Fréttablaðið - 18.05.2013, Page 110

Fréttablaðið - 18.05.2013, Page 110
18. maí 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 74 „Auðvitað á þetta ekki að gerast,“ segir tónlistarmaðurinn og mið- borgarstjórinn Jakob Frímann Magnússon. Hinn heimsfrægi rappari Busta Rhymes notaði stef úr gömlu lagi hans, Burlesque in Barcelona, í lagi sínu, Doin´It Again, án þess að ráðfæra sig fyrst við höfundinn. Fréttablaðinu var bent á líkindi laganna tveggja og Jakob Frí- mann, sem er formaður STEFs, sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar, kannast vel við málið. Aðspurður segist hann ætla að sýna gott fordæmi og leita rétt- ar síns. Hann ætlar að hafa sam- band við bandarísku höfundar- réttarsamtökin ASCAP, sem hann tilheyrir, og biðja þau um að kíkja á málið fyrir sig. „Þetta er ekki efst á forgangslistanum mínum en þetta er eitthvað sem mér ber að gera, meðal annars sem formanni STEFs, að láta ekki svona yfir mig ganga.“ Burlesque in Barcelona kom út á fyrstu plötu hans hjá bandarísku stórútgáfunni Warner Brothers, Special Treatment, árið 1979. „Það var samið í Barselóna eftir heim- sókn á mjög eftirminnilegan bur- lesque-stað þar sem dansmeyjarn- ar voru allar á níræðisaldri,“ segir hann, en stef úr laginu hefur áður verið notað af bandaríska rapparanum Hi-Tek. Lag hans hét Round and Round, kom út í byrjun síðasta áratugar og hljómaði til að mynda í kvik- myndinni How High. Í það skiptið gerði Jakob Frí- mann ekkert í mál- inu en ætlar núna að leita réttar síns, hvort sem eitt- hvað kemur út úr því eður ei. „Þetta er frumskógur og það getur verið flókið og dýrt að elta svona uppi. Þetta hefur verið „trend“ hjá hipphopp- urum að taka bræðings- tónlist frá 8. og 9. áratugnum og bræða hana inn í lúppur sínar og heljarbít öll. Síðan er það Busta sem tekur þetta og útfærir það sem Hi Tek hafði áður gert.“ Þrátt fyrir að hann ætli að kanna réttarstöðu sína segir hann að Busta Rhymes geti mögulega bjargað eigin skinni með einu skil- yrði: „Ætli ég myndi ekki sleppa „Rímna-Bústa“ við skrekkinn ef hann myndi ryðja út úr sér rím- unni á eins árs afmæli dóttur minnar í ágúst næstkomandi. En svona má aldrei gera án samráðs við höfund.“ freyr@frettabladid.is Busta Rhymes notaði lag Jakobs án leyfi s Jakob Frímann Magnússon ætlar að hafa samband við bandarísku höfundar- réttarsamtökin ASCAP vegna notkunar Rhymes á laginu Burlesque in Barcelona. Jakob Frímann man vel eftir höfundarréttarmáli The Rolling Stones gegn bresku hljómsveitinni The Verve, sem notaði stef rokkaranna í laginu Bittersweet Symphony án þess að biðja fyrst um leyfi. „Það gerði hljómsveitina gjaldþrota en þeir eru nú mun harðari í horn að taka, Mick Jagger og Keith Richards, en nokkurn tímann Kobbi Magg. Það blundar nefnilega ríkt í mér borgfirski sveitamaðurinn sem er afar seinþreyttur til vandræða.“ Ekki eins harður og Jagger og Richards JAKOB „BÖSTAR“ RHYMES Jakob Frímann Magnússon ætlar að hafa samband við bandarísku höfundarréttarsamtökin ASCAP. Busta Rhymes notaði stef úr Burlesque in Barcelona í lagi sínu Doin´It Again. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FARTÖLVU JOHNS GRANT STOLIÐ Bandaríski tónlistarmaðurinn og Íslandsvinurinn John Grant er með böggum hildar eftir að fartölvunni hans var stolið eftir tónleika hans í Brighton á Englandi. Hinn vinsæli Ásgeir Trausti hefur einmitt hitað upp fyrir hann á tónleikaferð hans, auk þess sem íslenskir hljóðfæraleikarar spila með Grant. Á Facebook-síðu sinni segir hann „allt sitt líf“ vera í tölvunni og hann trúi því ekki að hann hafi lent í þessu. - fb STEFNIR Í TÍSTMET Íslandsmetið í tísti verður eflaust bætt á Twitter. 950 Íslendingar tístu 5.250 sinnum í undankeppni Euro- vision þegar Eyþór Ingi söng. Samanlagt hefur 8.500 sinnum verið tíst um Eurovision af 1.230 Íslendingum um báðar undan- keppnirnar. Í fyrra tístu 1.100 Íslend- ingar, þar á meðal sjónvarpskonan Margrét Erla Maack, 7.400 sinnum í lokaúrslit- unum. - fb *P re nt m ið la kö nn un C ap ac en t ok tó be r– de se m be r 2 01 2 – hö fu ðb or ga rs væ ði 2 5- 54 á ra Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.* Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu. Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn á heimilin. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU „Það bókstaflega datt af mér andlitið þegar ég sá hver hafði skrifað á blaðið,“ segir blaðamaðurinn Jón Agnar Ólason en hann fékk afmæliskveðju frá átrúnaðargoði sínu, þýska knattspyrnumanninum Marco van Basten, er hann fagnaði 40 ára afmæli sínu í vikunni. Jón Agnar hefur verið aðdáandi knattspyrnukapp- ans síðan hann var lítill pjakkur og segir fáa jafn flinka á vellinum og hann. Van Basten er nú þjálfari íslenska landsliðsmannsins Alfreðs Finnbogasonar hjá hollenska liðinu Heerenveen. „Ég fékk umslag sent til mín upp í vinnu sem innihélt áritaða mynd af Alfreð og tók eftir litlum samanbrotnum miða þar sem stóð „Ég fékk kónginn til að skrifa til þín kveðju,“ segir Jón en á miðanum stóð: „Til hamingju með 40 ára afmælið Jón“ ásamt eiginhandaráritun van Basten. „Vinnufélagarnir hlógu að mér og spurði hvort ég væri að gráta þegar ég las miðann. Ég viðurkenni að ég átti mjög erfitt með að halda aftur af tilfinning- um mínum,“ segir Jón Agnar, sem kann Alfreð bestu þakkir fyrir. „Þetta er greinilega eðaldrengur sem á eftir að gera góða hluti í framtíðinni. Við þekkjumst ekki persónulega en hann vissi af áhuga mínum á van Basten. Ég var fljótur að þakka honum fyrir að gera afmælisdaginn ógleymanlegan.“ - áp Fékk kveðju frá Van Basten Alfreð Finnboga sá til þess að fertugsafmæli Jóns Agnars varð ógleymanlegt. 277 voru mörkin sem van Basten skoraði á sínum fótboltaferli í liðunum Ajax, AC Milan og hollenska landsliðinu. Í SKÝJUNUM Jón Agnar Ólason missti andlitið þegar hann fékk afmæliskveðju frá átrúnaðargoði sínu, Marco van Basten. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL „Í dag laðast ég að karlmönnum en ef ég vakna upp einn daginn og laðast að konum vil ég geta gert það í friði því þetta er mitt líf og mín ákvörðun.“ ÞESSI UMMÆLI LEIK- KONUNNAR ZOE SALDANA Í FORSÍÐUVIÐ- TALI VIÐ BLAÐIÐ ALLURE VÖKTU ATHYGLI Í VIKUNNI. DORRIT Í BIÐRÖÐ Á GATWICK Forsetafrúin Dorrit Moussaieff, fagnaði 10 ára brúðkaupsafmæli sínu og Ólafs Ragnars Grímssonar, þann 14. maí síðastliðinn. Dorrit var stödd í London um morguninn og átti pantað flug með WOW Air frá Gat- wick til Íslands um miðjan dag. Ekki vildi þó betur til en svo að hún þurfti að bíða í einn og hálfan klukkutíma í röð til að fá að rita sig inn. Hún var þó hin rólegasta og spjallaði í símann á meðan hún beið eins og aðrir. Vélin lenti á réttum tíma í Keflavík og hjónakornin hafa því náð að eyða kvöldinu saman á þessum stóra degi í lífi þeirra en Ólafur Ragnar varð einnig sjötugur þennan dag. - sv
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.