Fréttablaðið - 19.02.2014, Page 15
www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 19. febrúar 2014 | 20. tölublað | 10. árgangur
Um 5,3 milljónir tölva seldar
Sala á Playstation 4 (PS4) leikjatölvunni fer vel
af stað og hafa selst um 5,3 milljónir eintaka.
Leikjatölvan fer í sölu í Japan þann 22. febrúar
næstkomandi en japanska fyrirtækið Sony fram-
leiðir tölvuna og er eftirvæntingin því mikil þar
í landi.
Sony gerði samkvæmt breska vefnum The
Tele graph ráð fyrir að selja um fimm milljónir
eintaka af PS4 fyrir lok mars. Með þessu áfram-
haldi telja sérfræðingar að Sony eigi eftir að ná
tíu milljónum eintaka undir lok ársins.
Helsti keppinauturinn, Microsoft, hefur selt 3,9
milljónir eintaka af leikjatölvunni Xbox One.
- sáp
FLEIRI SEÐLA-
BANKASTJÓRA?
Forsætis- og fjármálaráðherrar gefa
misvísandi skilaboð um fjölgun
seðlabankastjóra. SÍÐA 4
STAFRÆN
PRENTUN!
Umgjörð: Lindberg Spirit
Linda Ólafsdóttir
Umgjörð:
Lindberg 1800
Kristín Jóna
Hilmarsdóttir
FAGMENNSKA
FYRST OG FREMST
ÞAR SEM ÚRVALIÐ ER AF
UMGJÖRÐUM
Spá hærri raunstýrivöxtum
Greining Íslandsbanka spáir því að raunstýrivextir
verði mun hærri á þessu ári en þeir hafa að jafnaði
verið frá árinu 2008. Nýjasta verðbólguspá og út-
reikningar bankans gera ráð fyrir ríflega þriggja
prósenta raunstýrivöxtum að jafnaði á árinu. Árið
2013 voru vextirnir að jafnaði tvö prósent og tvö
árin þar á undan voru þeir nálægt núlli.
„Hækkandi raunstýrivextir merkja að aðhaldið
í peningastjórnuninni hafi aukist. Er nú svo komið
að nær allur slakinn er horfinn úr peningastjórn-
uninni,“ segir í Morgunkorni Íslandsbanka frá því
í gær. - hg
Vilja ekki Netfl ix í Frakklandi
Forstjórar stærstu einkareknu sjónvarpsstöðva
Frakklands vilja að ríkið grípi í taumana svo að
erlendir keppinautar komist ekki á þarlendan
markað. Ástæðan er sú að Netflix og fleiri hyggj-
ast bjóða upp á þjónustu sína þar í landi á næstu
misserum. Forstjórar TF1, Canal+ og M6 hafa
lýst yfir miklum áhyggjum og óskað eftir fundi
með Aurelie Filipetti menningarmálaráðherra
til að ræða aðkallandi aðgerðir til að endurskipu-
leggja geirann.
Segjast þeir hafa miklar áhyggjur af umróti
sem hlotist geti af tilkomu nýrra aðila sem hafa
verið leiðandi í að bjóða upp á afþreyingarefni
heimshorna á milli. Þá gagnrýna þeir harðlega
viðleitni þessara fyrirtækja til að lágmarka skatt-
greiðslur sínar, sem þeir segja vera fráleita. - js