Fréttablaðið - 18.05.2013, Page 32

Fréttablaðið - 18.05.2013, Page 32
18. maí 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32 Ég er í eldhúsinu,“ heyrist kallað innan úr iðrum sönghússins Domus vox þegar blaðamann ber að garði. Þar stendur Margrét Pálmadóttir önnum kafin við að rista brauð, skera ost og búa til kaffi. Kaffivél- in var það fyrsta sem hún keypti þegar sönghúsið varð að veruleika. „Ég er svo mikið fyrir allt óhollt,“ segir hún og hlær. „Skil ekki hvernig fólk þorir að láta börnin sín í kóra hjá mér.“ Margrét hlaut Samfélagsverð- laun Fréttablaðsins í flokknum Frá kynslóð til kynslóðar fyrir starf sitt í kórum kvenna og það er vel við hæfi því í kórunum sem hún stjórnar og í söngskólanum eru konur og stúlkur frá fimm til 75 ára. Kvennakór Reykjavíkur, sem hún stofnaði ásamt fleirum árið 1993, á einnig tuttugu ára afmæli í ár og þótt Margrét sé ekki leng- ur þar við stjórnvölinn tekur hún þátt í að fagna afmælinu, meðal annars á tónleikunum Frá konu til konu sem haldnir voru í Hörpu þann 7. apríl. Reynsla af fordómum gerir mann sterkari Margrét er fædd á Húsavík en líf hennar tók óvænta stefnu þegar hún, tveggja ára og átta mánaða gömul, var tekin frá móður sinni og vistuð á barnaheimilinu á Sil- ungapolli. „Það hefur aldrei neinn getað sagt mér neitt af viti um það hvernig það kom til,“ segir hún. „Mamma var svolítið öðruvísi – eins og ég – og hún og pabbi kunnu ekkert að vera hjón. Mamma fór frá honum og hefur greinilega ætlað að bjarga einhverju af börn- unum þannig að hún tók mig með sér. Ég man auðvitað ekkert eftir þessu en í fyrra þegar vistheim- ilisbörnum bauðst hjálp frá rík- inu þá þáði ég það. Mér fannst ég reyndar ekkert þurfa að bæta neitt upp, átti yndislega æsku, en var svo glöð fyrir hönd hinna. Ákvað samt að fara og tala við Guðrúnu Ögmundsdóttur, sem leiddi þetta starf, og var bara rétt komin inn úr dyrunum hjá henni þegar ég skildi hvers vegna það fyrsta sem maður sá þar inni var kassi full- ur af snýtubréfum. Þegar maður opnar á þessar tilfinningar, sem maður vissi ekki einu sinni að maður hefði, þá opnast bara heilt Pandórubox. Tilfinningarnar eru allar þarna og líkaminn man þær þótt hugurinn hafi gleymt þeim. Hluti af aðstoð ríkisins var að boðið var upp á sálfræðiaðstoð sem ég nýtti mér og það var alveg ótrúlega gott.“ Margrét er á því að þessi reynsla hafi átt þátt í því að gera hana að þeirri miklu félagsveru sem hún er. „Þessi reynsla, sem þú upplifir seinna að hafi litast af fordómum, gefur manni sterkari vitund um það sem betur má fara í samfélaginu. Það er bara allt í lagi að lifa lífi sínu á annan hátt en fjöldinn. Ég varð til dæmis ófrísk sextán ára og mamma nýorð- in sautján, sem mörgum þótti nú ekki í lagi. Þetta hefur mótað mig mikið. Fyrir utan baráttuna fyrir kvennakórunum hef ég verið ötul í kvennabaráttunni og stofnaði á sínum tíma foreldrafélag samkyn- hneigðra, nenni bara alls ekkert að biðjast afsökunar á því að eiga samkynhneigðan son eins og mér finnst sumir ætlast til. Og ég vil berjast fyrir þessum mannréttind- um innan kirkjunnar. Ég er trúuð og hef alltaf verið, sæki mikinn styrk í trúna, og vil að kirkjan sé leiðandi í þessum málum.“ Köllun að syngja með konum Margrét þurfti ekki að dvelja lengi á Silungapolli því föður- bróðir hennar og eiginkona hans tóku hana að sér og ólu upp sem eigin dóttur. Með þeim flutti hún frá Húsavík til Hafnarfjarðar þar sem söngferillinn hófst í Kór Öldutúnsskóla og kirkjukór Hafn- arfjarðar. Leiðin lá síðan í söng- nám hér heima og síðan í Vínar- borg og á Ítalíu. Árið 1993 urðu síðan þáttaskil í lífi hennar þegar hún gekkst fyrir stofnun Kvenna- kórs Reykjavíkur. „Það er köllun mín að syngja með konum. Byrj- aði með kórskóla í Kramhúsinu á sínum tíma og smám saman fórum við að syngja alls konar tónlist. Þegar svo kom að stofnun Kvenna- kórsins 1993 mættu 120 konur sem mér þykir alltaf jafn mikið undur. Það hefur gengið á ýmsu síðan en aðalstríðið hefur samt átt sér stað inni í konunum sjálfum. Það eru svo margar konur sem efast um að þær geti sungið og þora ekki að láta rödd sína heyrast. Það er bull. Það geta allir sungið – gera það bara misjafnlega vel.“ Margrét segir starf í kór um margt líkjast hjónabandi. „Þetta snýst allt um að ná samhljómi og hlusta eftir rödd- um annarra. Stilla saman streng- ina. Það þýðir ekkert að láta vaða á súðum og taka ekki tillit til hinna. Eins og í hjónabandi snýst þetta um að gefa og þiggja í réttum hlut- föllum.“ Börnin þurftu að elta Eftir stofnun kórsins má segja að örlög Margrétar hafi verið ráðin. Allt hennar líf síðan hefur meira og minna snúist um kórstarfið og árið 2000 stofnaði hún í félagi við aðra sönghúsið Domus vox sem sameinar undir einu þaki söng- skóla og kórastarfsemi. Og nú hefur hún sjálf fengið að upplifa það sem hún hefur verið að styðja konur í undanfarna tvo áratugi – að fá að syngja með dætrum sínum. „Já, loksins! Þær eru hvor sínum megin við tvítugt og þær koma með í kórferðalagið til Ítalíu í sumar í fyrsta skipti.“ Dæturnar, Sigríður Soffía og Matthildur Guðrún, starfa auk þess báðar við söngskólann og nýverið bættist þriðja barn Mar- grétar í þann góða hóp sem þar starfar þegar Maríus sonur hennar var ráðinn þar kennari. Hinir syn- irnir tveir, Hjalti Þór og Kristján Helgi, eru hins vegar fjarri góðu gamni. Fimm börn í allt, hvernig hafði hún tíma til að eignast þau? „Það tók enga stund að búa þau til og ekkert mikið lengri tíma að fæða þau,“ segir Margrét og skelli- hlær. „Síðan hafa þau bara orðið að elta mig í því sem ég er að gera eins og lömbin.“ Eiginmaður Margrétar er Haf- liði Arngrímsson dramatúrg. „Við kynntumst úti í Vínarborg þar sem við vorum bæði í námi og vorum mjög góðir vinir í nokkur ár, án þess að vera í ástarsambandi. Svo gerði ég mér bara lítið fyrir árið 1988 og bað hans og síðan höfum við verið saman.“ Fyrir utan starfið með kórunum og í söngskólunum er alltaf nóg að gera hjá Margréti sem er á leið til Ítalíu í sumar með kóra, eins og hún hefur reyndar gert flest sumur. „Það verða 45 konur með í ferðinni, sú elsta rúmlega sjötug og sú yngsta ellefu ára. Þannig að ég tel mig vera vel að því komna að hljóta verðlaun fyrir að tengja saman kynslóðirnar.“ Það tók enga stund að búa þau til og ekkert mikið lengri tíma að fæða þau. Síðan hafa þau bara orðið að elta mig í því sem ég er að gera eins og lömbin. Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is Snýst um að ná samhljómi Margrét Pálmadóttir, söngkona og kórstjóri, er kona sem lætur sér fátt fyrir brjósti brenna. Hún hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins í ár í flokknum Frá kynslóð til kynslóðar fyrir starf sitt með kvennakórum og hvernig hún hefur sameinað margar kynslóðir kvenna innan þeirra. Margrét átti sérstæða æsku og segir þá reynslu hafa mótað sig sem félagsveru. SÖNGKONAN Margrét hefur sungið frá unga aldri og segir allar konur geta sungið ef þær bara þora. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN TVÆR KYNSLÓÐIR Þrjú af fimm börnum Margrétar vinna nú við söngskólann með henni, Sigríður Soffía, Matthildur Guðrún og Maríus Hermann. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Margrét stjórnar tveimur kvenna- kórum fyrir konur 18 ára og eldri, Vox feminae og Cantabile, Stúlknakór Reykjavíkur, sem skiptist í fjóra kóra eftir aldri stúlknanna og dömukór fyrir 16 til 25 ára konur. Auk þess var það hún sem stofnaði kórinn Senjorítur þar sem konur eldri en 60 ára syngja. Að auki rekur hún í félagi við aðra kór- og söngskólann Domus vox þar sem eru nemendur frá fimm ára aldri og upp úr. Skólinn á eigið húsnæði við Laugaveg og er það eina sönghús landsins í eigu kvenna. Meðal verkefna sönghússins er söfnun og varðveisla ljóða og tónlistar eftir íslenskar konur í gegnum aldirnar auk þess sem kórarnir fá gjarnan íslensk tón- skáld af kvenkyni til að semja fyrir sig bæði tónlist og texta. FRÁ KYNSLÓÐ TIL KYNSLÓÐAR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.