Fréttablaðið - 19.02.2014, Page 1
TÓBAKSVARNIR Mögulegt
bann við reykingum í bílum
þar sem börn eru með í för
er hluti af því sem skoð-
að er í tengslum við nýja
opinbera stefnumótun í
tóbaksvörnum. Embætti
Landlæknis vinnur að
stefnumótuninni, ásamt
velferðarráðuneytinu og
fleirum. Stutt er síðan breska þing-
ið samþykkti slíkt bann með mikl-
um meirihluta. Stefnumótuninni
hér á að ljúka í vor og kemur þá í
ljós hvort lagðar verði til svipaðar
breytingar.
„Við höfum fylgst með því í gegn-
um okkar norræna samstarf sem
er að gerast í öðrum löndum eins
og í Finnlandi og í Bretlandi,“ segir
Viðar Jensson, verkefnisstjóri tób-
aksvarna hjá embætti Land-
læknis. „Finnar hafa reynt
að koma þessu í gegnum
þingið en þeim varð ekki
ágengt í fyrstu tilraun.“
Viðar bendir á að reyk-
ur úr sígarettum í lokuðu
rými á borð við bíl sé ellefu
sinnum eitraðri en í opnu
rými eins og á veitinga- eða
skemmtistað. „Mig langar til að
benda á þessa alþjóðasamninga sem
við höfum samþykkt eins og barna-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þar
segir að forráðamenn barna eigi
að bera ábyrgð á að þau séu ekki í
skaðlegu umhverfi,“ segir hann og
áréttar um leið að í alþjóðaramma-
samningi um tóbaksvarnir, sem hér
hafi verið fullgiltur 2005, sé viður-
kennt að vísindaleg gögn hafi með
óyggjandi hætti staðfest að óbeinar
reykingar valdi dauða, sjúkdómum
og fötlun.
Að sögn Viðars er Bretland fyrsta
vestræna ríkið sem samþykkir lög á
landsvísu um bann við reykingum í
bílum þar sem börn eru með í för.
„Svæði í Bandaríkjunum, Kanada
og Ástralíu hafa tekið þetta upp.
Ástralar og Kanadamenn hafa alltaf
verið svolítið á undan í tóbaksvarn-
armálum.“ - fb
FRÉTTIR
Á rið 1981 útskrifaðist ég sem íþróttafræðingur frá McGill-háskólanum í Montreal í Kanada. Síðan þá hef ég svo til eingöngu unnið við heilsueflingu fólks, í Kanada, Svíþjóð og svo hér á Íslandi. Ég hafði þau forréttindi að kynna ýmsar nýj-ungar fyrir elskulegri þjóð minni og geri enn. Nú eru það heilsubætandi föstur eða það sem ég valdi að kalla Detox-meðferð Jónínu Ben. Til mín í detox hafa hundruð sótt bæði hér heima og í Pól-landi. Fólk frá ýmsum löndum hefur skrifað vitnis-burði um lækningarmátt föstunnar sem margir velja að gera að árlegum viðburði. Sumir oft á ári og gleður það mig mjög. Fastan sem ég kenni er öðruvísi en allar aðrar föstuaðferðir sem ég hef kynnt mér. Hún byggir á kenningum pólsks læknis sem hefur áunnið sér virðingu fyrir árangur þessarar föstu. Aðferð-um hennar mun ég ekki breyta en hef bætt við prógrammið ýmsum fyrirlestrum eftir því sem meira ávinnst í rann-sóknum og reynslu hvað varðar óhefðbundnar lækningar.
Ég vinn náið með læknum sem veitir ykkur sem til
mín leitið mikið öryggi. Ég veit að engum er hollt að fasta samhliða fullri
vinnu og því gleður það mig ðm ð
KÆRU ÍSLENDINGARNORDICHEALTH KYNNIR Jónína Ben býður heilsumeðferðir á hóteli nálægt Gdansk í Póllandi, í dásamlegu umhverfi við fallegt vatn.
MEÐFERÐAR-DAGAR Í PÓL-LANDI 2014
15.– 29.mars
4.–18.apríl
10.–24.maí
24.maí – 7.júní
13.– 28.júlí
7.– 21. september
GÖNGUSKÍÐAFERÐIRFerðafélag Íslands býður upp á gönguskíðaferðir í vetur. Til dæmis á Hellisheiði í febrúar, Mosfellsheiði í byrjun mars og á Skjaldbreið 22. mars. Nánari dagskrá má finna á www.fi.is
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · HljóðlátStórt op > auðvelt að hlaðaSparneytin amerísk tæki.<Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerískgæðavara
Amerískgæðavara
Flottar
gallabuxurkr. 13.900.-
Dökkblár
VINNUVERNDMIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2014 Kynningarblað Vinnueftirlitið, Verkfræðistofan EFLA og vinnuverndarvikan 2014.
www.visir.is
Sími: 512 5000 |
Miðvikudagur 19. fe
brúar 2014 | 20. tölu
blað | 10. árgangur Um 5,3 milljónir tölva se
ldar
Sala á Playstation
4 (PS4) leikjatölvu
nni fer vel
af stað og hafa sel
st um 5,3 milljónir
eintaka.
f í ölu í Japan þ
ann 22. febrúar
STAFRÆ
N
PRENTU
N!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Miðvikudagur
12
3 SÉRBLÖÐ
Markaðurinn | Vinnuvernd | Fólk
Sími: 512 5000
19. febrúar 2014
42. tölublað 14. árgangur
SPORT Arsenal hefur fallið úr leik í
16-liða úrslitum Meistaradeildar Evr-
ópu síðustu þrjú ár. 22
MARKAÐURINN
14
dagar til
öskudags
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Finndu okkur á
Sushi allan
sólarhringinn!
➜ Virða skal rétt hvers
manns til að þurfa ekki að
anda að sér lofti sem er
mengað tóbaksreyk af völd-
um annarra.
Úr lögum um tóbaksvarnir.
Til greina kemur að banna reykingar í bílum þar sem börn eru farþegar:
Förum kannski að dæmi Breta
VIÐAR JENSSON
MATUR Rut Hermannsdóttir býður
upp á dýrasta kaffidrykk New
York-borgar. Hún er meðeigandi í
Búðinni, versl-
un og kaffibar,
sem var opnuð í
Brook lyn á föstu-
daginn. Um að er
að ræða svokall-
aðan lakkríslatté
með sérinnfluttu
lakkríssírópi og
lakkrísdufti frá
danska framleið-
andanum Johan Bülow. Drykkur-
inn kostar sjö dollara, eða 794
krónur. Rut segir viðtökurnar
framar vonum og hefur hún ekki
undan að svara fyrirspurnum um
drykkinn. „Við tökum stöðugt við
sjónvarpsstöðvum og fjölmiðlum.
NBC kemur í dag og Al Jazeera
er að biðja um viðtal. Sem er auð-
vitað alveg frábær kynning fyrir
okkur.“
- áp / sjá síðu 26
Dýrasti bollinn í New York:
Lakkríslatté á
794 krónur
RUT HERMANNS-
DÓTTIR
GLÆSILEGIR FULLTRÚAR Helga María Vilhjálmsdóttir og Erla Ásgeirsdóttir kepptu í stórsvigi kvenna á Vetraraólympíu-
leikunum í Sotsjí í gær. Þær kláruðu báðar ferðir sínar en Helga María endaði í 46. sæti og Erla í 52. sæti af þeim 74 keppendum
sem voru skráðir til leiks. Í dag er keppt í stórsvigi karla og þar á Ísland tvo keppendur. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Bolungarvík 0° A 5
Akureyri -3° SA 4
Egilsstaðir -1° SA 5
Kirkjubæjarkl. 3° SA 15
Reykjavík 2° SA 14
Hvasst Búast má við stormi eða roki
allra syðst fram eftir degi en hægari
vindur fyrir norðan. Vaxandi úrkoma
sunnan- og austanlands í dag. 4
Kerfi Advania í flugmóður-
skipum Breta
Advania mun sjá um upplýsingakerfi
bresku samtakanna NAAFI sem
reka veitingastaði, verslanir og aðra
þjónustu fyrir breska herinn.
Hjóla alltaf í vinnuna
Fjórir vinnufélagar hjá Umboðs-
manni skuldara hjóla í vinnuna
hvernig sem viðrar. 2
Andstaða byggð á misskilningi
Sveitarstjóri Rangárþings eystra segir
mótmæli íbúa við Markarfljót ekki á
rökum reist. 4
Grunnskólar eru hvergi jafnari
Ísland og Finnland hafa sérstöðu
vegna þess hve jöfnuður er mikill í
skólakerfinu. 10
SKOÐUN Þórólfur Matthíasson segir
mjólkurrisana hafa þvingað verð á
mjólkurvöru í hæstu hæðir. 13
MENNING Aþena Eir Jónsdóttir leikur
aðalkvenhlutverkið í uppsetningu á söng-
leiknum Dirty Dancing. 20
UTANRÍKISMÁL Talsverður þrýst-
ingur er á það innan beggja
stjórnarflokka að lögð verði fram
þingsályktunartillaga á næstu
dögum um að slíta aðildarviðræð-
unum við Evrópusambandið end-
anlega. Þeir sem vilja fara þessa
leið vísa meðal annars með til
nýútkominnar skýrslu Hagfræði-
stofnunar.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hefur ríkisstjórnin ekki
tekið ákvörðun í málinu en búist
er við að það gerist fljótlega eftir
helgina.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
þingflokksformaður Sjálfstæðis-
flokksins, segir viðræðuslit ekki
hafa verið rædd innan þingflokks-
ins. „Það var hins vegar rætt að
eftir umræður um þessa skýrslu
kæmi hugsanlega fram einhver
tillaga, en það hefur ekkert verið
rætt hvernig eða hvenær,“ segir
hún. Ef ákveðið verður að slíta
viðræðunum segir Ragnheiður
eðlilegt að Alþingi greiði um það
atkvæði.
Össur Skarphéðinsson, fyrrver-
andi utanríkisráðherra, segir ekk-
ert í skýrslu Hagfræðistofnunar
gefa ástæðu til að slíta viðræðum
endanlega, en annars sé þar fátt
um tíðindi.
Össur segir kaflann um efna-
hags- og gjaldeyrismál valda sér-
stökum vonbrigðum. „Þetta er að
mestu leyti uppsuða úr gamalli en
prýðilegri skýrslu Seðlabankans,
án þess þó að leggja til nokkra
valkosti. Ég á von því að vænt-
anleg skýrsla frá aðilum vinnu-
markaðarins muni geyma dýpri
umfjöllun um mögulega ávinn-
inga aðildar fyrir efnahagslífið.“
Gunnar Bragi Sveinsson utan-
ríkisráðherra hefur sagt að
skýrsla aðila vinnumarkaðarins,
sem boðuð hefur verið í apríl,
muni engin áhrif hafa á ákvörð-
un ríkisstjórnarinnar um áfram-
hald viðræðna.
Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra sagðist í samtali við
fréttastofu eiga erfitt með að sjá
fyrir sér áframhald á viðræðum.
„Þegar í hlut eiga tveir flokk-
ar sem báðir eru andvígir inn-
göngu í Evrópusambandið, þá sé
ég ekki fyrir mér að það sé yfir-
höfuð hægt að vinna með þá nið-
urstöðu að það eigi halda viðræð-
unum áfram.“
- eb, - þj / sjá síðu 6 og 8
Rætt um að slíta viðræðum
Vilji er innan beggja þingflokka stjórnarflokkanna til að leggja fram þingsályktunartillögu um að slíta endanlega
aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Meðal annars er vísað til niðurstöðu skýrslu Hagfræðistofnunar. Fyrr-
verandi utanríkisráðherra segir ekkert í skýrslunni sem gefi ástæðu til viðræðuslita og að þar sé fátt um tíðindi.
Þetta er að mestu leyti uppsuða úr
gamalli en prýðilegri skýrslu Seðlabankans,
án þess þó að leggja til nokkra valkosti. Ég á
von því að væntanleg skýrsla frá aðilum
vinnumarkaðarins muni geyma dýpri
umfjöllun.
Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingar.