Fréttablaðið - 22.08.2013, Page 8

Fréttablaðið - 22.08.2013, Page 8
22. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 1.175 börn í varð- hald í fyrra 1NOREGUR Alls voru 1.175 ófullveðja ungmenni hand- tekin og færð í fangageymslur í Noregi í fyrra, að því er fram kemur í frétt á vef Aftonbladet. 78 þeirra voru fimmtán ára, 322 voru sextán ára og 775 voru sautján ára. Almennt er ætlast til þess að lögreglan færi börn til barnaverndaryfirvalda en fyrr- nefndur háttur er þó oft hafður á, í trássi við aðfinnslur meðal annars frá norsku lögmannasam- tökunum og Evrópuráðinu. Ár- lega eru 70-80 norsk ungmenni undir lögaldri dæmd í fangelsi, þvert á ákvæði Barnasáttmála SÞ. Trúður fékk á túlann í teiti 2 DANMÖRK Kona frá Horsens hefur verið ákærð fyrir líkamsárás eftir að hafa kýlt trúð í götuveislu um liðna helgi. Drengur einn hafði gerst fullágengur við trúðinn og hvað eftir annað reynt að stela blöðrum úr vasa hans. Þegar þolinmæðina þvarr loks leiddi trúðurinn piltinn til móður hans, sem brást ókvæða við afskiptunum. Skipaði hún trúðnum að hypja sig og sló hann í tvígang í andlitið. Kærur gengu á víxl þar til lögreglan ákvað að ákæra konuna. Klúðraði umskurðum 3 SVÍÞJÓÐ Fjórir ungir menn hið minnsta hafa leitað á sjúkrahús í Svíþjóð í sumar vegna sýkinga og blæðinga eftir að hafa áður gengist undir um- skurð. Frá þessu segir á vef Dagens Nyheter. Læknirinn sem framkvæmdi um- skurðinn var kærður til eftirlitsaðila. Hann er fyrir nokkru kominn á eftirlaun og er meðal annars grunaður um að hafa ekki deyft mennina nægilega vel fyrir aðgerðirnar. Málinu verður fylgt eftir á næstunni en læknirinn sagði í samtali við fjölmiðla að hann hefði endurskoðað vinnubrögð sín eftir að kvartanirnar voru lagðar fram. E N N E M M / S ÍA / N M 5 8 8 5 3 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Bílahúsið Reykjanesbæ www.bilahusid.is 421 8808 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 NORÐURLÖND 1 2 3 Jörð skelfur í Mexíkó BORINN Í GULLSTÓL Maður sem meiddist á fæti þegar hann flúði byggingu í Mexíkóborg í gær nýtur hér aðstoðar hjálpar- starfsmanna. Þúsundir þustu út á götur borgarinnar og hótelbyggingar voru rýmdar þegar jarðskjálfti upp á 6,2 á Richter reið yfir undan ströndum Mexíkó, um 100 kílómetra austur af hafnarborginni Akapúlkó. Stórhýsi sveifluðust til í höfuðborginni og umferðarljós hættu að virka þannig að umferðarhnútar mynduðust. Nokkrar skemmdir urðu á byggingum og meðal annars komu sprungur í veggi háskólans í Akapúlkó og steypt hlið að herstöð hrundi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.