Fréttablaðið - 18.05.2013, Page 94
18. maí 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 58
„Þetta er hjólasprettreið og keppt
er í tveimur flokkum; 15 kílómetra
leið sem nefnist Fransbrauð og 30
kílómetra leið sem kallast Rúg-
brauð,“ segir Böðvar Guðjónsson,
talsmaður Kex hostels, um sprett-
reið sem farin verður þann 15. júní.
Hjólað verður um Skuggahverfið í
Reykjavík og keppt í kvenna- og
karlaflokki.
Kex hostel, Kría Cycles, Reið-
hjólaverzlunin Berlin og fleiri
aðilar standa að sprettreiðinni og
hjólað verður sem leið liggur frá
Barónsstíg, eftir Skúlagötu og eftir
Hverfisgötunni aftur að upphafs-
punkti. Hringurinn er um 1,5 kíló-
metri að lengd og þurfa keppendur
að fara hann nokkrum sinnum til
að ná tilætluðum kílómetrafjölda.
„Þótt keppnin sé stíluð inn á
fólk sem stundar hjólreiðar og er
á svokölluðum fishjólum, þá geta
allir tekið þátt,“ segir Böðvar,
sem hyggur sjálfur á þátttöku.
„Ég er ekki mikill hjólreiðamaður
en á það til að taka sprettinn inn á
milli. Ég treysti mér fullkomlega
til að hjóla fimmtán kílómetrana
og ætla að gera það.“
Fatahönnuðurinn Guðmundur
Jörundsson hannar sigurverð-
launin sem verða fallegar treyj-
ur. Að keppni lokinni verður sleg-
ið til veislu í Vitagarðinum sem er
aftan við Kex hostel. Skráning í
keppnina hófst í gær og fer fram
á Kexinu og vefsíðunni Kexland.
is.
- sm
Sprettreið um hverfi ð
Fer fram í fyrsta sinn í miðbæ Reykjavíkur í sumar.
HJÓLAMÓT
Böðvar
Guðjónsson,
talsmaður
Kex hostels,
ætlar sjálfur
að taka þátt
í sprettreið
sem fram fer
í júní.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Gaman í
Bulsupartíi
Boðið var í Bulsupartí á Kexi hosteli í vikunni. Á
boðstólum voru grillaðar Bulsur, sem eru græn-
metispylsur sem tónlistarhjónin Svavar Pétur
Eysteinsson og Berglind Häsler eru að setja á markað.
VIÐ GRILLIÐ Svavar Pétur Eysteinsson grillaði Bulsur af miklum myndarskap ofan í
gestina. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
GÓMSÆTT Vaskó og Víðir gæddu sér á
Bulsunum.
FEÐGIN Jóhann Ágúst Jóhannsson
mætti með dóttur sína í partíið.
FLEX OG INGI Flex Árnason og Ingi
Rafn smökkuðu Bulsurnar.
FENGU SÉR BULSUR Sunna og Kitta
voru á meðal gesta.
TÖLVUNARFRÆÐI
LOKAVERKEFNI NEMENDA
Verið velkomin á kynningar á BSc-lokaverkefnum nemenda tölvunarfræðideildar HR
þriðjudaginn 21. maí og miðvikudaginn 22. maí kl. 9:00–11:15.
hr.is
Lokaverkefni
iGos
Sales Configurator for Annata IDMS on Windows 8
Crest Explorer
Road Runner
Námsefnishluti í nemenda- og kennaravef Innu
mPOS fyrir iOS
Verkvaki
Mobile Mechanic
Tempo Portfolio
Nýtt vefviðmót fyrir Men&Mice Suite
Í samstarfi við
Nutty Nerds
Annata
CCP
Nova
Advania
Handpoint ehf.
LEDA
Annata
TM Software
Menn & Mýs
Dags.
21. maí
21. maí
21. maí
21. maí
21. maí
21. maí
22. maí
22. maí
22. maí
22. maí
Tími
09:00
09:45
10:30
11:15
13:00
13:45
09:00
09:45
10:30
11:15
Stofa
M104
M105
M104
M105
M104
M105
M104
M105
M104
M105
ALLIR VELKOMNIR.
Hvar: Háskólanum í Reykjavík, Menntavegi 1.