Fréttablaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 61
FIMMTUDAGUR 22. ágúst 2013 | MENNING | 45
Denzel Washington telur að móðir sín hafi bjargað sér frá því að
leiðast út í fíkniefnaneyslu og glæpi þegar hann var að alast upp.
„Ég ólst upp í Bronx í New York og var í slæmum félagsskap.
Þrír af strákunum sem ég var í slagtogi með fóru í fangelsi,“
sagði 2-Guns-leikarinn við The Sun. „Ég mætti ekki heldur í
skóla og var smám saman á leiðinni í götuglæpina. Kennari
í skólanum mínum sagði við móður mína: „Hann er gáfaður
strákur, komdu honum í burtu frá þessu“.“
Að sögn hins 58 ára Washington fór einn vina hans í 15 ára
fangelsi og annar lést af völdum eiturlyfja. „Hvað hefði orðið um
mig ef móðir mín hefði ekki verið til staðar? Ég veit það ekki, en
ég væri ekki að lifa því lífi sem ég lifi í dag.“
Faðir hans, séra Denzel Hayes Washington, sá til þess að
sonur sinn stundaði námið af kappi og kæmist í háskóla. „Ég
vildi halda áfram að mennta mig, vegna þess að ég vissi hversu
mikilvægt það var.
Mamma bjargaði Denzel Washington
Móðir leikarans Denzels Washington bjargaði honum frá slæmum félagsskap og grimmum örlögum.
ÁSAMT
MARK
WAHLBERG
Denzel Wash-
ington leikur
á móti Mark
Wahlberg í 2
Guns.
NORDICPHOTOS/
GETTY
„Act Alone verður áfram á Suður-
eyri,“ segir Elfar Logi Hannes-
son, einn skipuleggjenda einleiks-
hátíðarinnar Act Alone. Hátíðin
var haldin í tíunda sinn fyrr í
mánuðinum.
Fjöldi listamanna lagði leið sína
vestur á firði til þess að vera við-
statt og taka þátt í hátíðinni. Aldrei
hafa verið fleiri gestir á hátíðinni
þar sem gestafjöldi fór yfir 2.000
manns. Einhverjar raddir voru á
lofti um að hátíðin hefði sprengt
utan af sér og því þyrfti jafnvel
að færa hátíðina til þess að geta
rúmað fleira fólk.
„Alls ekki. Við kunnum vel við
okkur hér á Suðureyri og hlökkum
til að sjá alla að ári,“ segir Elfar
Logi, léttur í bragði. - ósk
Fara ekki frá
Suðureyri
ACT ALONE FER EKKI NEITT Elfar Logi
er ánægður með Act Alone eins og hún
er. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Aðdáendur strákahljómsveitar-
innar ´N Sync ættu að vera við-
búnir því það stefnir allt í það að
hljómsveitin muni koma saman
á ný eftir tíu ára fjarveru. Sögu-
sagnir eru á kreiki þess efnis að
kapparnir komi til með að spila á
MTV Video Music Awards næst-
komandi sunnudag. Samkvæmt
blaðinu The New York Post er
hjartaknúsarinn Justin Timber-
lake nú í óða önn að undirbúa sig
fyrir endurkomuna ásamt hinum
meðlimum sveitarinnar, þeim JC
Chasez, Lance Bass, Joey Fatone
and Chris Kirkpatrick. Tónlistar-
hátíðin fer fram í Brooklyn‘s
Barclay‘s Center í New York og
er það engin önnur en söngkonan
Lady Gaga sem stígur fyrst á svið.
N Sync á svið
í New York
HLJÓMSVEITIN ‘N SYNC Ætli þeir komi
og geri allt vitlaust á sunnudaginn?
NORDICPHOTOS/GETTY
Rapparinn Macklemore prýðir
forsíðu næsta heftis Rolling
Stone. Í viðtali við tímaritið
kveðst hann meðvitaður um þau
forréttindi sem hann nýtur sem
hvítur tónlistarmaður.
„Ég veit hvernig samfélagið
virkar. Ég blóta frá mér allt vit í
laginu Thrift Shop en þrátt fyrir
það finnst foreldrum í lagi að
börn sín hlusti á lagið, af því að
ég er hvítur. Hefði ég notið þess-
arar velgengni
hefði ég verið
svartur? Ég
held að svarið
sé nei,“ sagði
Macklemore
um tónlist sína
og velgengni
plötunn-
ar The
Heist.
Nýtur forrétt-
inda í tónlist
Lambabógsteik
Í SVEPPAMARINERINGU
GÓMSÆT NÝJUNG!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
51
0
89