Fréttablaðið - 22.08.2013, Síða 48
22. ágúst 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 32
Jeppi er drykkjumaður en hann
hefur líka góðar ástæður til
að drekka! Hann er kúgaður
kotbóndi, arðrændur og smáður,
auk þess sem konan hans heldur
fram hjá honum. Þannig hefst
kynningin á Jeppa á Fjalli í nýjum
bæklingi Borgarleikhússins. Jeppi
er sem sagt maður en ekki bíll,
enda var leikritið skrifað löngu
áður en bílar komu til sögunnar og
fyrst sett upp árið 1722. Höfundur-
inn er hinn danski Ludvig Holberg
(1684-1754).
Bragarháttur á þýðingunni
Jeppi á Fjalli verður fyrsta frum-
sýning Borgarleikhússins á nýju
leikári, áformuð í byrjun október,
að sögn Benedikts Erlingssonar.
Hann er leikstjóri og segir um
alveg nýja útgáfu á leikritinu að
ræða, með tónlist og textum eftir
Megas og Braga Valdimar Skúla-
son. „Þannig hefur orðið til ansi
skemmtilegt leikrit með söngvum.
Eða kannski frekar tónleikar með
leiknum atriðum,“ segir hann.
Bragi Valdimar hefur gert nýja
þýðingu á verkinu. „Það er svona
Braga(r)háttur á því,“ segir Bene-
dikt og tekur líka fram að lista-
maðurinn Grétar Reynisson geri
leikmyndina.
Er þetta þá allt annað verk en
hér var sett upp á 6. áratugunum í
Þjóðleikhúsinu og síðar hjá ýmsum
áhugaleikfélögum? „Gamli Jeppi
fær að lifa góðu lífi,“ fullyrðir
Benedikt. „En Jeppi gæti alveg
verið svolítið sósaður rokkari.
Hann er náttúrlega stjórnlaus
fíkill og svo býr hann í ranglátum
heimi og syngur um það, eins og
rokkarar gera.“
Fyrsti alki bókmenntanna
Verk Holbergs er að sjálfsögðu
grunnurinn, að sögn Benedikts.
„Holberg er að meika það í Kaup-
mannahöfn sem rithöfundur og
leikskáld um það bil á þeim tíma
sem kviknar í Kaupmannahöfn
og handritin okkar brenna. Það
er stundum sagt að verk hans
séu upphaf danskra bókmennta
og þau verða til um það leyti
sem okkar bókmenntir eru að
brenna í safninu hans Árna.
Þannig að ég tek upp þráðinn
þar sem ég skildi við hann í
Íslandsklukkunni.“
B e n e d i k t s e g i r f í k n
alkóhólistans hvergi betur lýst í
bókmenntasögunni en í Jeppa á
Fjalli. „Jeppi er fyrsti frægi alki
bókmenntasögunnar en hann er
líka að berjast við óréttlætið.
Hann verður fórnarlamb baróns-
ins sem snýr upp á veröld hans
og dómskerfið verður að leikriti.
Þarna er ótrúlega margt sem á
sér samsvörun í nútímanum,“
segir hann. „Það er svo gaman að
láta gömul leikrit segja sér eitt-
hvað nýtt og satt um eigin tíma.“
Ingvar með nikkuna
Ingvar E. Sigurðsson er í titil-
hlutverkinu. Hann syngur og
spilar á harmóníku, að sögn
Benedikts. „Það er eins og ég segi,
þetta eru tónleikar. Bergþór Páls-
son söngvari er baróninn og hún
Ilmur Kristjánsdóttir er þarna
kasólétt meðvirk eiginkona,
aðstandandi alkóhólista og
engin Al-Anon-samtök komin til
sögunnar. Hún lemur Jeppa sinn
áfram, brjáluð með vöndinn.“
Margir fleiri listamenn koma
við sögu sýningarinnar sem
verður spennandi að sjá. „Við
setjum þetta á 3. október þótt
annað standi í bæklingnum,“
segir Benedikt. „Þetta verk er
leikið á hverju ári einhvers staðar
á Norðurlöndunum en okkar upp-
setning er íslensk 2013 útgáfa.“
gun@frettabladid.is
Jeppi gæti alveg
verið sósaður rokkari
Borgarleikhúsið kynnir verkefni nýs leikárs í dag í litríku blaði. Jeppi á Fjalli
verður fyrsta frumsýning haustsins. Þar er leikrit frá átjándu öld fært í nýjan
búning eins og Benedikt Erlingsson leikstjóri lýsir.
Á ÆFINGU Benedikt og Ingvar E. fara yfir textann á sviði Borgarleikhússins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Þetta er efnisskrá sem er mér
mjög kær,“ segir Edda Erlings-
dóttir píanóleikari um innihald
nýs geisladisks sem kemur út
á menningarnótt. Þar leikur
hún verk eftir Schubert, Liszt,
Schoenberg og Berg. „Það er
dálítið ögrandi að stefna saman
fyrri og seinni Vínarskólum,“
segir hún og útskýrir nánar. „Það
er talað um fyrri Vínar skólann
sem háklassík frá 18. og 19. öld,
og þá sérstaklega Schubert.
Seinni Vínar skólinn tengist
alfarið expressjónisma, sem var
sterk hreyfing í byrjun síðustu
aldar, bæði í málverkum til dæmis
Munks og Kandinskys og svo í
tónlistinni hjá Schoenberg og
hans lærisveinum, eins og Alban
Berg og Anton Webern. Þeir voru
stjörnur í þessari stefnu.“
Edda er með aðalmenn úr báðum
þessum Vínarskólum á nýja
diskinum og tengiliðurinn er
Frans Liszt. „Liszt þróaði smátt og
smátt sínar tónsmíðar fyrir píanó-
ið frá því að vera erfið og krefjandi
verk út í minimalísk verk undir lok
ævinnar sem eru mjög einföld en
merkileg því þau eru að boða nýja
tíma. Segja má að hann hafi vísað
inn í 20. öldina því hans tónmál var
alger bylting á sínum tíma.“
Edda er búsett í París og starfar
sem prófessor í píanóleik við Tón-
listarskólann í Versölum en í til-
efni útgáfunnar mun hún halda tón-
leika í Edinborgarhúsinu á Ísafirði
fimmtudaginn 5. september og í
Salnum sunnudaginn 8. september.
Þetta er sjöundi diskurinn sem
Edda gefur út á 15 árum. Hann
er hljóðritaður á Stokkalæk og 12
Tónar sjá um dreifingu hans hér á
landi. gun@frettabladid.is
Efnisskrá sem
er mér kær
Edda Erlingsdóttir píanóleikari gefur út nýjan disk
á menningarnótt með verkum eft ir Schubert, Liszt,
Schönberg og Berg. Það er sjöundi diskur hennar.
PÍANÓLEIKARINN „Sjö er happatalan mín og þetta er sjöundi diskurinn minn,“
segir Edda Erlendsdóttir.
„Það sem við flytjum er efni disks-
ins Fögur er jörðin. Ljóðin eru úr
bókinni Bréf til næturinnar eftir
hana Kristínu á Hlíð í Lóni en lögin
eftir mig,“ segir Óskar Guðnason
tónlistarmaður um tónleika í Iðnó
á menningarnótt milli sjö og hálf
níu. Sjálfur spilar Óskar undir
söng, ásamt fleiri valinkunnum
tónlistarmönnum. Um sönginn
sjá Arnbjörg Hlíf Valsdóttir og
systurnar Sigríður Sif og Þórdís
Sævarsdætur. „Þær skipta honum
nokkuð á milli sín, taka svona
fjögur lög hver,“ lýsir Óskar.
Á diskinum Fögur er jörðin eru
fimm ný lög og auk þess endur-
útgefin og endurútsett lög af fyrri
diski Óskars, Til næturinnar. Var
hann ekki ánægður með fyrri
diskinn? „Jú, ég var ánægður með
hann sem slíkan. En ljóðin hennar
Kristínar verðskulda bara það
besta. Mér fannst fyrri diskurinn
kannski svolítið falla inn í popp-
útsetningar og ákvað að gera
lögin mýkri og aðeins hugljúfari.
Ég hugsa að þau höfði til fleiri
þannig.“
- gun
Syngja í Iðnó
Arnbjörg Hlíf Valsdóttir og Sigríður Sif og Þórdís
Sævarsdætur fl ytja lög Óskars Guðnasonar við ljóð
Kristínar á Hlíð í Iðnó á menningarnótt frá 19-20.30.
Á ÆFINGU Óskar, Þórdís og Sigríður Sif fara vel með ljóð Kristínar á Hlíð.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Það er svo gaman að
láta gömul leikrit segja sér
eitthvað nýtt og satt um
eigin tíma.
Á stóra sviðinu: Hamlet (jólasýning), Furðulegt háttalag hunds um nótt,
Skálmöld og Der Klang der Offenbarung des Göttlichen, myndlistarverk
fyrir svið eftir Ragnar Kjartansson.
Á Nýja sviðinu: Jeppi á Fjalli, Skoppa og Skrítla eftir Hrefnu Hallgríms-
dóttur, Óskasteinn eftir Ragnar Bragason og Dagbók djasssöngvarans eftir
Val Frey Einarsson.
Á Litla sviðinu: Refurinn, Bláskjár eftir Tyrfing Tyrfingsson og Ferja eftir
Kristínu Marju Baldursdóttur.
Frumsýningar í Borgarleikhúsinu
leikárið 2013-2014
MENNING