Fréttablaðið - 19.02.2014, Page 6
19. febrúar 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR |
Hágæða flotefni í Múrbúðinni
Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir a l la , a l l taf . Gerið verð- og gæðasamanburð!
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Weberfloor
4150 flotefni
4-30mm
2.495
Weberfloor
4160 Hrað-
þornandi
lotefni f
2-30mm
3.795
Weberfloor
310 4
refjastyrkt T
otefni fl
-50mm5
.7952
Weberfloor
4350
Flotefni
fyrir
20-80 mm
2.190
Weberf
630 4
urolitD
ðnaðai
útiflo&
.6905 rDeka Acryl grunnu
1kg 1.225
5kg 4.590
Reykjavík Kletthálsi 7. Opið má-fö kl. 8-18, laug. 10-16
Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið má-fö kl. 8-18
Munið 5% Pallaafsláttinn
Leitið tilboða í meira magn.
Látið fagmenn vinna verkin!
loor
r
t
Staða umsóknarferlisins
● Stækkunarferlið nú er mun
strangara en áður tíðkaðist.
● Erfitt hefði verið, miðað við fram-
vinduskýrslur ESB, að semja út frá
meirihlutaáliti utanríkismálanefndar
Alþingis, meðal annars um formlegt
forræði yfir sjávarauðlindum, tak-
markanir á fjárfestingum erlendra
aðila og forsvar á alþjóðavettvangi.
● Reynsla annarra þjóða sýnir að
erfitt hefur verið að ná varanlegum
undanþágum frá sameiginlegri
stefnu ESB.
● Óheppilegt er, við mat á stöðu
viðræðnanna, að ekki hafi tekist
að opna þá sex samningskafla sem
stóðu út af þegar hlé var gert á við-
ræðunum, sérstaklega þá fjóra þar
sem ekki hafði verið lokið við gerð
samningsafstöðu, þar sem þar hefði
verið tekið á ýmsum álitamálum.
Laga- og stofnanaþróun ESB
● Fleiri málaflokkar falla undir
venjulega málsmeðferð og aukinn
og endurskilgreindan meirihluta í
ráðherraráðinu.
● Völd Evrópuþingsins hafa farið
vaxandi, bæði í löggjöf, fjárlögum,
gerð alþjóðlegra samninga og
skipun framkvæmdastjórnarinnar.
● ESB hefur leitast við að mæta
kröfu um aukið lýðræði til handa
íbúum og það er styrkt með tilkomu
Lissabonsáttmálans. Auk þess hafa
áhrif þjóðþinga farið vaxandi til að
vinna upp meintan lýðræðishalla og
nálægðarreglan verið útfærð frekar,
en hún kveður á um að ákvörðun
sé tekin sem næst þeim sem hún
snertir.
Staða og horfur í
efnahagsmálum ESB
● Spár gera ráð fyrir að hagvöxtur
í ESB næstu ár verði lægri en í
Bandaríkjunum. Þó getur vöxtur
verið afar mismunandi frá einu
landi til annars.
● Verðbólga er misjöfn milli landa, en
munurinn fer minnkandi. Verðbólga
er meiri hér á landi og spár gera ráð
fyrir að svo verði áfram.
● Löndum ESB hefur gengið misjafn-
lega að uppfylla Maastricht-skilyrðin
svokölluðu um afgang af rekstri og
skuldir hins opinbera sem hlutfall af
vergri landsframleiðslu.
● Færa má rök fyrir því að evran
sem sameiginlegur gjaldmiðill hafi
lækkað viðskiptakostnað og leitt til
betri samkeppnishæfni fyrirtækja.
Lækkun vaxta hefur líka almennt
haft jákvæð áhrif á fjárfestingar
og neyslu. Vegna þessa hefur
verið áætlað að verg framleiðsla
á evrusvæðinu hafi verið um 330
milljörðum meiri árið 2010 en ella.
● Stóra vandamál evrusvæðisins er
óleyst. Hagþróun ríkjanna er ólík og
sameiginleg mynt bindur hendur
einstakra ríkja til að bregðast við
þróun efnahagsmála. Þá hefur
reynst erfitt að samræma ríkis-
fjármál og hjálpa þeim ríkjum sem
standa illa.
● Til að leysa þau vandamál má
hugsa sér að gripið verði til þess að
auka samráð milli ríkja sem gæti
takmarkað ákvörðunarvald landa
yfir eigin fjármálum.
Sjávarútvegsmál
● Með breytingum á sameiginlegri
sjávarútvegsstefnu ESB er lögð
áhersla á svæðisbundna stjórnun
og aukna ákvarðanatöku í héraði.
Aðildarþjóðir fá þar frjálsari hendur
en áður til að ákveða hvernig mark-
miðum kerfisins er náð. Markmiðin
og ákvörðun um heildarafla liggur
enn hjá ESB.
● Í skýrslunni segir að ESB sé að
nálgast íslenska kerfið með
reglubreytingunum.
● Fátt bendir til þess að varanlegar
undanþágur fáist vegna fjárfestingar
útlendinga og kaupa á aflaheimild-
um, auk þess sem samningsumboð
vegna skiptingar úr flökkustofnum
færist til ESB, þó alltaf sé þar leitað
samráðs við aðildarríki. Loks verður
heildarafli ákveðinn á vettvangi ESB
þrátt fyrir að Ísland væri skilgreint
sem sérstakt fiskveiðistjórnunar-
svæði.
● Ísland fengi nær örugglega ekki
undanþágu frá banni við hval-
veiðum.
● Hingað til hefur gengið erfiðlega
að fá varanlegar undanþágur frá
sjávarútvegsstefnunni. Hins vegar
hafa fengist tímabundnar undan-
þágur og í sumum tilfellum, til
dæmis hjá Möltu, hafa fengist fram
breytingar á löggjöf ESB áður en til
inngöngu kemur.
Landbúnaðarmál
● Ný sameiginleg landbúnaðarstefna
var fullgerð á síðasta ári og sam-
þykkt í upphafi þessa árs.
● Stefnt er að minni markaðsafskipt-
um í landbúnaðarkerfinu sem og
meiri byggðaáherslum í sambandi
við umhverfismarkmið ESB.
● Stuðningur við landbúnað hér á
landi er meiri en gerist í styrkjakerfi
ESB. Aðildarríki hafa rétt á að
styrkja landbúnað á harðbýlum
svæðum.
● Embættismenn ESB sögðust ekki
sjá fyrir óleysanleg vandamál og
þó ekki væri hægt að semja um
undanþágu frá niðurfellingu toll-
verndar hefði mátt ræða hvernig
væri hægt að bæta innlendum
framleiðendum upp tapið af
afnámi tollanna.
● Í opnunarviðmiðum ESB var sér-
staklega tekið fram að taka bæri
tillit til sérstöðu íslensks landbún-
aðar.
Helstu atriði úr skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands
EVRÓPUMÁL Í aðildarsamningum
nýrra ríkja í ESB er lagalega unnt
að kveða á um undanþágur, þrátt
fyrir að sambandið leggi alltaf fram
þá meginreglu í aðildarviðræðum
að umsóknarríki gangi að reglu-
verki sambandsins óbreyttu. Frá
þessu eru almennt aðeins veittar
tímabundnar undanþágur sem eru
hugsaðar sem aðlögunartími. Þetta
er meðal þess sem kemur fram í
skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla
Íslands um stöðu aðildarviðræðna
Íslands við ESB og þróun sambands-
ins sem gefin var út í gær og verður
rædd á Alþingi í dag.
Engar varanlegar undanþágur
sem slíkar er að finna á sviðum
landbúnaðar og sjávarútvegs í fyrri
aðildarsamningum, en tímabundn-
ar undanþágur hafa verið gefnar
og er gildistími þeirra misjafn og
umsemjanlegur.
Þá hafi ESB breytt reglum sínum
í þágu einstakra aðildarríkja, meðal
annars um innanlandsstuðning Svía
og Finna til landbúnaðar á harð-
býlum svæðum norðan 62. breidd-
argráðu og um vernd fiskistofna í
Miðjarðarhafi, sem sniðin var að
þörfum Möltu.
Þær breytingar eru þó breyting-
um háðar eins og önnur lög sam-
bandsins.
Í skýrslunni segir að erfitt geti
reynst að ná fram varanlegum und-
anþágum frá reglum, sérstaklega
varðandi landbúnað og sjávarútveg,
en „[s]é keppt að slíku markmiði í
aðildarviðræðum verður að kveða
á um allar slíkar undanþágur með
mjög skýrum hætti ef tryggja á að
þær haldi.“
Undanþágurnar fáar en fáanlegar
Hagfræðistofnun Háskóla Íslands kynnti í gær skýrslu um stöðu aðildarviðræðna Íslands við ESB og þróun sambandsins. Engin bein til-
mæli er að finna í skýrslunni um hvert framhald viðræðnanna ætti að verða, en þar er meðal annars farið yfir möguleika á sérlausnum.
➜ Meðal þess sem fram
kemur í skýrslu Hagfræðistofn-
unar Íslands um stöðu aðildar-
viðræðna landsins við Evrópu-
sambandið er að þótt í fyrri
samningum við lönd sé hvergi
að finna varanlegar undan-
þágur á sviðum landbúnaðar
og sjávarútvegs séu dæmi um
tímabundnar undanþágur. Þá
hafi sambandið breytt reglum
sínum í þágu einstakra aðild-
arríkja, svo sem reglum um
stuðning Svía og Finna til land-
búnaðar á harðbýlum svæðum
norðan 62. breiddargráðu.
Bretland
Danmörk
Írland
Grikkland
Portúgal Spánn
Austurríki
Finnland
Svíþjóð
Eistland
Kýpur
Lettland
Litháen
Malta
Þýskaland
Slóvakía
Tékkland
Búlgaría
Rúmenía
Króatía
Belgía
Lúxemborg
Frakkland
Ítalía
Ísland
Ungverjaland
Holland
Slóvenía
Pólland
ÍSLAND OG
EVRÓPUSAMBANDIÐ
ASKÝRING | 6
SKÝRSLA UM AÐILDARVIÐRÆÐUR ÍSLANDS VIÐ ESB
Þorgils
Jónsson
thorgils@frettabladid.is