Fréttablaðið - 19.02.2014, Page 46
19. febrúar 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 26
„Ég er ótrúlega sáttur við að fá
að kynna vörurnar þeirra. Það er
svo sem ekki erfitt þar sem þetta
eru frábærar vörur sem ég hef
alist upp með og séð allar helstu
stjörnurnar í,“ segir tónlistarmað-
urinn Steinar Baldursson. Hann
hefur skrifað undir árssamstarfs-
samning við Nike á Íslandi og mun
kynna vörur merkisins, hvort sem
hann er á sviði eða á skólabekkn-
um í Verzlunarskóla Íslands þar
sem hann er á þriðja ári.
Steinar kom, sá og sigraði á
síðasta ári með lagið Up af sinni
fyrstu plötu, Beginning, og hefur
haft í nægu að snúast.
„Þetta gerðist svo fáránlega
hratt að núna er ég aðeins byrj-
aður að átta mig á þessari vel-
gengni,“ segir Steinar. Hann er
með ýmislegt í bígerð á næstunni.
„Núna er ég að vinna að nýju
lagi og gera myndband við það. Ég
hlakka rosalega mikið til að skapa
eitthvað því ég er búinn að vera
mjög upptekinn að undanförnu
við að troða upp. Svo langar mig
bráðum að halda tónleika. Ekki
endilega risastóra heldur hágæða-
tónleika og toppsýningu sem fólk
má ekki missa af.“ - lkg
Steinar semur við Nike á Íslandi
Tónlistarmaðurinn kynnir vörur merkisins, hvort sem það er á sviði eða í skóla.
UPP MEÐ SÉR Steinar er glaður með
samninginn við Nike.
Þetta gerðist svo
fáránlega hratt að núna er
ég aðeins byrjaður að átta
mig á þessari velgengni.
„Mitt uppáhaldslag er Karen sem
Bjarni Ara söng, það náði manni
alveg. Ég var 14 ára þá og söng
þetta lag af mikilli innlifun.“
Ilmur Kristjánsdóttir leikkona.
UPPÁHALDS ÍSLENSKA
EUROVISION-LAGIÐ ÞITT?
„Viðtökurnar hafa verið stórkost-
legar og mjög mikið að gera frá
fyrsta degi,“ segir Rut Hermanns-
dóttir, einn þriggja eigenda Búðar-
innar, kaffibars og verslunar þar
sem áherslan er á norræna hönnun.
Búðin var opnuð síðastliðinn
föstudag en hún er til húsa í Brook-
lyn-hverfinu, Viðtökurnar hafa
verið framar vonum og er það ekki
síst fyrir þær sakir að Búðin býður
upp á dýrasta kaffidrykkinn í New
York. Blaðamenn hafa flykkst á
kaffibarinn þar sem boðið er upp á
sérinnflutt kaffi frá Norðurlöndun-
um og hefur verið fjallað um Búð-
ina á miðlum á borð við gothamist.
com, sprudge.com og bedfordand-
bowery.com.
Dýrasti kaffidrykkurinn er svo-
kallað lakkríslatté með sérinn-
fluttu lakkríssírópi og lakkrísdufti
frá danska framleiðandanum Johan
Bülow. Drykkurinn seldist upp á
fyrsta degi en hann kostar heila sjö
dollara, um 794 íslenskar krónur.
„Daginn eftir að við opnuðum
kláraðist lakkrísinn sem er notað-
ur í kaffidrykkinn og við þurftum
að hringja til Danmerkur og trufla
forstjóra Johan Bülow á laugardags-
nóttu til að fá þetta sent til okkar
með hraði. Svo er búið að vera
óveður hérna síðustu daga en ég á
loksins von á sendingunni í hádeg-
inu í dag,“ segir Rut sem hefur ekki
undan að svara fyrirspurnum fjöl-
miðla um kaffið. „Við erum stöðugt
að taka við sjónvarpsstöðvum og
fjölmiðlum, NBC kemur í dag og Al
Jazeera er að biðja um viðtal. Sem
er auðvitað alveg frábær kynning
fyrir okkur.“
Rut er sjálf búsett í Ósló en ásamt
henni eiga þau Crystal Pei og Elliot
Rayman hlut í versluninni en sá
síðarnefndi er yfir kaffibarnum.
„Ég er ennþá með annan fótinn í
Ósló en á eftir að flytja hingað með
tíð og tíma. Núna er ég hér til að
koma þessum sirkus af stað.“
Hægt er að nálgast upplýsingar
um Búðina á vefsíðunni Budin-nyc.
com. alfrun@frettabladid.is
Bjóða upp á dýrasta
kaffi bollann í New York
Rut Hermannsdóttir opnaði nýverið Búðina, kaffi bar og verslun í Brooklyn í New
York. Viðtökurnar hafa verið góðar en þau bjóða upp á dýrasta kaffi bolla New
York-borgar, lakkríslatté sem kostar heila sjö dollara eða 794 íslenskar krónur.
● Farmers
Market
● Artic Mood
● Hring eftir
hring
● OmNom
Chocolate
● Pancake Pans
frá Kraum
● Saltverk
● Sóley
Organics
● Thorunn
Arnadottir
● Vík Prjónsdóttir
● Volki
➜ Íslensk merki sem
fást í Búðinni:
HEFUR EKKI
UNDAN Rut Her-
mannsdóttir hefur
ekki undan að
svara fyrirspurn-
um fjölmiðla um
dýrasta kaffidrykk
borgarinnar en
hún var að taka
á móti sjón-
varpsstöðvunum
NBC og Al Jazeera
þegar Fréttablaðið
náði af henni tali.
MYND/BRYNDIS
„Þetta er í fyrsta skiptið sem við
komum fram á erlendri grundu.
Við ætlum að heimsækja nýlendu-
herrana í Danmörku,“ segir
Gunnar Ragnarsson, söngvari
hljómsveitarinnar Grísalappalísu
sem heldur til Danaveldis í næsta
mánuði.
Um er að ræða tónleikaferð-
lag þar sem sveitin kemur fram á
þrennum tónleikum ásamt dönsku
rafkenndu popp-rokksveitinni
Reptile Youth, 13., 14., og 15.
mars í Kaupmannahöfn, Álaborg
og Árósum. „Við verðum þarna í
tæpa viku. Það er mikil tilhlökkun
í sveitinni og það verður forvitni-
legt að syngja á íslensku þarna
úti,“ segir Gunnar léttur í lundu.
Sveitin ætlar þó að snara einum
textanum yfir á dönsku í tilefni
ferðalagsins. „Við ætlum að snara
einu lagi yfir á dönsku. Það er lag
sem fjallar um uppvask og önnur
heimilisstörf, það verður forvitni-
legt að heyra útkomuna.“
Frumraun Grísalappalísu sem
ber titilinn Ali var í þriðja sæti
yfir bestu plötur síðasta árs að
mati sérfræðinga Fréttablaðs-
ins. Sveitin ætlar sér að fylgja
þeirri plötu eftir sem allra fyrst.
„Við erum á leið í upptökur um
helgina og ætlum að byrja á nýrri
plötu. Við ætlum að reyna að gefa
út reglulega og vera ekki að sitja
á efninu,“ segir Gunnar spurður
út í framhaldið.
- glp
Snara einu lagi yfi r á dönsku
Hljómsveitin ætlar að heimsækja nýlenduherrana í Danmörku. Þetta er í fyrsta sinn
sem sveitin fer í tónleikaferðlag erlendis. Þá eru upptökur á nýrri plötu að hefj ast.
HEIMSÆKJA DANI Hljómsveitin
Grísalappalísa fer í tónleikaferðalag til
Danmerkur í næsta mánuði.
MYND/MAGNUS ANDERSEN
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
KJARNA - ÞVERHOLTI 2
• 270 MOSFELLSBÆ
• SÍMI: 586 8080
• FAX: 586 8081
WWW.FASTMOS.IS
Spóahöfði 12 - 270 Mosfellsbær
Fallegt 155,2 m2 raðhús á einni hæð auk ca. 18 m2 millilofts, á
mjög góðum stað við Spóahöfða 12 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist
í góða stofu, eldhús með borðkrók, sjónvarpshol, þrjú svefn-
herbergi, baðherbergi og þvottahús, auk þess er gott milliloft í
húsinu, en þar eru tvö svefnherbergi. V. 43,9 m.
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is
Jón Guðmundsson, sölustj. og lögg. fast.sali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fast.sali.
Kjarrmóar 31 – Garðabæ.
Glæsilegt 84,8 fm 3ja herbergja raðhús á tveimur hæðum. Eignin
er nánast öll endurnýjuð á mjög smekklegan og vandaðan máta.
Falleg hvít sprautulökkuð innrétting í eldhúsi. Baðherbergi allt nýtt
með góðum sturtuklefa. Falleg og vönduð gólfefni, sandblásin eik og
fallegar flísar. Lóðin er mjög snyrtileg, nýlega hellulögð fyrir framan
húsið með hitalögn undir og góður sólpallur er í suðurgarði. Mjög
falleg eign í alla staði. Verð 33,9 millj Verið velkomin.
OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 17.30-18.00
OPIÐ HÚS