Fréttablaðið - 22.03.2014, Side 31
LAUGARDAGUR 22. mars 2014 | HELGIN | 31
fiskvinnslu og mikið „tjill“
Ilmur var í Menntaskólanum við Hamra-
hlíð á fyrsta ári vorið 1995 þegar verk-
fall hófst sem stóð í um sex vikur.
„Við biðum svona eitthvað eftir því
að þetta myndi leysast en svo stefndi
ekkert í það og við ákváðum, ég og
vinkona mín Æsa Guðrún Bjarnadóttir,
að fara í heimsreisu: „Fjalar og Galar
skoðar heiminn.“ En það var síðan
ákveðið að Fjalar og Galar myndu
frekar fara að vinna í fiski í Grundar-
firði. Við fengum vinnu í frystihúsinu í
Grundarfirði og bjuggum þar í verbúð.
Þetta var svona meira nútímaleg
verbúð þar sem við bjuggum í raðhúsi
en með okkur bjó pólsk kona, maður
frá Suður-Afríku og önnur stelpa frá
Þorlákshöfn. Við vorum að verka
úthafs karfa, pilla rækju, ormahreinsa
og pakka og maður náttúrulega lærði
inn á þetta frystihúsadót allt saman
sem var mjög gaman og ég er mjög
þakklát fyrir þessa reynslu. Þetta er
eitthvað sem manni fannst maður
þurfa að hafa gert sem Íslendingur– að
vinna í fiski– og ég kláraði það þarna
þessa önn, gat hakað í það hólf.
Verkfallið leystist þarna um vorið en
við ákváðum að vera þarna áfram og
vorum út sumarið. Fórum svo aftur í
MH næsta haust. Þetta markaði alveg
spor, maður missti þarna út heila önn
og var auðvitað lengur í náminu fyrir
vikið.
En okkur fannst þetta bara mjög
spennandi, við vorum á fyrsta ári í
menntaskóla, bara 16 ára, og það var
bara ævintýri að „þurfa“ að fara að
heiman og vinna í fiski. Ég á engar
slæmar minningar frá þessum tíma.“
Sólmundur var í Menntaskólanum
við Sund árið 2000 þegar fram-
haldsskólakennarar voru átta vikur í
verkfalli.
„Ég var náttúrulega bara mjög
spenntur og vongóður um að það
yrði af verkfallinu. Vonaðist til þess
að samningar myndu ekki nást í tæka
tíð, þetta var eitt af fáum skiptum
sem maður fylgdist með fréttum á
þessum tíma og sem betur fer tókst
það ekki. Ég var sem sagt vongóður
um að fá frí og þess vegna á ég bágt
með að skilja hversu skynsamir
krakkar eru orðnir í dag– maður sá
þetta fyrir sér sem paradís. Ég var bú-
inn að lenda í verkfalli í grunnskóla
og vissi hvað þetta yrði skemmtilegt.
Svo kom að þessu og þetta stóðst
allar væntingar. Maður náttúrulega
svaf bara endalaust. Á þessum tíma
voru engar skyldur hjá manni, ég var
nýorðinn sautján ára, bara pjakkur,
sem þurfti ekki að hugsa um nokkurn
skapaðan hlut. Engin ábyrgð, ég bjó
einn með móður minni, það voru
engar kröfur um innkomu, þurfti
ekki að skaffa fyrir einn eða neinn
og ekkert sem beið manns nema
geggjað tjill.
Ég var að vinna sem dyravörður
í Regnboganum á þessum tíma
og vinur minn, Þorvaldur Davíð
Kristjánsson, kom á hverju kvöldi.
Hvorugur okkar var í fastri vinnu,
en flestir vina okkar ösnuðust í ein-
hverjar vinnur, þannig að við gátum
ræktað vináttu okkar bara tveir. Það
var mikið um andvökunætur og
gleði, einhver böll og þetta styrkti
vináttu okkar Þorvaldar mikið. Það
er ekki oft sem maður hefur tíma
til að eyða svona miklum tíma með
vinum sínum á þessum árum og
við Þorvaldur höfum meira að segja
síðan farið tveir saman í rómantíska
ferð til Parísar.
Ég var með þá speki á þessum
tíma að allt yfir fimm í einkunn væri
tímasóun. Verkfallið féll mjög vel inn
í þennan hugsunarhátt. Ég hafði ekki
miklar áhyggjur af náminu, kennar-
arnir urðu að bjarga því. Þetta hafði
engin áhrif á mig, það var kannski
annað fyrir krakka sem stefndu til
dæmis á læknisfræði, en fyrir svona
málabrautargemling eins og mig, sem
vissi ekkert hvað ég ætlaði að gera,
þá var þetta bara snilld.
Verandi orðinn faðir í dag þá dáist
ég að þankagangi unga fólksins og
vona að synir mínir verði vonsviknir
ef það kemur verkfall hjá þeim.“
➜ ÍSLENDINGAR VERÐA AÐ HAFA
UNNIÐ Í FISKI
Ilmur Kristjánsdóttir, leikkona og frambjóðandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
➜ MÁLABRAUTARGEMLINGUR SEM VISSI
EKKERT HVAÐ HANN ÆTLAÐI AÐ GERA
Sólmundur Hólm Sólmundarson, útvarpsmaður, grínisti og viðskiptafræðingur.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
RENAULT MEGANE SPORT TOURER
DÍSIL, SJÁLFSKIPTUR. VERÐ 3.890.000 KR.
Staðalbúnaður: 16" álfelgur, Bluetooth handfrjáls símabúnaður, tölvustýrð miðstöð með
loftkælingu, hraðastillir, hiti í framsætum, leðurklætt aðgerðastýri, útvarp og geislaspilari
með USB og AUX tengi, rafdrifnar rúður og speglar.
Velkomin í kaffi og reynsluakstur
OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
www.renault.is