Fréttablaðið - 19.02.2014, Page 18
| 4 19. febrúar 2014 | miðvikudagur
Neysluskuldir Bandaríkja-
manna hækkuðu meira á síð-
asta ársfjórðungi en þær hafa
gert síðan efnahagsþrenging-
arnar hófust vestanhafs árið
2008. Þetta kemur fram í tölum
frá seðlabanka Bandaríkjanna.
Skuldirnar hækkuðu um 2,1
prósent á milli fjórðunga, úr
11,28 billjónum dala á þriðja
ársfjórðungi upp í 11,52 billj-
ónir dala á þeim fjórða. Hækk-
unin, 241 milljarður dala, er
mesta aukning neysluskulda
síðan á þriðja fjórðungi ársins
2007. Hækkunina má helst rekja
til bíla- og námslána.
Wilbert van der Klaauw, hag-
fræðingur hjá bandaríska seðla-
bankanum, vonast til þess að
skuldaaukningin sé til marks
um að bandarískir neytendur
séu hættir að halda að sér hönd-
unum í eyðslu sinni.
Þrátt fyrir hækkun skuldanna
eru þær þó 9,1 prósenti frá 12,68
billjóna dala hátindinum sem
þær náðu á þriðja fjórðungi árs-
ins 2008.
- sój
Bandaríkjamenn taka meira af bíla- og námslánum:
Neysluskuldir hækka
„Þetta kemur á óvart, ég verð
að segja það. Umsóknin sem
Mjólkursamsalan lagði inn
fyrir smjörið var á nákvæmlega
sömu nótum og okkar umsókn,
röksemdafærslan sem við not-
uðum er sú sama og notuð var
þar. Við erum auðvitað ekki sátt
við þessa niðurstöðu og munum
halda áfram með málið,“ segir
Finnur Árnason, forstjóri Haga,
í samtali við Markaðinn.
Sigurður Ingi Jóhannsson
landbúnaðarráðherra hafnaði
í gær beiðni Haga um viðbót-
artollkvóta fyrir innflutning á
buff ala-, geita- og ærmjólkurost-
um, sem og á lífrænum kjúk-
lingi.
Páll Rúnar M. Kristjánsson,
lögmaður Haga, segir ráðu-
neytið hafna beiðni Haga þrátt
fyrir að fyrir liggi að skortur sé
á innlendum markaði á þessum
vörum og nánast engin innlend
framleiðsla á þeim.
Þann 22. maí í fyrra gaf at-
vinnuvegaráðuneytið út reglu-
gerð um úthlutun á tollkvót-
um vegna innflutnings á bæði
smjöri og ostum. Var þar heim-
ilað að flytja inn ákveðið magn
sem lagður var á magntollur.
Þrátt fyrir tilvist þessa toll-
kvóta á bæði smjör og osta var
Mjólkursamsölunni veitt heim-
ild í nóvember síðastliðnum til
að flytja inn smjör án gjalda
þegar ljóst var að skortur var
á því á innlendum markaði þar
sem innlend framleiðsla annaði
ekki eftirspurn. Samkvæmt til-
kynningu ráðuneytisins byggist
synjun þess á því að heimilt sé
að flytja inn umrædda vöru þrátt
fyrir að það sé gert á háum gjöld-
um auk þess sem þess er getið
að ráðherra sé óheimilt að fella
niður tolla á einstakar vörur.
„Það er alveg ljóst að það er
verið að reyna að villa um í um-
ræðunni með því að tala um toll-
kvóta því ríkið selur þessa toll-
kvóta, og andvirðið sem innflytj-
endur greiða fyrir tollkvótana
er ígildi tolla. Þannig að rökin
halda ekki og þess vegna erum
við ósátt við niðurstöðuna,“ segir
Finnur.
„Fyrir tæpri viku lagði ráðu-
neytið hins vegar til ótakmark-
aðan og gjaldfrjálsan innflutn-
ing á kartöflum og hvítkáli,“
segir Páll Rúnar.
Það var gert með þeim rökum
að innlend framleiðsla stæði
ekki undir eftirspurn eftir þess-
um vörum. Það sama á við um
ákvarðanir um svínakjöt og
fleiri vörur sem skortur hefur
orðið á.
Í tilkynningu atvinnuvegaráðu-
neytisins frá því í gær segir að
óheimilt sé að taka slíka ákvörð-
un um beiðni Haga þrátt fyrir
að lítil eða engin framleiðsla sé
á þessum vörum á hér á landi.
„Það er ljóst að ráðuneytið
hefur kosið að sniðganga for-
dæmisgefandi úrlausnir sínar.
Þegar teknar eru sömu ákvarð-
anir um sambærilega aðila lætur
ráðuneytið annan njóta velvild-
ar sinnar og ívilnunar á meðan
hinn þolir ólögmætar og íþyngj-
andi niðurstöður um sama efni,“
segir Páll.
„Jafnræðisreglan leiðir til þess
að fólk má gera ráð fyrir því að
mál þeirra fái sömu meðferð hjá
stjórnvaldinu og mál sambæri-
legra aðila í sömu stöðu. Hagar
hafa hins vegar ekki notið jafn-
ræðis enda er þessu erindi synjað
á meðan sambærileg erindi ann-
arra eru samþykkt. Þetta er mjög
miður því hér tapa neytendur og
hér tapar samkeppnin,“ segir Páll.
Hann segir samkeppniseftir-
litið telja að tollkvótar hafi í för
með sér neikvæð áhrif á sam-
keppni sem valdi bæði atvinnulífi
og neytendum tjóni. Takmark-
anir eða stýring á innflutningi
hafi í för með sér takmörkun á
frelsi í atvinnurekstri, sem leiði
til hækkunar vöruverðs til neyt-
enda og fari slíkt gegn mark-
miði samkeppnislaga. Að sama
skapi telur embættið að reynsl-
an sýni að fyrirkomulag land-
búnaðarráðuneytisins á úthlut-
un tollkvóta hafi leitt af sér sam-
ráð við gerð tilboða enda felist í
slíku kerfi hvati fyrirtækja til að
samræma tilboð í þeim tilgangi
að lækka innkaupakostnað. Toll-
kvótar hafi auk þess í för með sér
aðgangshindrun fyrir nýja aðila
sem vilja hasla sér völl í innflutn-
ingi á kjöti og ostum. Þá hefur
eftirlitið lagt til að Alþingi beiti
sér fyrir því að horfið verði frá
aðgangshindrunum sem almennt
felast í tollkvótum á innflutningi
á búvörum. Þetta komi fram í er-
indi Samkeppniseftirlitsins til at-
vinnuveganefndar Alþingis.
Páll segir málinu ekki lokið.
„Þetta eru auðvitað ákveðin von-
brigði enda töldum við allar líkur
á því að ráðuneytið kæmist að
lögfræðilega réttri niðurstöðu.
Það verður hins vegar ekki lagst
í kör. Málið heldur áfram og það
verður ekkert hætt fyrr en hin
lögleg niðurstaða liggur fyrir.“
fanney@frettabladid.is
Högum var synjað um tollfrjálsa osta
Landbúnaðarráðuneytið synjaði beiðni Haga um viðbótartollkvóta fyrir innflutning á ostum og kjúklingi.
Forstjóri og lögmaður Haga segja málið munu halda áfram þar til lögleg niðurstaða liggi fyrir.
OSTUR OG LÍFRÆNN KJÚKLINGUR Hagar sóttu um tollfrjálsan innflutning á nokkrum
sérvörum sem ekki eru framleiddar hérlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
FINNUR
ÁRNASON
PÁLL RÚNAR M.
KRISTJÁNSSON
Framleiðandi snjalltækjaleiks-
ins vinsæla Candy Crush Saga
er á leið með fyrirtæki sitt á
markað. Hann mun ætla sér að
ná inn 500 milljónum Banda-
ríkjadala með hlutafjárútboð-
inu.
Fyrirtækið King Digital Ent-
ertainment PLC, sem framleiðir
einnig leikinn Pet Rescue Saga
hefur ekki afhjúpað hversu
margir hlutir verða til sölu.
Candy Crush Saga var sá
ókeypis leikur sem mest var
hlaðið niður á bæði iPhone og
iPad árið 2013, og hafði þar
betur gegn snjalltækjaforritun-
um vinsælu Facebook, Google
Maps og YouTube. Í desem-
ber spiluðu 93 milljónir not-
enda leikinn daglega, 15 millj-
ónir spiluðu Pet Rescue Saga á
sama tíma.
Framleiðandinn sagði að í
hlutafjárútboðinu yrðu hlutir til
sölu bæði frá fyrirtækinu sjálfu
sem og núverandi hluthöfum.
Fyrirtækið, sem er írskt,
hyggst nota hagnaðinn af söl-
unni til að auka rekstrarfé sitt
sem og mögulega til kaupa á
öðrum fyrirtækjum. Enginn
arður verður greiddur út. Fyrir-
tækið hagnaðist um 567,6 millj-
ónir dollara árið 2013 saman-
borið við aðeins 7,8 milljón doll-
ara hagnað árið 2012.
Fyrirtækið verður skráð í
Kauphöllina í New York undir
heitinu „King“.
- fbj
Stefna á að ná inn 500 milljónum Bandaríkjadala:
Candy Crush á markað
CANDY CRUSH SAGA Leikurinn hefur náð
gríðarlegum vinsældum.