Fréttablaðið - 19.02.2014, Blaðsíða 29
5 | 19. febrúar 2014 | miðvikudagur
„Þetta er náttúrulega gríðarlegur
heiður fyrir okkur að hljóta þessar
tilnefningar og mikil viðurkenn-
ing á því að við náum árangri fyrir
viðskiptavini okkar,“ segir Hregg-
viður Magnússon, framkvæmda-
stjóri Nordic eMarketing, í sam-
tali við Markaðinn. Fyrirtæk-
ið var í vikunni tilnefnt til fimm
verðlauna á Evrópuleitarvélaverð-
launum 2014.
Hreggviður segir fyrirtækið
vera nútímaauglýsingahús, sem
markaðssetur fyrirtæki, vörur
og þjónustu í gegnum netið.
„Það þýðir aðallega í gegnum
nútímaleitarvélar, það snýst allt
um leitarvélarnar, að vera með
sýnilega vöru eða þjónustu þar,“
segir Hreggviður.
Á ELLEFU TUNGUMÁLUM
Fyrirtækið var stofnað árið 2005
og sinnir internetmarkaðssetn-
ingu á mörgum tungumálum.
Hreggviður segir að vöru sem á
að markaðssetja þurfi að beina
beint inn á þann markað þar sem
hún á að seljast. „Tökum Þýska-
land sem dæmi, ef þú vilt selja
einhverja vöru þar þá þarf hún að
vera til á þýsku, hún þarf að finn-
ast undir viðeigandi leitarorðum
og það fljótt. Þannig hjálpum við
viðskiptavinum okkar að komast
fyrir augu einstaklingsins sem er
að leita sér að vörunni. Það gerum
við með markaðsgreiningu, finn-
um hvernig hann leitar og heil-
mikil vinna fer í það með ákveð-
inni aðferðafræði sem við vinnum
eftir. Þess vegna erum við líka
með starfsfólk sem sérhæfir sig
í hinum ýmsu mörkuðum, Þjóð-
verja, Breta og Frakka.“
HELMINGUR TEKNA AÐ UTAN
Hreggviður segir um helming
tekna fyrirtækisins koma að utan.
„Við höfum séð um 10-20% vöxt
hér heima síðustu árin, en aug-
ljóslega sjáum við fyrir okkur að
stóru verkefnin komi að utan og
þetta ár byrjar glimrandi vel,“
segir Hreggviður sem upplýsir
að í janúar hafi fyrirtækið skrif-
að undir samning við fyrirtækið
Symantec, eitt Fortune 500-fyr-
irtækjanna, sem meðal annars
selur vírusvarnarforritið Norton
Antivirus. Einnig eru þau á leið í
spennandi samstarf í Noregi, þar
sem þau munu meðal annars vinna
fyrir Maarud-snakkframleiðand-
ann þekkta og Geox-skóframleið-
andann.
FÆRIST Í AUKANA
Hreggviður segir internetmark-
aðssetningu sífellt vera að færast
í aukana, sérstaklega úti í heimi.
Hann segir kostinn við internet-
markaðssetningu vera auðmæl-
anlegan árangur. „Það er mun
erfiðara að mæla árangur af sjón-
varpsauglýsingum, þótt hann sé
auðvitað einhver. Þú getur ákveð-
ið að fara í herferð á Google, sett
ákveðið mikla fjármuni í það og
mælt nákvæmlega hver árangur-
inn af því er og hvernig fjármun-
unum var þá eytt.“
Hreggviður segir Ísland ávallt
verða svolítið sér á báti í þess-
um efnum sem mörgum öðrum,
vegna smæðar markaðarins.
„Það þarf náttúrulega svo lítið til
hér heima til að eitthvað fari á
flug. En það er klárlega „trend“ í
gangi erlendis þar sem fyrirtæki
eru í sívaxandi mæli að nýta netið
sem markaðsmiðil og eyða stærri
hluta af kökunni, þeim fjármun-
um sem nýttir eru í markaðssetn-
ingu, á internetinu.“
IP-TÖLUMARKAÐSSETNING
Nordic eMarketing sérhæfir sig
einnig í markaðssetningu á sam-
félagsmiðlum. „Samfélagsmiðl-
ar, í alþjóðlegu samhengi, eru
svo miklu meira en bara Face-
book, sem svo margir halda að
sé eini samfélagsmiðillinn,“ segir
Hreggviður og nefnir sem dæmi
LinkedIn, Pinterest og Twitt-
er. „Svo eru leitarvélarnar ekk-
ert bara Google, sem dæmi þá
er aðalleitarvélin í Rússlandi
Yandex. Í Kína er það Baidu.
Það skiptir bara máli að horfa
heilt yfir á hvaða vöru er verið
a ð s e lj a o g hver n i g á a ð
setja hana fram gagnvart hópnum
sem þú miðar á og taka ákvarðan-
ir út frá því,“ segir Hreggviður.
Hann nefnir það sem dæmi um
kost internetsins að hægt er að
beina sjónum að markhópnum
eingöngu. „Við getum til dæmis
tekið konur á aldrinum 45-54 ára,
sem hafa áhuga á prjónaskap og
eru alltaf til dæmis í Central Park,
milli klukkan tvö og fjögur á dag-
inn, og beint sjónum okkar bara
að þeim. Þá getum við líka farið
í IP-tölu markaðssetningu. Við til
dæmis vorum að vinna fyrir Voda-
fone, á alþjóðavísu. Þar vorum við
að vinna með vöru sem einungis
1.500 fyrirtæki í heiminum voru
mögulegir kaupendur að. Þá fórum
við í sérstaka IP-tölu markaðssetn-
ingu nákvæmlega á þessi fyrir-
tæki og vörpuðum auglýsingum
og borðum beint fyrir augu þessa
fólks. Sú herferð skilaði framúr-
skarandi árangri. Við getum allt-
af náð athygli viðskiptavinarins,“
segir Hreggviður.
Byrjar vel hjá Nordic eMarketing
Hreggviður Steinar Magnússon, framkvæmdastjóri þessa internetmarkaðssetningarfyrirtækis, segir helming
tekna þess koma frá erlendum verkefnum. Er tilnefnt í fimm flokkum á Evrópuleitarvélaverðlaununum 2014.
SAMFÉLAGS-
MIÐLAR Nordic
eMarketing
sérhæfir sig
meðal annars í
markaðssetningu
á samfélags-
miðlum.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
VIÐTAL
Fanney Birna Jónsdóttir | fanney@frettabladid.is
Við getum
alltaf náð
athygli viðskiptavinarins.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 I volvo.is
Volvo XC60 AWD, D4 dísil, 20 ventlar, 5 strokkar, 181 hö, tog 420 Nm, sjálfskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 6,4 l/100 km. CO2 169 g/km.
Brimborg og Volvo áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
komdu og skoðaðu nýjan volvo xc60 í brimborg í dag. opið virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16.
Njóttu ferðarinnar til botns í einstakri hönnun og skandinavískum lúxus. Margverðlaunaða öryggiskerfið Borgaröryggi
er staðalbúnaður í Volvo XC60. DSTC stöðugleikastýrikerfið leiðréttir mistök í akstri og CTC beygjuspólvörnin gerir þér
kleift að taka beygjur á meiri hraða, með aukinni mýkt og öruggar en áður. Veghæðin er heilir 23 cm undir lægsta punkt.