Fréttablaðið - 22.08.2013, Side 24
22. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 24
AF NETINU
Brottkastið og
orðhengilshátturinn
Björn Valur Gíslason er í bankaráði
Seðlabankans. Segist ekki vera í
stjórn hans, hugsanlega vegna þess
að orðin ráð og stjórn hljóma mis-
jafnt. Samt er þetta sami hluturinn.
Björn Valur er í stjórn Seðlabank-
ans, þótt hann segi annað. Orð-
hengilshátturinn er dæmigerður
í senn fyrir öngþveitið í umræðu
pólitíkusa og fyrir siðblindu þeirra,
sem lengst ganga. Skynsamlegt
væri af Steingrími Sigfússyni að
losa Katrínu Jakobsdóttur við þessa
leif af sinni formannstíð. Björn
Valdur er bara brottkast. Hann mun
valda Vinstri grænum meiri vanda,
leiki hann áfram lausum hala í
skrifum í umboði flokksins.
http://www.jonas.is
Jónas Kristjánsson
Þurfa að vanda sig
[Sinfónían] hefur átt í dálítilli krísu
eftir fyrstu glöðu dagana í Hörpu.
Það er annað að spila í Háskóla-
bíói en í 1700 manna sal þar sem
heyrist hver nóta. Áhorfendum
hefur fjölgað, áhorfendahópurinn
er orðinn yngri og fjölbreyttari.
Það er mjög gott. En það hefur
verið ljóst nokkra hríð að hljóm-
sveitin og aðalstjórnandi hennar,
Ilan Volkov, eiga ekki samleið.
Hljómsveitinni og stjórnandanum
lyndir einfaldlega ekki.
http://eyjan.pressan.is/silfuregils
Egill Helgason
Ég var ekki einn af þeim
mörgu sem trúðu loforðum
þínum, Sigmundur Davíð, í
aðdraganda kosninganna,
enda erfitt að trúa og
treysta Framsóknar-
flokknum, flokki sem
hampaði mönnum eins
og Finni Ingólfssyni og
Halldóri Ásgrímssyni –
mönnum sem flestir vilja
gleyma.
En þrátt fyrir að ég
hafi ekki trúað fagurgala
þínum, Sigmundur Davíð,
gerðu margir Íslendingar
það, og með honum vannstu ekki
bara stórsigur heldur varð fagur-
galinn þess valdandi að þú fórst alla
leið í stól forsætisráðherra.
Að lok nu leikr it i eft i r
kosningarnar – sem flestir sáu að
var bara lélegur farsi – myndaðirðu
að sjálfsögðu stjórn með Sjálfstæðis-
flokknum, enda þægilegt að hafa
góðan þingmeirihluta og fólk sem
er að mestu leyti sammála þér í
flestum málum. Já, kjósendur sögðu
sitt og umboðið var þitt.
En hvað ætlarðu að gera,
Sigmundur Davíð?
Ætlarðu að fara í sögubækurnar
sem mesti svikari kosningaloforða
Íslandssögunnar? Þar myndirðu
tróna á toppnum í stórum og hræði-
legum hópi, og þar mun þér kannski
bara líða vel. Líkur sækir jú líkan
heim.
Eða ætlarðu raunverulega að
standa við loforð þitt um aðstoð við
mörg bágstödd heimili landsins?
Ertu maður orða þinna? Mér þætti
gaman að sjá það, því sjálfur er ég
láglaunamaður sem á í erfiðleikum
með að ná endum saman um mán-
aðamót, og berst við að halda minni
íbúð. Ætlarðu að gera eitthvað fyrir
mig, þótt ég hafi ekki kosið þig?
Byrjun þín sem forsætisráðherra
er sú versta og sorglegasta í sögu
íslenska lýðveldisins, þrátt fyrir að
í þeim efnum sé af nógu að taka. En
batnandi mönnum er jú best að lifa,
og best að klifa aðeins á frösunum –
fall er faraheill, og allt það.
Byrjun þessi fólst í að draga öll
kosningaloforðin í land og kenna
gömlu stjórninni um hversu slæm
staða ríkissjóðs væri; mun verri en
þú áttir von á – þrátt fyrir að
allar tölur væru uppi á borð-
inu og í raun öllum aðgengi-
legar. Nema þér og Bjarna
Ben. Og ekki gleyma því að
flokkum ykkar er hrunið
alfarið að kenna – reyndu ekki einu
sinni að þræta fyrir það – yrði þér
einungis til minnkunar.
En aftur að byrjun þinni: Að sjálf-
sögðu var keyrt í gegnum þingið á
ógnarhraða að gera þá vellauðugu
enn vellauðugari, enda verður að
passa vel upp á kvótafólkið. Það má
auðvitað ekki missa spón úr aski
sínum, þótt barmafullur sé.
En lítið hefur heyrst af loforðinu
um lækkun skulda heimilanna –
bara ekki neitt. Það loforð kom þér,
Sigmundur Davíð, til valda, en ef þú
stendur ekki við það verðurðu ekki
lengi við völd. Almenningur mun sjá
til þess.
Það er kannski ekki skrýtið að
menn eins og þú og Bjarni Ben eigið
erfitt með að samsama ykkur sauð-
svörtum almúganum sem heldur
uppi samfélaginu og bankakerfinu
með hörku og dugnaði þótt lítið sé
eftir í buddunni þegar búið er að
borga af öllu. Þið tveir eruð mold-
ríkir og hafið aldrei þurft að hafa
neitt fyrir lífinu, og þekkið ekki basl
né fjárhagsáhyggjur.
En þótt raunin sé sú er staðan
engu að síður grafalvarleg fyrir
ykkur og ríkisstjórnina. Í margar
aldir voru Íslendingar kúgaðir og
létu margt yfir sig ganga, og gera
því miður enn. Hins vegar breyttist
margt eftir hrun og búsáhaldabylt-
ingin og mótmælin í október 2010
eru gott dæmi um það. Ég er hins
vegar hræddur um að næsta skref
í mótmælum verði töluvert öðru-
vísi en áður, og að við eigum eftir að
horfa upp á mjög harða og jafnvel
blóðuga byltingu, ef þú stendur ekki
við stóru orðin, Sigmundur Davíð.
Sigmundur, hvað
ætlarðu að gera?
Það ríkti gleði í búðum
Hins íslenska náttúru-
fræðifélags í mars síðast-
liðnum þegar undirritaður
var samningur milli ríkis-
ins og Reykjavíkurborgar
um leigu á aðstöðu í
Perlunni fyrir Náttúru-
minjasafn Íslands.
Þarna hi l lt i undir
farsæla lausn á málefnum
safnsins eftir áratugalanga
baráttu. Þessi uppbygging
var liður í fjárfestinga-
áætlun stjórnvalda þar sem
500 m.kr. skyldi varið til hönnunar
og uppsetningar á grunnsýningu
og mótun aðstöðu fyrir safnið í
Perlunni. Í kjölfarið var ráðinn
forstöðumaður sem leiða skyldi
mótun sýningarinnar og starfsemi
safnsins næstu árin.
Málið virtist komið á traustan
grunn eftir langt óvissuástand og
niðurlægingartímabil. Fundinn
hafði verið hagkvæmur og glæsi-
legur staður fyrir safnið og starf-
semi þess, lagður hafði verið
fjárhagslegur grunnur að upp-
byggingu þess og ráðinn hafði
verið öflugur forstöðumaður.
Minna má á að Náttúruminja-
safn skal lögum samkvæmt vera
eitt af höfuðsöfnum þjóðarinnar
við hlið Þjóðminjasafns og Lista-
safns Íslands.
Stefnt var að því að grunnsýning
Náttúruminjasafnsins yrði opnuð
í Perlunni haustið 2014 og hefði
farið vel á því á 125 ára afmæli
Náttúrufræðifélagsins. Sýning-
unni var ætlað að auka vitund
landsmanna um náttúru Íslands,
styðja við náttúrufræðikennslu frá
grunnskólastigi til háskólanáms
og veita aðgang að því ríkulega
fræðsluefni sem til er á vísinda-
stofnunum, náttúruminjasöfnum,
náttúrustofum og þjóðgörðum
landsins. Auk þess er ljóst að
safnið myndi hafa gríðarlegt
aðdráttarafl fyrir ferðamenn.
Hið íslenska náttúrufræðifélag
var stofnað 16. júlí 1889. Megin-
tilgangur þess var „að koma upp
sem fullkomnustu náttúrugripa-
safni á Íslandi“. Því var ætlað
að vera landssafn með aðsetur í
höfuðstað Íslands.
Félagið stofnaði síðan
og rak náttúrugripasafn
í 58 ár á tímabilinu 1889-
1947, en þá var safnið
afhent ríkinu til umsjár
og rekstrar, ásamt vænum
húsbyggingarsjóði, sem
félagið hafði safnað í
áranna rás.
Sett voru lög um
safnið árið 1951 og ríkis-
stofnunin Náttúrugripa-
safn Íslands hóf starf-
semi. Það bjó þó jafnan
við þröngan kost og fram
til 2008 var það í litlu og óhentugu
bráðabirgðahúsnæði við Hlemm.
Þá var safninu lokað og munum
komið fyrir í geymslu.
Þannig standa mál í dag og
staðan er verri en fyrir 120 árum
þegar safnið var í heimahúsi
Benedikts Gröndals, fyrsta for-
manns Náttúrufræðifélagsins og
forstöðumanns safnsins á árunum
1889-1900. Hér er ólíku saman að
jafna við önnur höfuðsöfn lands-
manna sem njóta virðingar og vin-
sælda.
Gott og öflugt náttúruminjasafn
er aðall og stolt hverrar stönd-
ugrar þjóðar og dýrmætur fróð-
leiksbrunnur fyrir þegna og gesti
viðkomandi lands. Í ljósi þess að
Íslendingar byggja atvinnu sína og
líf í landinu á náttúru þess í ríkum
mæli, og ekki síður í ljósi þeirrar
staðreyndar, að langflestir ferða-
menn, sem sækja landið heim,
gera það vegna náttúru þess, er
hneisa að geta ekki boðið lands-
mönnum og ferðalöngum upp á
vandað og veglegt höfuðsafn um
náttúru landsins.
Náttúra Íslands er einstök í
hnattrænu samhengi og okkur
ber siðferðisleg skylda til að
fræða landsmenn og gesti okkar
um hana. Hér er ekki aðeins átt
við jarðfræðilega sérstöðu, ungan
aldur landsins og fjölbreytileika
jarðmyndana, heldur einnig líf-
ríkið, sem hefur mótast af jarð-
fræði og legu landsins og einkenn-
ist af fáum tegundum, en gjarnan
stórum og öflugum stofnum með
fjölbreytileika í lífsháttum og útliti
innan tegunda. Aðstæður sem er
að finna á Íslandi − ung náttúra í
örri þróun og mótun ásamt mynd-
rænni fegurð í stórbrotnu lands-
lagi elds og ísa − eru óvíða annars
staðar á Jörðinni. Þessari nátt-
úrugersemi eigum við að gera
viðeigandi skil með kynningu og
fræðslu í veglegu Náttúruminja-
safni Íslands.
Nú hafa heyrst raddir um að
snúa baki við öllum áformum um
Náttúruminjasafn í Perlunni og
finna því annan stað, helst utan
Reykjavíkur eða jafnvel að reisa
ekkert safn. Það eru ekki góðar
hugmyndir. Í fyrsta lagi stefnir
það öllum uppbyggingaráætlunum
Náttúruminjasafns í óvissu og
framlengir það niðurlægingar-
tímabil sem safnið gengur nú í
gegn um.
Í öðru lagi er vandséð að hag-
kvæmari kostur finnist en í Perl-
unni og þá er átt við fjárhag, skipu-
lag og framkvæmdir. Þar fara
saman hagsmunir ríkis og borgar.
Í þriðja lagi er öruggt að betri
og veglegri staður finnst ekki.
Náttúruminjasafn í Perlunni á
Öskjuhlíð er miðlægt í höfuð-
borginni, í námunda við önnur
höfuðsöfn þjóðarinnar, í ákjósan-
legri nánd við háskólaumhverfið,
á besta stað fyrir ferðamanna-
iðnaðinn og í órofa tengslum
við íslenska náttúru með höfuð-
borgarsvæðið og fjallahring þess
allt um kring og jarðhitann og
nýtingu hans hið næsta sér.
Ég skora á alla sem bera hag
Náttúruminjasafns og íslenskra
náttúrurannsókna fyrir brjósti að
standa saman um áformaða upp-
bygginguna í Perlunni. Þegar upp
verður staðið frá því verki mun
það bera framtíðinni og komandi
kynslóðum hróður allra sem að því
komu.
Náttúruminjasafn í Perlunni –
Besti kosturinn
ÞJÓÐMÁL
Svanur Már
Snorrason
þjónustufulltrúi á
Bókasafni Hafnar-
fj arðar og fyrrv.
ritstj.
➜ Byrjun þín sem
forsætisráðherra er sú
versta og sorglegasta
í sögu íslenska lýð-
veldisins, þrátt fyrir
að í þeim efnum sé af
nógu að taka.
MINJAVERND
Árni Hjartarson,
jarðfræðingur,
formaður Hins
íslenska náttúru-
fræðifélags
➜ Nú hafa heyrst raddir
um að snúa baki við öllum
áformum um Náttúruminja-
safn í Perlunni og fi nna
því annan stað, helst utan
Reykjavíkur eða jafnvel að
reisa ekkert safn. Það eru
ekki góðar hugmyndir.
LOKSINS Á ÍSLANDI
VÖNDUÐ OG FLOTT BARNAFÖT FRÁ APPAMAN FYRIR KRAKKA Á ALDRINUM 0-10
Ævintýraleg opnunartilboð - Úlpur og vesti með 20% afslætti
Bæjarlind 6, Kópavogi Opið: Virka daga kl. 10-18 Laugardaga kl. 12-16Finndu okkur á Facebook – Við erum með skemmtilegan leik í gangi