Fréttablaðið - 19.02.2014, Page 42
19. febrúar 2014 MIÐVIKUDAGUR
| SPORT | 22
86 & 96
Einar Kristinn Kristgeirsson
(rásnúmer 86) og Brynjar Jökull
Guðmundsson (96) keppa í
stórsvigi klukkan 07.00 í dag.
50,10
Fiðluleikarinn Vanessa-May frá
Taílandi varð í 67. og síðasta sæti
í stórsvigi í gær. Hún var rúmum
50 sekúndum á eft ir sigurvegar-
anum Tina Maze.
VETRARÓLYMPÍULEIKARNIR SOCHI 2014 STJÖRNUR DAGSINS
Hollendingar halda áfram að
gera það gott í skautahlaupi á
leikunum í Sotsjí. Í gær unnu þeir
þrefalt í 10.000 m skautahlaupi
karla en sigurvegari var hinn
28 ára gamli Jorrit Bergsma
sem kom í mark á glæsilegu
Ólympíumeti. Sven Kramer fékk silfur og Bob de Jong gull.
Kramer hafði stefnt að sigri í greininni en hann var
dæmdur úr leik í henni á leikunum í Vancouver árið
2010 eftir að hafa farið eftir röngum fyrirmælum
þjálfara síns. Hann á þó gull í 5.000 m skautahlaupinu
í Sotsjí en í þeirri greinn vann Bergsma brons.
DAGSKRÁ ÞRIÐJUDAGUR
Tina Maze frá Slóveníu varð fyrsta
konan í 42 ár til að vinna gull í
bæði bruni og stórsvigi á sömu
Ólympíuleikum en hún vann sigur
í síðarnefndu greininni í gær.
Maze hefur átt erfitt upp-
dráttar í vetur en stefndi að
því að toppa á leikunum. „Allt
tímabilið gekk út á að sýna
mitt besta hér,“ sagði hún í
gær. Anna Fenninger frá Aust-
urríki fékk silfur og hin þýska
Viktoria Rebensburg brons.
TINA MAZA
STÓRSVIGSKONA
JORRIT BERGSMA
SKAUTAHLAUPARI06.55 Stórsvig karla - fyrri ferð
08.00 Íshokkí karla: Svíþjóð -
Slóvenía (Sport 4)
09.00 Samhliða snjóbrettasvig
(Sport 3)
10.30 Stórsvig karla - seinni f.
11.40 Sprettganga liða (Sport 3)
12.30 Íshokkí karla: Fin.-Rús.
14.25 Skíðaskotfimi (Sport 3)
15.00 Snjóbretti
15.00 Krulla karla (Sport 5)
17.00 Íshokkí karla
17.00 Íshokkí karla (Sport 3)
17.20 Bobsleðar (Sport 4)
22.15 Samantekt frá degi 11
SPORT
FÓTBOLTI Lærisveinar Arsene
Weng er geta varla fengið stærra
verkefni en í kvöld þegar þeir fá
Evrópumeistara Bayern München
í heimsókn á Emirates í fyrri leik
liðanna í sextán liða úrslitum Meist-
aradeildarinnar. Þeir mæta þá mikl-
um sigurvegurum, á miklu skriði og
við aðstæður þar sem Arsenal hefur
kolfallið síðustu ár.
Bayern München hefur aðeins
tapað einum leik frá því í júlí, er með
sextán stiga forskot í þýsku deildinni
og handhafi fimm titla, þar á meðal
Meistaradeildarbikarsins sem liðið
vann á Wembley í fyrravor.
„Við vitum að við erum að mæta
sigurstranglegasta liðinu í keppn-
inni. Það sem við höfum hins vegar
fram yfir Bayern er að við höfum
bara spilað stóra leiki í Meistara-
deildinni og enska bikarnum á
þessu tímabili. Við höfum því þurft
að vera hundrað prósent í öllum
leikjum,“ sagði Arsene Wenger,
stjóri Arsenal.
Það eru liðnir tólf mánuðir síðan
þessi lið mættust af sama tilefni,
á heimavelli Arsenal í fyrsta leik
í sextán liða úrslitum. Þá tapaði
Arsenal fyrri leiknum 1-3 á heima-
velli og var nánast úr leik. 2-0 sigur
í seinni leiknum dugði ekki og Ars-
enal var þriðja árið í röð úr leik í
sextán liða úrslitunum. Tvisvar á
þessum þremur árum hefur liðið
tapað á móti verðandi meisturum
(Barcelona 2011) og tvö síðustu
ár hefur stórslys í fyrsta leik gert
strax út um vonir liðsins því fyrir
tveimur árum tapaði Arsenal 4-0 í
fyrri leiknum á móti AC Milan.
Arsene Wenger segir lið sitt hafa
þroskast mikið á þessu eina ári.
„Við erum miklu sterkari andlega
en fyrir ári. Í fyrra höfðum við
tapað bikarleik á móti Blackburn í
leiknum á undan en núna unnum við
Liverpool og erum allir staðráðnir
í að vinna þennan leik,“ sagði Wen-
ger. Bayern var komið í 2-0 eftir 22
mínútur í leiknum í fyrra.
„Við töpuðum á útivallarmörkum
í fyrra og það sýnir okkur hversu
mikilvægt það er að fá ekki á sig
mark á heimavelli. Hver einasta
mínúta mun skipta máli í þessum
leik og við vitum það,“ sagði Weng-
er.
Leikur Arsenal og Bayern hefst
klukkan 19.45 og er í beinni á Stöð
2 Sport. Á sama tíma verður leikur
AC Milan og Atlético Madrid sýnd-
ur á Stöð 2 Sport 3. ooj@frettabladid.is
Hvað hefur breyst á einu ári?
Arsenal hefur dottið út úr sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar undanfarin þrjú ár og verkefni
kvöldsins er af erfi ðari gerðinni þegar Evrópumeistarar Bayern München mæta á Emirates.
ARSENAL Í SEXTÁN LIÐA ÚRSLITUM MEISTARADEILDARINNAR UNDANFARIN TVÖ TÍMABIL
FYRRI
LEIKUR
-6
(1-7)
2013
Bayern (heima)
1-3 tap
2012
AC Milan (úti)
0-4 tap
SEINNI
LEIKUR
+5
(5-0)
2013
Bayern (úti)
2-0 sigur
2012
AC Milan (heima)
3-0 sigur
STÓÐ TÆPT Lokaspretturinn í 15 km
skíðaskotfimi var æsispennandi. Norð-
maðurinn Emil Hegle Svendsen fagnaði
of snemma og gerði sér ekki grein fyrir
því að Martin Fourcade frá Frakklandi
var nálægt því að skjóta sér fram úr við
marklínuna. Sigur Svendsens var svo
staðfestur á myndum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FYRSTA GULLIÐ David Wise frá
Bandaríkjunum vann sigur í skíðafimi
í hálfpípu í Sotsjí í gær en þetta er í
fyrsta sinn sem keppt er í greininni á
Vetrarólympíuleikum. Hann fékk 92 stig
fyrir sigurferð sína. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY