Fréttablaðið - 19.02.2014, Page 41
MIÐVIKUDAGUR 19. febrúar 2014 | LÍFIÐ | 21
Vatnagörðum 24-26 • Sími 520 1100 • www.bernhard.is
3,6 L/100KM Í BLÖNDUÐUM AKSTRI C02 ÚTBLÁSTUR AÐEINS 94 g
HONDA CIVIC 1.6 DÍSIL KOSTAR FRÁ KR.
Áreiðanlegasti bílaframleiðandinn
Samkvæmt What Car og Warranty Direct hefur Honda verið
valin áreiðanlegasti bílaframleiðandinn átta ár í röð.
Bí
ll á
m
yn
d:
H
on
da
C
ivi
c 1
.6
i-D
TE
C
E
xe
cu
tiv
e.
3,63,3 4,0L /100km L /100kmL /100km
Utanbæjar akstur
Blandaður akstur
Innanbæjar akstur
CO2
útblástur
94 g/km
Komdu í reynsluakstur og prófaðu Honda Civic dísil,
með nýrri Earth Dreams Technology dísilvél, sem
býður upp á einstakt samspil sparneytni og krafts.
Umboðsaðilar:
Bernhard, Reykjanesbæ, sími 421 7800
Bílver, Akranesi, sími 431 1985
Höldur, Akureyri, sími 461 6020
Bragginn, Vestmannaeyjum, sími 481 1535
www.honda.is
HONDA CIVIC 1.4 BENSÍN - BEINSKIPTUR, KOSTAR FRÁ KR. 3.490.000
HONDA CIVIC 1.8 BENSÍN - SJÁLFSKIPTUR, KOSTAR FRÁ KR. 3.940.000
„Myndbandið hefur fengið frábær-
ar viðtökur,“ segir Barði Jóhanns-
son, sem skipar hljómsveitina
Starwalker ásamt JB Dunckel sem
er best þekktur úr hljómsveitinni
Air, en þeir félagar frumsýndu sitt
annað myndband á vefsíðu Rolling
Stone Magazine á dögunum, við
lagið Losers Can Win.
„Okkur langaði að gera eitthvað
sem væri ólíkt því sem við höfum
gert áður og eitthvað sem fólk
myndi ekki búast við frá okkur.
Myndband sem myndi hressa, en
væri samt smá sýrt með vísun í
áttunda og níunda áratuginn. Plan-
ið var að vera á mörkum þess að
vera „loser“ og „winner“. Eins og
segir í textanum þarf það sem er
gott ekkert endilega að vera flókið,
þú getur gert einfalt lag, en þá er
bara málið að velja réttu nóturn-
ar. Svo sér karma-lögreglan um að
láta taparana vinna!“ heldur Barði
áfram. „Við höfum verið með kúlur
í báðum vídeóunum okkar, og ég
held við höldum því bara. Svo vild-
um við að stelpurnar væru rokk-
stjörnurnar og við meira eins
hljóðfæraleikarar.“
Leikstjóri myndbandsins er
Sævar Guðmundsson, sem leik-
stýrði einnig fyrsta mynd-
bandi sveitarinnar við lagið Bad
Weath er.
„Myndbandið við Losers Can
Win var tekið í París og við ætl-
uðum að skjóta utandyra, við kast-
ala og hallir og hafa þetta dálít-
ið flott. En þegar til Parísar var
komið var svo kalt að það var ekki
hægt að bjóða Parísarbúum upp
á útiveruna, þannig að við end-
uðum á að taka myndbandið inni í
Air-hljóðverinu,“ segir Sævar, og
bætir við að þeir hafi skemmt sér
konunglega við tökurnar, þó að eitt
og annað hafi farið úrskeiðis í tök-
unum.
„Eitt skotið var þannig að við
létum Barða liggja á hliðinni og
svo átti glimmer að koma í gusum
og detta ofan á hann í frekar miklu
magni. Það gekk ekki betur en svo
að þegar fyrsta gusan kom fór allt
glimmerið beint í augun á Barða.
Við eyddum hálfum tökudegi í að
reyna að plokka þetta úr augun-
um á honum,“ segir Sævar, léttur
í bragði.
Sævar og Barði hafa unnið
mikið saman, meðal annars við
gerð íslensku þáttaraðarinnar
Réttur, en Sævar leikstýrði fyrstu
tveimur seríunum, þar sem Barði
sá um tónlistina.
Starwalker gefur út sína fyrstu
smáskífu, sem heitir einnig Losers
Can Win, þann 18. mars næstkom-
andi.
olof@frettabladid.is
Sýrt myndband Starwalker hressir
Barði Jóhannsson, kenndur við Bang Gang, og JB Dunckel úr Air skipa hljómsveitina Starwalker. Þeir frumsýndu myndband við lagið
Losers Can Win á vef Rolling Stone Magazine. Tökurnar gengu ekki átakalaust fyrir sig og fékk Barði meðal annars glimmer í auga.
LOSERS CAN WIN
Myndbandið er
við lagið Losers
Can Win, en áður
hefur sveitin gefið
út myndband við
lagið Bad Weather.
MYNDIR/JEANEEN LUND
ÝMISLEGT FÓR ÚRSKEIÐIS Myndbandið var tekið í París,
en það var svo kalt að þau þurftu að færa tökurnar inn í Air-
hljóðverið.
SÆVAR OG JB DUNCKEL Sævar Guðmundsson leikstýrði mynd-
bandinu, en hann hefur áður leikstýrt þáttaröðunum um Venna Páer
og Sönn íslensk sakamál svo eitthvað sé nefnt.
Það gekk ekki betur
en svo að þegar fyrsta
gusan kom fór allt glimm-
erið beint inn í augað á
Barða. Við eyddum hálfum
tökudegi í að reyna að
plokka þetta úr augunum
á honum.
Sævar Guðmundsson