þörf
að sinna aðstandendum. „Sumir
þessir einstaklingar eiga börn
og þeim er sinnt á Barna-og ung-
lingageðdeild ef þörf er. Það er
mikil breyting fyrir barn ef föð-
urímyndin er allt í einu komin í
kjól og á háa hæla.“
Óttar segir kynferði og kyn-
vitund hugtök sem í langflestum
tilfellum fari saman, „En það
er þessi litli hópur, hjá körlum
kannski einn af hverjum tíu þús-
und og hjá konum ein af hverjum
fimmtíu þúsund, sem hafa ekki
kynvitund í samræmi við sitt
kynferði. Á síðustu árum er það
vandamál að verða viðurkennd-
ara í samfélaginu og fólk leitar
sér hjálpar yngra en það gerði,
allt niður í börn, rétt innan við
fermingu.“
Lífsgæðin aukast
Eru einhver sérstök andleg ein-
kenni sem fylgja því að fæðast
af röngu kyni? „Nei, bara sterk
tilfinning fyrir því að vera ekki
ein heild, heldur undir röngum
formerkjum í lífinu. Enda kemur
í ljós að árangur af leiðrétting-
araðgerðunum er einstaklega
góður, mældur í lífsgæðum þess-
ara einstaklinga.“
Óttar segir útilokað fyrir fólk
að komast í kynleiðréttingu ef það
misnotar vímuefni. „Fólk verður
að halda sér edrú í að minnsta
kosti ár til að komast inn í leið-
réttingarferlið, það tekur svo
mikið á. Þetta er svo mikil breyt-
ing, í raun mesta breyting sem
nokkur getur gert á lífi sínu.“
Mesta breyting sem nokkur
einstaklingur getur gert á lífi sínu
Einn af hverjum tíu þúsund körlum og fimmtíu þúsund konum fæðist í röngum líkama. Enginn
Íslendingur hefur aðstoðað jafn margt fólk í þeim sporum og Óttar Guðmundsson geðlæknir.
GEÐLÆKNIRINN„ Það er erfitt að
ganga með þá bjargföstu tilfinningu að
vera í röngum líkama,“ segir Óttar sem
hefur sérhæft sig í aðstoð við transfólk
á síðustu árum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
lega. En ég tók samt eftir því fyrir
jólin að pabbi sagði að ég mætti vera
með mömmu að baka í staðinn fyrir
að koma út og hjálpa honum. Það var
pínu öðruvísi viðhorf en áður.“
Ugla Stefanía segir vini hennar
og kunningja hafa líka viðurkennt
hana strax sem konu. „Ég get ekki
kvartað,“ segir hún. „Ég býst við að
það hafi hjálpað hvað ég var sjálf
staðföst í að fara í leiðréttingarferl-
ið, þá átti fólk erfiðara með að setja
út á þá ákvörðun mína. Ég samt hef
alveg heyrt ýmislegt en læt það lítið
á mig fá. Námsráðgjafinn minn í
Verkmenntaskólanum á Akureyri
var í því að styrkja mig, sagði að
ég væri komin skrefi á undan öllum
með þetta og þess vegna hefði fólk
miklu minna tækifæri til að dæma
mig. Þannig að það hjálpaði mér
örugglega hvað ég var opin og óhik-
andi.“
Snýst um velferð einstaklings
Ugla segir hægt að skipta leið-
réttingarferlinu upp í þrjú stig.
„Fyrsta skref er að segja vinum
og vandamönnum hvað til stend-
ur, velja sér nýtt nafn, byrja að
ganga undir því nafni og lifa í sínu
rétta hlutverki alls staðar, alltaf.
Það tekur minnst hálft til eitt ár. Á
Landspítalanum er eftirlit með ein-
staklingnum og þar er metið hvern-
ig honum gengur að fóta sig í nýju
hlutverki. Þegar hann er tilbúinn
getur hann farið í hormónameð-
ferð og tekur þá inn kynhormón,
annaðhvort karl- eða kvenhormón
eftir því hvort hann er að leiðrétta
kyn sitt í karl eða konu. Það er í
raun svolítið eins og að fara á kyn-
þroskaskeið aftur nema tekur bara
miklu styttri tíma en það fyrra og
veldur enn meiri sveiflum. Lík-
amsbreytingarnar sem hormón-
arnir valda eru mjög miklar, það
eru auðvitað þær sem er verið að
reyna að ná fram en þær geta vald-
ið skapsveiflum og alls konar til-
finningarússibana hjá fólki. Sam-
kvæmt hinum nýju lögum frá 2012
um réttarstöðu transfólks verð-
ur það að vera minnst 18 mánuði
í meðferð áður en það má fara í
aðgerð. Sænski skurðlæknirinn
Gunnar Kratz kemur á hverju ári
og framkvæmir þær aðgerðir.“
Ugla Stefanía kveðst hafa þurft
að borga allt nema sjálfa kynleið-
réttingaraðgerðina sem sé greidd
af sjúkratryggingum. „Svona
aðgerð snýst um velferð einstak-
lings, í raun getur hún snúist um líf
eða dauða. Í Bandaríkjunum verður
fólk sjálft að greiða fyrir aðgerð-
irnar og sjálfsmorðstíðni hjá trans-
fólki er þar gríðarlega há, því það
hefur einfaldlega ekki efni á að láta
breyta sér en treystir sér ekki til að
lifa í sínum umbúðum.“
Breytti röddinni
Ekki kveðst Ugla Stefanía muna
eftir að hafa farið í mútur sem
unglingur enda hefur hún eðlilega
kvenmannsrödd. Skyldi röddin
hafa breyst með hormónatök-
unni eða þurfti hún frekari hjálp?
„Hormónar hafa mjög lítil áhrif á
rödd þannig að margar transkon-
ur fara í raddþjálfun til talmeina-
fræðings. Ég gerði það ekki sjálf
því ég hef alltaf verið með tiltölu-
lega kvenlega rödd. Samt tók ég
ákvörðun um að beita röddinni
aðeins öðruvísi.“
Ugla er formaður Trans Ísland
sem er félag transfólks á Íslandi.
Í því eru milli 30 og 40 félagsmenn
skráðir en hún telur það lítið brot af
þeim sem ættu þar heima. „Trans-
fólk er fleira en við gerum okkur
grein fyrir en það er alltaf að koma
nýtt og nýtt fólk til okkar og ótrú-
lega mikið að gerast í transmálefn-
um.“
Það var uppsöfnuð
þörf fyrir þessar aðgerðir
hér á Íslandi því kyn-
áttunarvandamál fara
ekkert í burtu heldur
bíða bara ef engar
aðgerðir eru gerðar í
mörg ár.“
TUTTUGU OG FIMM
ÍSLENDINGAR, að
talið er, hafa gengist
undir kynleiðréttingar-
aðgerðir. Nítján þeirra
hafa verið fram-
kvæmd ar hér á landi.
Gunnar Kratz hefur
gert þær fl estar.
ÞRJÁTÍU OG TVEIR
ÍSLEND INGAR hafa fengið
nafnabreytingu í þjóðskrá
Íslands vegna kynleiðréttingar.
HEIMILDARMYNDIN
HRAFNHILDUR,
sem frumsýnd var á
Gay Pride daginn 2012,
fj allar um kyn leið rétt-
ingarferli Hrafnhildar
Guðmunds dóttur sem
áður hét Halldór Hrafn.
Höf undur myndarinnar
er Ragn hildur Steinunn
Jónsdóttir.