Fréttablaðið - 22.08.2013, Side 2
22. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
FRAMKVÆMDIR Burðarvirki
tveggja brúa yfir Elliðarárósa
á nyrsta odda Geirsnefs eru nú
risin og gnæfa átján metra yfir
umhverfi sitt.
Brýrnar eru hluti af nýrri
göngu- og hjólaleið yfir Elliðaár.
Að því er segir í frétt frá borginni
er þessi leið styttri, öruggari og
þægilegri en núverandi leiðir.
Brýrnar séu áberandi og því hafi
áhersla verið lögð á að prýði væri
af þeim. Nýja leiðin verður tilbúin
í september. Farið var eftir tíma-
mörkum frá Veiðimálastofnun til
að trufla ekki laxagengd.
- gar
Burðarvirki tveggja göngu- og hjólabrúa yfir Elliðaárósa komin á sinn stað:
Nýjar brýr taka nú á sig mynd
ÁTJÁN METRAR Í LOFT UPP Nýju
brýrnar við Elliðaárósa gnæfa hátt yfir
umhverfi sitt.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ALÞINGI Tæplega 80% svarenda í
könnun Félagsvísinda stofnunar
Háskóla Íslands á trausti til
Alþingis segjast vantreysta þingi
vegna samskiptamáta þingmanna.
14% segjast treysta Alþingi. Könn-
unin var kynnt á þingi í gær. Þar
kom fram að vantraustið beindist
ekki að stofnuninni sjálfri heldur
frekar hegðun þingmanna. Þannig
kom fram að fólki fyndist þing-
menn sýna hver öðrum virðingar-
leysi og standa í sífelldu óþarfa
rifrildi og „skítkasti“ á kostnað
málefnalegrar umræðu og sam-
vinnu.
Þá sögðu 72% svarenda van-
traust þeirra beinast að vinnulagi
þingmanna. Niðurstöður sýna að
fólki þyki forgangsröðun á þingi
röng og að þingmenn hlusti ekki
á almenning og séu þar af leið-
andi ekki í nægilegum tengslum
við fólkið í landinu. Þá þykir
vinnulag á þingi einnig einkenn-
ast af aðgerða- og getuleysi þing-
manna til að fylgja málum eftir
og klára. Tekið var 1.200 manna
einfalt tilviljunarúrtak úr þjóð-
skrá. Könnunin var framkvæmd í
febrúar og mars síðastliðnum. - vg
Hegðun alþingismanna og forgangsröðun dregur úr trausti á Alþingi:
Vantreysta þingi út af skítkasti
ALÞINGI Samskipti þingmanna eru
vandamál að mati kjósenda.
Var fæðingin sársaukafull?
„Ég er enn í miðjum hríðum. Þannig
að svarið er líklega já.“
Ragnar Bragason leikstjóri gekk með hug-
myndina að leikritinu Óskasteinn í tuttugu
ár. Leikritið verður ekki frumsýnt í Borgar-
leikhúsinu fyrr en eftir áramót.
BRETLAND David Cameron, for-
sætisráðherra Bretlands, þrýsti á
breska dagblaðið Guardian um að
blaðamenn eyddu upplýsingum sem
borist höfðu frá bandaríska upp-
ljóstraranum Edward Snowden.
Bresk stjórnvöld hafa staðfest
þetta. Blaðamenn Guardian
segjast hafa eytt upplýsingunum
en einungis vegna þess að þeir áttu
afrit af þeim annars staðar.
Alan Rusbridger, ritstjóri
Guardian, skýrði frá þessu í
beinu framhaldi af níu tíma yfir-
heyrslum yfir David Miranda,
kærasta blaðamannsins Glenn
Greenwald, á Heathrow-flugvelli
um síðustu helgi. - gb
Cameron lét eyða gögnum:
Blaðamenn
beittir þrýstingi
LÖGREGLUMÁL Loka þurfti akrein á Sæbrautinni rétt fyrir fjögur í gær
vegna kranabíls sem festist undir Elliðaárbrúnni.
Bílinn var á leið suður Reykjanesbrautina, rak kranann í brúar-
gólfið og sat svo fastur undir brúnni í dágóðan tíma. Að sögn sjónar-
votta var bíllinn töluvert skemmdur og lak úr honum olía.
Umferð um Sæbrautina gekk því heldur hægt á meðan unnið var að
hreinsun en akreinin var opnuð að nýju um klukkustund síðar. - ka
Tafir urðu á umferð eftir að kranabílstjóri misreiknaði sig:
Kranabíll fastur undir Elliðaárbrú
TAFIR Á UMFERÐ Sæbraut var seinfær frá Holtavegi að Elliðaárbrú til suðurs í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SMYGL Tveir Íslendingar á
þrítugs aldri voru handteknir
á flugvellinum í Melbourne á
þriðjudag og ákærðir fyrir að
reyna að smygla um þremur
kílóum af kókaíni inn í landið.
Mennirnir voru leiddir fyrir
dómara í gær og var ræðismaður
Íslands viðstaddur ásamt túlki.
Ástralski fréttavefurinn The
Age greinir frá því að íslensk
kona, sem starfar sem kennari,
hafi aðstoðað sem túlkur.
Mennirnir, sem ekki eru búsett-
ir í Ástralíu, sitja í fangelsi þar til
þeir þurfa að mæta aftur fyrir rétt
í nóvember. Hvorugur fór fram á
lausn gegn tryggingu. - hva
Íslendingar teknir fastir:
Smygluðu kóka-
íni í Melbourne
SKÓLAMÁL Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu hefur ekki fengið
tilkynningu um meint ofbeldi á
leikskólanum 101 á Bræðraborgar-
stíg inn á sitt borð. Málið er í könn-
un hjá Barnaverndar nefnd en þar
fást þau svör að málið verði kannað
til hlítar, svo verður málinu hugs-
anlega vísað áfram til lögreglu. Það
er þó ekki víst að málið rati þá leið
að lokum.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri
Barnaverndarstofu segir að þegar
ásakanir eru uppi um jafn víðtæk
ofbeldisbrot og í þessu máli, sé
hugsanlega skynsamlegt að tryggja
að farið sé að öllum reglum réttar-
ríkisins um málsmeðferð um rann-
sókn sakamála.
„Til hliðsjónar af því held ég að
það hefði verið réttast að lögreglan
hefði verið kölluð til í upphafi,“
bætir Bragi við, en undirstrikar að
með þessum orðum sé hann ekki að
gagnrýna Barnavernd Reykjavíkur
fyrir störf sín.
Tveir starfsmenn hafa verið
sendir í leyfi vegna gruns um að
hafa beitt börnin, sem eru á aldr-
inum níu mánaða til eins og hálfs
árs, ofbeldi. Það voru sumarstarfs-
menn sem tóku upp myndbönd og
afhentu barnavernd. Á Vísi í gær
kom meðal annars fram í sam-
tali við annan sumarstarfsmann-
inn að þeir hefðu tekið upp þrjú til
fjögur myndbönd sem sýni „slæmt“
ofbeldi gegn börnum. Þar á meðal
sé upptaka af starfsmanni leik-
skólans að rassskella barn.
Bragi segir að málið sé afar ólíkt
þeim sem upp hafa komið áður.
Komið hafi upp tilvik þar sem ein-
staklingar eru grunaðir um ofbeldi
og þá er þeim vísað frá störfum
samstundis. Í þessu tilfelli er þó
heilli stofnun lokað. „Og það bendir
til þess að málið sé þannig vaxið
að það sé grunur um kerfisbundið
ofbeldi gegn börnum,“ segir Bragi.
Halldóra Gunnarsdóttir,
framkvæmdastjóri Barna-
verndar Reykjavíkur, segir
í samtali við Fréttablaðið að
stofnunin sé að kanna málið
og að ekki hafi þótt ástæða
til þess að tilkynna málið til
lögreglu strax. Það verð-
ur ekki gert nema rök-
studdur grunur sé
uppi um að starfs-
mennirnir hafi
sannarlega
beitt börnin
ofbeldi. Halldóra veit ekki til þess
að foreldrar hafi sjálfir kært málið
til lögreglu, en bætir við að þeim
sé að sjálfsögðu frjálst að gera það.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu hefur ekkert foreldri kært
málið þangað. Þar á bæ fengust
einnig þau svör að beðið væri
eftir niðurstöðum könnunar
Barnaverndarnefndar um það
hvort sakamálarannsókn hæfist
á málinu. valurg@365.is
Leikskólamálið ekki
á borði lögreglunnar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki hafið rannsókn á meintu ofbeldi á
101 leikskóla á Bræðraborgarstíg. Forstjóri Barnaverndarstofu segir að þegar svo
alvarlega áskanir séu uppi sé hugsanlega skynsamlegra að fá lögreglu inn í málið.
LEIKSKÓLINN 101 Forstjóri Barnaverndarstofu segir hugsanlega heppilegra að lög-
regla taki strax upp rannsókn á meintu ofbeldi á leikskólanum 101. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BRAGI GUÐBRANDSSON
Forstjóri Barnaverndar-
stofu segir að það væri
hugsanlega heppilegra
að lögregla tæki strax á
málinu.
MALASÍA Að minnsta kosti 37
létust þegar rúta ók út af í fjall-
lendi í Malasíu í gær. Að sögn
Politiken voru 53 farþegar um
borð í rútunni. Margir þeirra eru
sagðir mjög alvarlega slasaðir.
Rútan er sögð hafa verið á leið
niður brekku þegar bílstjórinn
missti stjórn á henni í krappri
beygju. Við það hrapaði rútan
fram af 70 metra háu bjargi.
Slysið er sagt vera eitt alvar-
legasta umferðarslys í sögu
landsins. - ka
Eitt versta rútuslys Malasíu:
Ók fram af 70
metra bjargi
SPURNING DAGSINS
GÆÐAVÖRUR FYRIR
BÍLINN Á GÓÐU VERÐI!
Landsins mesta úrval bílavara
ÞURRKUBLÖÐ
Í flestar gerðir fólks- og atvinnubifreiða.
Gæði, reynsla og gott verð!
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9, Funahöfða 13
KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata
HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7
AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
www.bilanaust.is
EX
PO
-
w
w
w
.ex
po
.is
VERSLANIR
SJÖ
MEÐ MIKIÐ
VÖRUÚRVAL