Fréttablaðið - 19.02.2014, Side 25
KYNNING − AUGLÝSING Vinnuvernd19. FEBRÚAR 2014 MIÐVIKUDAGUR 3
„Við erum með vottaða örygg-
isstjórnun samkvæmt OHSAS
18001 og vorum fyrsta fyrirtækið
í okkar geira til að fá slíka vottun.
Á sama tíma veitum við öryggis-
stjórnunarráðgjöf til viðskipta-
vina okkar,“ segir Helga J. Bjarna-
dóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs
EFLU. Hún segir vottun fela í sér
staðfestingu á því að fyrirtæk-
ið uppfylli öll skilyrði í lögum og
reglugerðum varðandi vinnu-
verndar-, heilsuverndar- og ör-
yggismál og að stöðugt sé leitað
leiða til að bæta vinnuumhverfið.
Hluti af því er að gera svokallað
áhættumat starfa en þá er áhætta
við öll störf í fyrirtækinu metin út
frá umhverfisþáttum, félagsleg-
um, heilsufarslegum, tæknileg-
um og efnafræðilegum þáttum.
„Áhættumat sem þetta er lög-
boðið á Íslandi fyrir öll fyrirtæki
sem hafa fleiri en tíu starfsmenn
og sér Vinnueftirlitið um eftirlit
með því. Ef um framkvæmdir er
að ræða er sömuleiðis nauðsyn-
legt að gera sams konar áhættu-
mat fyrir þær,“ útskýrir Helga.
Fyrir þremur árum flutti EFLA
í nýtt húsnæði að Höfðabakka 9
þar sem Tækniskólinn var áður
til húsa. Byggingunni var breytt
í skrifstofuhúsnæði og ákveðið
var að innrétta það með það að
markmiði að skapa góða vinnu-
aðstöðu og heilbrigt vinnuum-
hverfi. Húsnæðið fékk í kjölfarið
alþjóðlega BREEAM-vottun fyrir
vistvænar byggingar og er fyrsta
endurbyggða byggingin á Íslandi
sem hlýtur slíka vottun. Vottun-
in þýðir meðal annars að tryggð
sé fyrirtaks hljóðvist og birtuskil-
yrði og að byggingarefni valdi ekki
slæmum loftgæðum. „Þá leggjum
við áherslu á heilsueflingu fyrir
starfsmenn og höfum meðal ann-
ars góða aðstöðu fyrir hjólafólk,
sturtuaðstöðu og líkamsræktar-
aðstöðu svo dæmi séu nefnd. Við
erum því í fararbroddi á þessu
sviði sem okkur finnst skipta sköp-
um þegar við ráðleggjum öðrum,“
segir Helga.
Ráðgjöf, hönnun, lausnir, innleið-
ing og eftirfylgd
EFLA veitir sem fyrr segir alhliða
ráðgjöf. „Við erum ekki eingöngu
í því að greina vandamál heldur
hönnum og komum með lausnir.
Þá veitum við aðstoð við að inn-
leiða lausnirnar ásamt því að bjóða
upp á eftirfylgni. Ráðgjöfin er
heildstæð og kemur jafnt að tækni-
legum, félags- og heilsufarslegum
þáttum. Við höfum mikið af tækni-
fólki á okkar snærum en erum auk
þess í samstarfi við Heilsuvernd
ehf. sem er með lækna, sálfræðinga
og sjúkraþjálfara á sínum snær-
um,“ segir Helga.
EFLA vinnur að verkefnum í
byggingargeiranum, hjá iðnfyrir-
tækjum, í skólum og á heilbrigðis-
stofnunum svo dæmi séu nefnd og
eru mismunandi þættir í brenni-
depli á hverjum stað fyrir sig. „Á
leikskólum skiptir hljóðvist miklu
máli en í efnaverksmiðju skipt-
ir efnaáhættumatið meira máli.
Áhættumat starfa er því mjög
breytilegt,“ segir Helga.
Sigurjón Svavarsson öryggis-
sérfræðingur hefur meðal annars
umsjón með áhættumati starfa
hjá EFLU og vinnur mikið úti í
hinum ýmsu fyrirtækjum. Hann
leggur ríka áherslu á eftirfylgni
með vandamálum sem hafa verið
greind. „Ef þekkingin til þess er
ekki til staðar innan fyrirtækj-
anna er hætt við því að hlutirn-
ir renni út í sandinn. Við förum
því í að breyta verklaginu þann-
ig að aðgerðirnar virki í raun. Við
gerum það með því að fá starfs-
fólk inn í greiningarvinnuna
og deila ábyrgðinni strax í upp-
hafi. Þannig erum við ekki bara
að skilja eftir plagg með því sem
þarf að gera heldur að koma því í
framkvæmd,“ segir hann. Sigurjón
hefur meðal annars á sinni könnu
efnaáhættumat en allir sem nota
hættuleg efni í rekstri þurfa að
gera slíkt mat.
„Þá gerum við áhættumat fyrir
vélar sem við hönnum fyrir iðnfyr-
irtæki og aðra aðila en þær þurfa
allar að vera CE-merktar, sam-
kvæmt Evróputilskipun. Það er til
að tryggja öryggi þeirra sem setja
vélarnar upp, vinna við þær, við-
halda þeim og koma til með að
farga þeim.“ Sigurjón tekur fram
að við alla hönnun á vegum EFLU
sé lögð áhersla á að girða fyrir
ýmis vandamál strax í upphafi
hönnunarferilsins til að forðast
slys, hættulegt vinnuumhverfi og
háan viðhaldskostnað.
Hljóðhönnun
EFLA er sömuleiðis með hljóð-
hönnun á sinni könnu en góð
hljóðvist er gríðarlega mikilvæg
þegar kemur að góðu starfsum-
hverfi og líðan á vinnustað. Ólaf-
ur Daníelsson, fagstjóri hljóðvist-
ar hjá EFLU, segir góða hljóðvist á
vinnustöðum einn af þeim þáttum
sem hafa hvað mest áhrif á líðan
og afköst starfsmanna. Áreiti frá
öðrum notendum, tækjabúnaði
og vélum kann að hafa afgerandi
áhrif á einbeitingu og hversu lengi
starfsmaður getur unnið án þess
að finna fyrir þreytu. Þar sem sam-
skipti eru mikilvæg getur hljóm-
mikið rými eða bakgrunnshávaði
minnkað skilvirkni samskipta til
muna. „Okkar hlutverk er að kom-
ast að rót vandans með hljóðmæl-
ingum, útreikningum og greiningu
á aðstæðum og að ráðleggja og
hanna í kjölfarið viðeigandi lausn-
ir. Lausnirnar eru mjög mismun-
andi eftir aðstæðum; í einhverjum
tilfellum þarf að gera skipulags-
breytingar innan rýma en stund-
um þarf t.d. að bæta við hljóðísogs-
flötum, koma upp hljóðskermingu
milli svæða eða bæta hljómburð í
rýminu,“ útskýrir Ólafur.
Lýsingartækni
Davíð Eysteinn Sölvason, fag-
stjóri rafkerfa- og lýsingartækni
hjá EFLU, segir sömuleiðis marg-
sýnt hversu mikil áhrif lýsing hefur
á líðan og starfsorku en með réttri
lýsingu má að hans sögn skapa
stemningu, vellíðan og öryggi.
„Góð lýsing hefur ekki eingöngu
áhrif á sjónræna upplifun heldur
líka á geðheilsuna og líffræðilega
þætti en rannsóknir hafa meðal
annars sýnt að rétt lýsing í skóla-
stofum og notkun dagsbirtu með
markvissri stýringu leiðir til já-
kvæðra áhrifa á frammistöðu nem-
enda,“ segir Davíð.
Mælingar, rannsóknir og endur-
bætur vegna myglusvepps
Finnur Ingi Hermannsson bygg-
ingafræðingur er einn helsti sér-
fræðingur EFLU í málefnum tengd-
um myglu í byggingum. Finnur
segir sífellt fleiri leiða hugann að
loftgæðum og myglu í byggingum
en mikilvægt er að taka á málum
sem þessum strax í hönnunarferli.
Með því má koma í veg fyrir veru-
legt tjón á mannvirkjum og heilsu
fólks. EFLA býður upp á heild-
arlausnir vegna raka eða myglu-
svepps í mannvirkjum. „Við erum
með fullkomin mælitæki sem
mæla og greina t.d. hita, raka, CO2,
örverur, rykagnir, myglusveppi og
myglusveppagró bæði í andrúms-
lofti eða á byggingarefnum og
bjóðum upp á ráðgjöf við hönnun
mannvirkja, greiningar, endurbæt-
ur og eftirlit vegna raka og myglu-
skemmda,“ segir Finnur.
EFLA hefur á að skipa hæfu og
reynslumiklu fagfólki á fjölmörg-
um sviðum en þar starfa á þriðja
hundrað manns. Að ofansögðu má
ljóst vera að þangað er hægt að leita
lausna sama hvert eðli og umfang
verkefnisins er.
Leiðandi á sviði vinnu-
verndar og öryggismála
EFLA verkfræðistofa er alhliða verkfræði- og ráðgjafarfyrirtæki og leiðandi á sviði vinnuverndar og öryggismála. Fyrirtækið er viður-
kenndur aðili hjá Vinnueftirlitinu í að gera áhættumat fyrir hin ýmsu störf og býður einnig upp á hönnun og lausnir. EFLA gengur á undan
með góðu fordæmi og er bæði með vottaða öryggis- og umhverfisstjórnun auk þess sem skrifstofur fyrirtækisins eru í vottaðri byggingu.
Frá vinstri: Finnur Ingi Hermannsson, Davíð Eysteinn Sölvason, Ólafur Daníelsson , Helga Jóhanna Bjarnadóttir og Sigurjón Svavarsson. MYND/GVA