Fréttablaðið - 18.05.2013, Síða 40
KYNNING − AUGLÝSINGÚtskrift LAUGARDAGUR 18. MAÍ 20132
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Kost ir hei lbr igðis-verkfræði eru fjöl-breytt viðfangsefni
og hversu ólík svið tengjast
henni við úrlausnir verk-
efna. Ég get því vel skilið að
hún sé ofarlega á lista bestu
starfa því þar er mikil þróun
í tækni og einstök tækifæri
til að bæta lífskjör einstak-
linga sem ekki var mögu-
leiki á áður,“ segir Sigrún
Björk Sævarsdóttir, sem út-
skrifaðist frá Háskólanum í
Reykjavík sem heilbrigðis-
verkfræðingur í fyrra.
„Á útskriftardaginn var
ég gífurlega hamingju-
söm. Fyrstu þrjú árin
höfðu liðið ótrúlega hratt
og ég átti erfitt með að
trúa að þeim áfanga væri
lokið, því síðustu tvö árin
felast í frekari sérhæfingu.“
Sigrún hafði aldrei heyrt um heilbrigðis-
verkfræði þegar námið vakti athygli hennar á
háskóladeginum 2007. „Heilbrigðisverkfræði er
nýleg grein innan verkfræðinnar og sérstaklega
hér á landi. Ég hafði alltaf haft mikinn áhuga
á stærðfræði, eðlisfræði og lífeðlisfræði, sem
eru einmitt undirstöðugreinar heilbrigðis-
verkfræðinnar, og þótti spennandi hvernig
hægt væri að nýta verkfræðilegar aðferðir til
að leysa hin ýmsu vandamál mannslíkamans.“
Að sögn Sigrúnar var námið afar krefjandi
og skemmtilegt. „Mér þótti
spennandi að kljást við
raunveruleg verkefni í sam-
vinnu við sjúkraþjálfara á
Grensás og fór í hálft ár til
Danmerkur í lærdómsríkt
skiptinám við DTU.“
Eftir útskrift hlaut Sig-
rún styrk Nýsköpunarsjóðs
námsmanna hjá Rannís
fyrir verkefnið Notkun þrí-
víddarmódela og staðsetn-
ingartækja við undirbún-
ing skurðaðgerða á höfði.
„Verkefnið var virkilega
spennandi og fékk góðar
undirtektir. Það var tilnefnt
til Nýsköpunarverðlauna
forseta Íslands í ár og ég sé
fyrir mér að halda áfram
með það. Í framtíðinni vil ég
vera í krefjandi starfi með
góðu samstarfsfólki.“
Sigrún ætlar í áframhaldandi nám og
hefur því ekki sóst eftir framtíðarstarfi.
„Ég hef heyrt að þeir sem eru með verk-
fræðilega menntun og í atvinnuleit eigi
erfitt með að fá vinnu í dag,“ segir hún.
Eftir útskrift hefur Sigrún verið í fullu námi
við Söngskólann í Reykjavík. „Ég hef alltaf
verið tón elsk og byrjaði að æfa á píanó sex ára,
þverflautu átta ára og hóf söngnám fjórtán ára.
Bæði fög heilla mig og erfitt er að gera upp á
milli en ég tel gefa gott jafnvægi í lífinu að vera
í verkfræði og listum.“
Sigrún útskrifaðist úr heilbrigðisverkfræði
frá HR í fyrra og lýkur í vor 8. stigi í klass-
ískum söng og 6. stigi í píanóleik.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Víst er ég farin að f inna f yrir álag-inu og á hverjum
degi er tímaþrýstingur á
skilum frétta auk press-
unnar við að leggja störf
sín á borð almennings og
hafa hugfast að koma fram
samkvæmt siðareglum
blaðamanna. Ekki bætir
úr mannekla á vinnu-
stöðum blaða- og frétta-
manna og lítill tími til að
kafa til botns í málum. Það
getur verið erfitt fyrir þá
sem búa yfir sannleiksþrá
og sterkri réttlætiskennd,“
segir Alma Ómarsdóttir
sem í júní útskrifast með
meistaragráðu í blaða- og
fréttamennsku frá Háskóla
Íslands.
„Mig hefur lengi langað
að starfa í fjölmiðlum en
fór fyrst í Kennaraháskólann og varð kenn-
ari. Fjölmiðladraumurinn kallaði þó alltaf
á mig en feimni hélt aftur af mér því starf í
fjölmiðlum er mjög opinbert. Með auknum
aldri og þroska jókst mér svo kjarkur til að
slá til og drífa mig í nám,“ segir Alma, sem
er yngsta dóttir Ómars Ragnarssonar og
systir Láru og Þorfinns Ómarsbarna sem
einnig eru blaða- og fréttamenn.
„Ætli fréttamannabakterían blundi ekki
í genum fjölskyldunnar?“ veltir Alma fyrir
sér. „Vissulega dróst ég
inn í umræðuna og fékk
áhuga á fréttum en samt
dró úr mér að feta í fótspor
pabba og ég vildi gera
mitt. Hitt virtist þó óum-
flýjanlegt eins og komið
hefur á daginn,“ segir hún
og hlær.
Fjórir útskrifast með
Ölmu sem ein hefur fengið
vinnu og starfar við af-
leysingar hjá RÚV í sumar.
„Við vissum að at-
vinnumöguleikar f jöl-
miðlafólks eru verulega
ótraustir en maður lætur
það ekki aftra sér og með
dugnaði og áhuga getur
maður sennilega allt-
af fundið sér eitthvað
að gera. Alls sóttu 200
manns um sumarstarf
hjá RÚV og þótt ég hafi
nú lokið meistaragráðu í fræðunum fór ég í
sama pott og allir hinir og áframhaldandi
fréttamannapróf og prufulestur. Tekið var
skýrt fram að ég hefði eingöngu komist inn
á eigin verðleikum og það var góð tilfinn-
ing,“ segir Alma, sem kann ekki að fljúga
flugvél eins og faðir hennar.
„Ég verð því kannski ekki jafn oft fyrst
með fréttirnar eins og pabbi en við deilum
sama áhuga á fólki og þykir jafn gaman að
segja af því sögur sem eiga erindi.“
Útskrifaðar í besta og versta starfið
Nýlega var birtur listi yfir bestu og verstu störfin með tilliti til launa, álags og starfsmöguleika. Í næstefsta sæti yfir bestu störfin er
heilbrigðisverkfræði en blaðamennska þykir með allra verstu störfum. Alma Ómarsdóttir útskrifast úr blaða- og fréttamennsku frá
HÍ í júní en Sigrún Björk Sævarsdóttir útskrifaðist sem heilbrigðisverkfræðingur frá HR í fyrra.
Alma segir mikið álag á fjölmiðlafólki en
mismunandi sé hvernig fólk upplifi álag.
Sumir vinni best undir pressu en aðrir
þrífist betur í fjölmiðlaumhverfi sem ekki
krefst daglegra skila. MYND/VALLI
A4 Skeifunni 17 / A4 Smáratorgi 1 / A4 Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði
A4 Dalsbraut 1, Akureyri / A4 Miðvangi 13, Egilsstöðum / A4 Austurvegi 65, Selfossi
Flugtaska
50 x 40 x 19 sm
-15%
Verð áður 29.900,-
19.399,- -30%4.599,-Verð áður 6.590,-
Allar Samsonite töskur
með 15% afslætti í maíGefðu góða
útskriftargjöf
frá Samsonite
-35%