Fréttablaðið - 19.02.2014, Síða 40
19. febrúar 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 20
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggvadóttur
Victoria Beckham opnar sig um
hjónaband sitt í nýjasta hefti tíma-
ritsins Allure.
„David Beckham er yndislegasti
maður sem ég hef kynnst. Hann
er frábær faðir. Hann er ótrúlega
hæfileikaríkur, yndislegur eigin-
maður. Ég studdi hann í mörg ár
og hann er stoltur af mér. Hann
styður mig. Það er mikið jafnræði
á okkar heimili,“ segir Victoria.
Hún er ánægð með að fjölskyldan
hafi flutt til Bandaríkjanna árið
2007 svo David gæti spilað fótbolta
með LA Galaxy.
„Það var mesta gæfuspor sem
ég hef tekið að flytja til Bandaríkj-
anna í sex ár.“ - lkg
Styðja hvort
annað
ÁNÆGÐ MEÐ SINN MANN Victoria
elskar David.
„Þetta er uppáhaldsmyndin mín.
Systir mín horfði alltaf á hana
þegar ég var yngri þannig að
ég byrjaði að horfa á hana líka.
Ég hef örugglega horft á hana
upp undir tvö hundruð sinnum,“
segir Aþena Eir Jónsdóttir. Hún
leikur aðalkvenhlutverkið í upp-
setningu Fjölbrautaskóla Suður-
nesja á söngleiknum Dirty Danc-
ing. Söngleikurinn er byggður á
samnefndri kvikmynd sem sló
fyrst í gegn þegar hún var frum-
sýnd árið 1987. Í myndinni leikur
Jennifer Grey Frances Houseman
sem er oftast kölluð Baby. Í upp-
setningu FS heitir sá karakter
Lilla og Aþena er í því hlutverki.
„Ég ætlaði bara að fara í dans-
prufurnar og komst í gegnum
þær. Síðan var ég kölluð inn og
beðin um að fara í leikprufu og
fékk hlutverkið. Ég er rosalega
ánægð með það,“ segir Aþena.
Hún er á fyrsta ári í Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja þótt hún sé
aðeins fimmtán ára því hún
var færð upp um eitt ár. Hún er
yngsti meðlimurinn í sýningunni.
„Það er gert grín að mér öðru
hverju því ég er yngst. Svo er sá
sem leikur á móti mér fimm árum
eldri en ég þannig að það er svo-
lítill munur,“ segir Aþena. Arnar
Már Eyfells leikur Jonna en í upp-
runalegu myndinni er það Patrick
Swayze sem túlkar hann.
„Arnar Már er mjög góður og
sjarmerandi. Hann á yngri systur
sem er jafngömul og ég þannig að
hann lítur á mig sem litlu systur
sína.“
Dirty Dancing er frumsýnt
á morgun í Andrews Theater á
Ásbrú og eru aðeins fimm sýn-
ingar í boði næstu helgi.
„Þetta er búið að vera mjög
skemmtilegt ferli. Það skemmti-
legasta sem ég hef gert og það
erfiðasta. Ég er mjög spennt
og stressuð á sama tíma fyrir
frumsýningunni. Söguþráður-
inn í sýningunni er sá sami en
sumum atriðum hefur verið örlít-
ið breytt,“ segir Aþena. Aðspurð
um goðsagnakenndu lyftuna úr
myndinni segir hún það atriði
aðeins breytt.
„Það er lyfta en hún er ekki
eins og í myndinni. Þessi lyfta í
myndinni er náttúrulega ein sú
erfiðasta sem hægt er að finna í
dansi og því útfærðum við hana
aðeins öðruvísi.“
Aþena hefur æft dans síðan hún
var tíu ára en veit ekki hvort hún
ætlar að leggja leiklistina fyrir
sig í framtíðinni.
„Ég hef aðra drauma. Mig
langar að verða bóndi. Ég er ekki
búin að ákveða hvar en ég ætla á
Hvanneyri eftir Fjölbrautaskól-
ann. Útskrifast sem búfræðingur
og tamningamaður og skella mér
upp í sveit.“
liljakatrin@frettabladid.is
Baby ætlar að verða bóndi
Aþena Eir leikur aðalkvenhlutverkið í uppsetningu Fjölbrautaskóla Suðurnesja á söngleiknum Dirty Danc-
ing. Hún segir æfi ngaferlið hafa verið skemmtilegt en erfi tt. Hana dreymir um að verða bóndi í framtíðinni.
NÁ VEL SAMAN Aþena og Arnar Már eru eins og systkini. MYND/EINKASAFN
Þessi lyfta í mynd-
inni er náttúrulega ein sú
erfiðasta sem hægt er að
finna í dansi og því
útfærðum við hana
aðeins öðruvísi.
Aþena Eir Jónsdóttir
STÍFAR ÆFINGAR Aþena hefur dansað síðan hún var tíu ára. FRÉTTABLAÐIÐ/EINKASAFN
ÍLEGO SL. TA L 2D
LEGO ÍSL. TA L 3D
ÍLEGO SL. TA L 3DLÚXUS
ROBOCOP
ROBOCOP LÚXUS
HER
Ý ÖSK JAÐ MEÐ KJ TBOLLUM ...2 2D
SECRET LIFE OF WALTER MITTY
THE HOBBIT 3D 48R
NYMPHOMANIAC PART 1
ROBOCOP
INSIDE LLEWYN DAVIS
DALLAS BUYERS CLUB
AUGUST: OSAGE COUNTY
THE BOOK THIEF
KL. 3.30 - 5.45
KL. 3.30 - 5.45
KL. 3.30 - 5.45
KL. 5 - 8 - 10.35
KL. 8 - 10.35
KL. 8 - 10.30
KL. 3.30
KL. 8 - 10.30
KL. 5.40 - 9
Miðasala á: og
KL. 5.30 - 8 - 10.30
KL. 5.30 - 8 - 10.30
KL. 5.40 - 8
KL. 10.30
KL. 6
KL. 9
NÁNAR Á MIÐI.IS
NYMPHOMANIAC PART 1
ROBOCOP
INSIDE LLEWYN DAVIS HER
DALLAS BUYERS CLUB
KL. 8 - 10:15
KL. 8 - 10:15
KL. 5.50
KL. 5.50
- THE GUARDIAN
- T.V. - BÍÓ VEFURINN / S & H- GDÓ - MBL
ROBOCOP 8, 10:25(POWER)
LEGO - ÍSL TAL 3D 5:50
DALLAS BUYERS CLUB 5:45, 8, 10:20
47 RONIN 3D 10:30
SECRET LIFE OF WALTER MITTY 5:45, 8
G.D.Ó - MBL
TIME
T.V. - Bíóvefurinn.is
VIDEODROME
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
TIMEHOLLYWOOD REPORTER
ENTERTAINMENT WEEKLYROGEREBERT.COM
CHICAGO SUN-TIMES
GDÓ - MBL
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
ÞETTA er nógu gott, svona til bráða-
birgða, hugsaði ég með sjálfri mér og límdi
filmu yfir síðustu rúðuna í útidyrahurð-
inni. Ég var búin að líma yfir sex rúður,
með mattri plastfilmu sem fékkst á rúllum.
Ódýrari týpan. Sú dýrari hefði litið betur
út komin á glerið, ég segi það ekki, með
sanseraðri áferð! En þessi var látin duga.
Til bráðabirgða.
ÞAÐ hvarflaði líka að mér að sú dýrari
hefði verið auðveldari í uppsetningu,
þar sem ég skóf til hliðanna lofbólur
með litlum gráðuboga, eina áhaldinu
sem ég fann til verksins. Filman lét
ekki vel að stjórn og að verki loknu voru
enn litlar lofbólur hér og þar undir film-
unni. En þetta yrði látið duga, svona
til bráðabirgða. Innst inni vissi ég
auðvitað að filman yrði þarna til
eilífðarnóns. „Til bráðabirgða“
hefur nefnilega tilhneigingu til
að togna vel í annan endann.
ÉG hafði einsett mér að í þeim
búferlaflutningum sem fjölskyld-
an hefur staðið í síðustu daga
yrðu hlutirnir fullkláraðir strax.
Ekkert hálfkák liðið. Sérstaklega þar sem
síðustu vikurnar á gamla staðnum höfðu
einmitt farið í að ljúka ýmsum atriðum
sem áttu alltaf að vera „bara til bráða-
birgða“ en höfðu ílengst.
ENDA voru hlutirnir teknir með trompi
á nýja staðnum, til að byrja með. Málað í
hólf og gólf og drifið upp úr kössum. Hillur
ruku upp á vegg og mottur flettust yfir
gólfin. Sorterað var ofan í skúffur og raðað
í geymslur. Varla gafst tími til að borða,
svo mikill var atgangurinn.
FLJÓTLEGA dró þó af okkur. Búferla-
flutningar eru mikið verk og brátt var
farið að kasta til höndum. Setningar eins
og: „Æ, sturtaðu þessu bara hér, ég tek
þetta síðar,“ og „Hengdu þetta bara þarna,
við lögum það á eftir,“ fóru að heyrast æ
oftar. Við látum auðvitað eins og allt þetta
hálfkák verði fullklárað síðar.
ÞEGAR filman er loks komin upp skrifa
ég nöfnin okkar á lúinn bréfmiða, fyrir
póstinn, og festi hann á útidyrahurðina
með límbandi. Það sleppur alveg, svona til
bráðabirgða.
Bara til bráðabirgða