Fréttablaðið - 19.02.2014, Qupperneq 20
| 6 19. febrúar 2014 | miðvikudagur
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra sagði í spjall-
þættinum Sunnudagsmorgni um
helgina að til stæði að breyta
lögum um Seðlabankann.
BREYTINGARNAR 2009
Í febrúar árið 2009 var lögum
um bankann breytt meðal ann-
ars á þann veg að seðlabanka-
stjórum var fækkað úr þremur í
einn. Sparnaður við fækkunina
var metinn á 32 milljónir króna
á ári, en í umsögn fjármála-
ráðuneytisins um frumvarp-
ið kom fram að vegna biðlauna
yrði tímabundinn launakostn-
aður bankans fjörutíu og fjór-
ar milljónir króna. Til lengri
tíma litið lækkaði hins vegar
launakostnaðurinn um þrjátíu
og tvær milljónir króna á ári.
Allir þingmenn Framsóknar-
flokksins greiddu atkvæði með
breytingunum, ásamt þáver-
andi stjórnarliðum. Sigmund-
ur Davíð var ekki þingmaður á
þessum tíma en var þó orðinn
formaður Framsóknarflokks-
ins. Sjálfstæðismenn greiddu
atkvæði gegn frumvarpinu, en
ekki er að sjá á umræðum um
frumvarpið að þeir hafi sett sig
upp á móti fækkun seðlabanka-
stjóra heldur vildu sjálfstæðis-
menn að ákvörðun forsætisráð-
herra um hver yrði skipaður í
embættið yrði borin undir Al-
þingi.
Óljóst er hvaða breytingar á
lögum um Seðlabankann eru
fyrirhugaðar hjá ríkisstjórn-
inni en Steingrímur J. Sigfús-
son, fyrrverandi fjármálaráð-
herra, segir það snerta sig mjög
illa ef menn ætli af einhverjum
pólitískum ástæðum að hrófla
við Seðlabankanum.
„Seðlabankinn hefur náð
prýðilegum árangri í því að ná
hérna stöðugu verðlagi og sér-
staklega stöðugu gengi krón-
unnar,“ segir Steingrímur í
samtali við Markaðinn. Hann
segir að árið 2009 hafi verið
nauðsynlegt að endurreisa
traust á bankanum og breyt-
ingar hafi verið gerðar sem
horfa þurfi á heildstætt. „Það
vakna margar spurningar um í
hvaða tilgangi það yrði gert og
hvaða breytingar yrðu gerðar
að öðru leyti. Það er enginn til-
gangur í að fjölga þeim og hafa
jafnframt peningastefnunefnd,“
segir Steingrímur.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð
stofnun, sem er eign íslenska
ríkisins en lýtur sérstakri
stjórn. Yfirstjórn Seðlabank-
ans er í höndum fjármála- og
efnahagsráðherra og banka-
ráðs. Alþingi kýs sjö fulltrúa í
bankaráð að loknum kosning-
um til Alþingis. Ráðherra skip-
ar seðlabankastjóra og aðstoð-
arseðlabankastjóra til fimm ára
í senn.
Ákvarðanir um beitingu
stjórntækja bankans í peninga-
málum eru teknar af peninga-
stefnunefnd. Í peningastefnu-
nefnd situr seðlabankastjóri,
aðstoðarseðlabankastjóri, einn
af yfirmönnum bankans á sviði
mótunar eða stefnu í peninga-
málum og tveir sérfræðingar á
sviði efnahags- og peningamála
sem ráðherra skipar til fimm
ára í senn. Seðlabankastjóri er
jafnframt formaður peninga-
stefnunefndar.
SEÐLABANKAR ERLENDIS
Það er misjafnt hvernig ná-
grannaþjóðir okkar haga yfir-
stjórn peningamála sinna.
Danir eru með þriggja manna
bankaráð, þar af einn aðal-
seðlabankastjóra sem er kon-
unglega skipaður. Hinir tveir
eru skipaðir af bankastjórn,
sem sa ma nstendu r a f 2 5
manns sem eru ýmist valdir af
þinginu, viðskiptaráðherra eða
bankastjórn inni sjálfri. Banka-
ráðið ber fulla ábyrgð á pen-
ingastefnu Danmerkur.
Í Svíþjóð er bankinn leidd-
ur af bankastjórn sem mönnuð
er sex einstaklingum. Þeir eru
skipaðir af bankaráði sem í sitja
ellefu einstaklingar, skipaðir af
sænska þinginu. Bankastjórnin
ber ábyrgð á starfsemi bankans.
Noregur er með einn aðal-
bankastjóra og annan til vara.
Þeir stýra bankastjórn norska
seðlabankans sem stýrir pen-
ingastefnu landsins. Í henni
sitja sjö einstaklingar. skipað-
ir af norska konunginum. Eftir-
litsráð hefur eftirlit með starf-
semi bankans.
Englendingar breyttu að hluta
til stýringu á sinni peninga-
stefnu í apríl árið 2013, þar sem
sjálfstæð peningastefnunefnd
var mynduð. Seðlabankanum
er stjórnað af einum aðalseðla-
bankastjóra, þremur staðgengl-
um og einum rekstrarstjóra.
Saman mynda þau bankastjórn
bankans. Framkvæmdastjórn
breska seðlabankans er skipuð
fjórtán einstaklingum.
Í Bandaríkjunum skipa sjö
einstaklingar bankastjórn sem
ákveður peningastefnu lands-
ins. Þar af er einn aðalseðla-
bankastjóri og annar til vara.
Allir eru þeir skipaðir af for-
seta Bandaríkjanna.
NÝTT FRUMVARP Í MARS
Í endurskoðaðri áætlun um
framlagningu stjórnarfrum-
varpa kemur fram að frumvarp
til laga um breytingu á lögum
um Seðlabanka Íslands skuli
lagt fram eigi síðar en 31. mars
næstkomandi.
Sigmundur Davíð sagði síðast-
liðinn sunnudag að frumvarpið
væri í vinnslu, en að hann gerði
ráð fyrir að fjöldi seðlabanka-
stjóra væri meðal þess sem
skoðað væri. Hann sagði ákveð-
in rök hníga að því að æskilegt
væri að hafa fleiri en einn seðla-
bankastjóra, önnur að því að
gott væri að hafa einn.
Bjarni Benediktsson, fjár-
mála- og efnahagsráðherra,
sem hefur málefni Seðlabanka
Íslands á sinni könnu segir að
meiriháttar breytingar séu ekki
fyrirhugaðar á bankanum.
Ljóst er, og Markaðurinn
hefur heimildir fyrir því, að ekki
er full sátt um það innan ríkis-
stjórnarinnar hvernig yfirstjórn
Seðlabanka Íslands skuli vera.
Einn seðlabankastjóri eða þrír?
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segist gera ráð fyrir því að til skoðunar sé fjölgun seðla-
bankastjóra. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir meiriháttar breytingar ekki fyrirhugaðar. Frumvarp
um breytingar á bankanum verður lagt fram eigi síðar en í lok mars samkvæmt þingmálaskrá stjórnarinnar.
ÞRÍR SEÐLABANKASTJÓRAR Fyrir árið 2009 voru þrír seðlabankastjórar á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
PENINGASTEFNUNEFND Fimm skipa peningastefnunefnd Seðlabankans í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/SEÐLABANKI ÍSLANDS
EFNAHAGSMÁL
Fanney Birna Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is
MÖGULEGAR
breytingar í vændum
Forsætisráðherra og
fjármálaráðherra eru
ekki samstiga þegar
kemur að breytingum
á Seðlabankanum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA