Fréttablaðið - 22.03.2014, Side 30

Fréttablaðið - 22.03.2014, Side 30
22. mars 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30 Þorgerður var á síðasta ári í Menntaskólanum við Sund árið 1984 þegar verkfall skall á sem stóð yfir í 26 daga. „Á þessum árum lentum við svolítið í ýmiss konar verkföllum. Ég man eftir mjólkurverk- falli þarna stuttu áður. Stúdentsveturinn minn var þetta ár og það var bara þannig að maður fór ekkert í skólann og var bara að tjilla. Ég las mjög mikið og vann upp mikið af bókum sem mig hafði langað að lesa– allt annað en skólabækur. Svo sinnti ég líka hest- unum mínum miklu betur en ég hafði gert. Þetta var á diskótímabilinu og ég hlustaði mikið á diskó en mér hefur alltaf þótt gaman að dansa. Maður hlustaði meira á tónlist þarna en áður. Ég hlustaði mikið á Bowie og Bubba og bara svona það sem fólkið í kringum mig var að hlusta á. Þetta var á tíma þar sem bjórinn var ekki kominn, þannig að það voru harðari drykkju- efni í gangi og það voru nokkrir sem bara hættu í náminu og fóru í sukk og svínarí. Það eru nefnilega mjög slæmar hliðar á verkföll- um, menn verða að gera allt til að ná saman. Ég var ármaður MS þarna, formaður nem- endafélagsins, ég man að mér rann svolítið í skap þegar ég flutti útskriftarræðuna, þar skammaði ég kennarana svolítið og sagði að það ætti ekki að nota saklausa nemendur í kjarabaráttu og var örugglega orðin reið út í ráðuneytið líka. Má kannski segja að ég hafi verið reið ung kona og hafi viljað klára hlutina og hætta þessari dellu. Þetta var ekki vinsælt og það voru einhverjir kennarar sem gengu út– sem er alveg skiljanlegt.“ Verkföll fara í bóklestur, leiklist, Verkfall framhaldsskólakennara sem nú stendur yfir er langt í frá hið fyrsta sinnar tegundar og nokkurn veginn allir Íslendingar eiga sína verkfallssögu að segja. Blaðamaður ræddi við fjóra þjóðþekkta einstaklinga um þeirra verkfall, hvernig tímanum var eytt og hvort það hefði haft einhverjar afleiðingar í för með sér í lífi þeirra. Þorsteinn var á lokaári sínu í Menntaskólanum í Reykjavík árið 1987 en verkfallið það ár stóð í hálfan mánuð. „Verkfallið er mér mjög minnisstætt. Þetta var búið að vera næstum árlegt dæmi og við vorum orðin dálítið þreytt á þessu en þetta var nokkurn veginn inni í stúdentsprófunum hjá mér. Ég var reyndar ekkert mikið að spá í þetta af því að ég var í inntökuprófum í Leiklistarskólanum á sama tíma. En planið hjá mér var að ef ég kæmist ekki inn í leiklistina þá ætlaði ég í lögfræði í há- skólanum. Sem betur fer fyrir þjóðina, þar sem af tvennu illu er örugglega betra að hafa mig í leiklistinni. Á verkfallstímanum var ég að leika í leikriti í Hallgrímskirkju hjá Guðrúnu Ásmundsdóttur um prestinn Kaj Munk, sem var nokkuð vinsæl sýning, og í verkfallinu fórum við með það til Danmerkur. Ég var eiginlega í öllu nema að hugsa um námið, þetta hentaði mér ágætlega. En þar fyrir utan voru þessi verkföll orðin ansi þreytandi. Ég rétt skreið síðan yfir mörkin á stúd- entsprófinu, komst inn í Leiklistarskólann, afþakk- aði lögfræðina og fór til útlanda að leika með Guðrúnu Ásmunds, Arnari Jónssyni og fleirum. Það má segja að þetta hafi verið tímamótavor hjá mér. Það vill svo skemmtilega til að ég var að útskrifast úr MR þetta verkfallsvor og núna er sonur minn, Hlynur Þorsteinsson, að útskrifast úr Fjölbraut í Ármúla. Hann er ekkert þjakaður af áhyggjum en þetta gæti haft áhrif ef þetta dregst á langinn. Það væri mjög óheppilegt þar sem hann stefnir á háskólann í haust og þetta gæti líka haft áhrif á sumarvinnuna.“ ➜ ÆTLAÐI Í LÖGFRÆÐI EF LEIKLISTIN MISHEPPNAÐIST Þorsteinn Guðmundsson, leikari og grínisti. ➜ HLUSTAÐI MIKIÐ Á DISKÓ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi mennta- málaráðherra og forstöðumaður mennta - og nýsköp- unarsviðs SA. FR ÉT TA BL AÐ IÐ /D AN ÍE L FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is FRUMSÝNING NÝR RENAULT MEGANE RENAULT MEGANE DÍSIL, SJÁLFSKIPTUR. VERÐ 3.590.000 KR. Renault Megane hefur slegið í gegn sem einn sparneytnasti bíll landsins. Nýr Megane er ekki síðri sparibaukur því beinskiptur Megane með start/stopp búnaði notar aðeins 3,5 l/100 km og sjálfskiptur 4,2 l/100 km*. Þú getur því keyrt ríflega 1.700 km á einum tanki á þessum framúrskarandi sparneytna bíl og CO2 útblástur er einungis frá 90 g/km. ÞÚ TANKAR SJALDNAR Á RENAULT RÍFLEGA HRINGINN Á EINUM TANKI! BL ehf / Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar, Reykjanesbæ, 420 0400 – Bílasalan Bílás, Akranesi, 431 2622 – Bílasala Akureyrar, Akureyri, 461 2533 – Bílaverkst. Austurlands, Egilsst., 470 5070 – IB ehf., Selfossi, 480 8080 L/ 10 0 KM3,5 M.V. BLANDAÐAN AKSTUR E N N E M M / S ÍA / N M 6 19 6 8 / * M ið að v ið u pp ge fn ar tö lu r f ra m le ið an da u m e ld sn ey tis no tk un í bl ön du ðu m a ks tri / Au ka bú na ðu r á b ílu m 17 ” á lfe lg ur .
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.