Fréttablaðið - 22.03.2014, Page 59
Raftækjasalan ehf.
óskar eftir að ráða eftirfarandi:
Rafvirkja
Vélvirkja eða vélfræðing, til framtíðar starfa
Um er að ræða fjölbreytt sérhæft starf
Góð kjör í boði fyrir réttann einstakling,
sem getur unnið sjálfstætt.
Uppl. í síma 856-0090 eða petur@raftaekjasalan.is
Herbergisþerna / -þjónar
Hótel Klettur er glæsilegt hótel aðeins steinsnar frá miðbæ
Reykjavíkur. Okkur vantar þjónustulundað starfsfólk í hópinn.
Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að aðstoða í morgun-
verðarsal, þarf að hafa kennitölu og leyfi til að starfa á Íslandi.
Um vaktavinnu er að ræða og því þarf viðkomandi að geta
unnið um helgar og á frídögum þegar þess þarf.
Hæfniskröfur
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Gott skipulag og stundvísi.
Rík þjónustulund.
Enskukunnátta er skilyrði.
Umsóknarfrestur er til 27. mars 2014 og skulu
umsóknir berast á netfangið nicole@hotelklettur.is
Ferðaþjónustuaðilar
SUMARSTÖRF
– mannskapur til reiðu!
STARF – vinnumiðlun og ráðgjöf ehf. er fyrirtæki í eigu Alþýðusambands Íslands og Samtaka
atvinnulífsins og var stofnað vorið 2012 til að halda utan um tilraunaverkefni um þjónustu
við fólk án atvinnu, atvinnuleitendur, sem eru félagar í tilteknum stéttarfélögum. Þjónustan
fer fram í fjórum þjónustumiðstöðvum og þar starfa m.a. 14 atvinnuráðgjafar STARFs.
Þungamiðja þjónustunnar er vinnumiðlun og jafnframt er atvinnuleitendum liðsinnt við
margvísleg vinnumarkaðsúrræði – markmiðið er að koma fleiri atvinnuleitendum aftur til starfa.
Nánari upplýsingar um STARF má finna á vefsíðu félagsins: www.starfid.is
STARF – vinnumiðlun og ráðgjöf leitar eftir
samstarfi við ferðaþjónustufyrirtæki á landsbyggðinni
sem vantar sumarstarfsfólk.
STARF þjónustar fólk sem er án atvinnu og eru félagar
tiltekinna stéttarfélaga. Innan þess hóps eru fjölmargir
einstaklingar sem hafa sýnt því áhuga að starfa við
ferðaþjónustu á landsbyggðinni (t.d. á gistiheimilum
eða við afþreyingarferðaþjónustu). Um er að ræða fjöl-
breyttan hóp með margvíslegan bakgrunn sem getur
hafið störf nánast strax og starfað vel inn í haustið.
Ef áhugi er fyrir hendi vinsamlegast skráið starfið á
vefsíðu STARFs www.starfid.is (atvinnurekandi – beiðni
um starfsmann) og tilgreinið að um sumarstarf sé að
ræða. Einnig má senda póst á skrifstofa@starfid.is og
hefur þá atvinnuráðgjafi STARFs samband fljótlega.
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar óskar eftir sérfræðingi til starfa hjá byggingarfulltrúanum í Reykjavík.
Byggingarfulltrúi annast meðal annars umsóknir um byggingarleyfi og afgreiðslu þeirra. Umsýsla þess fer fram í samræmi við
mannvirkjalög og byggingarreglugerð, ásamt öðrum tilheyrandi lögum, reglugerðum og skilmálum sem varða notkun lóða og
byggingarframkvæmdir á þeim.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum
og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Menntunar- og hæfniskröfur
háskólastigi. Framhaldsmenntun er æskileg og/eða
reynsla í sambærilegu starfi.
ásamt reynslu í hönnun mannvirkja og gerð aðal- og
séruppdrátta.
og eiga samskipti í hóp.
tölvukunnáttu og notkun algengra forrita.
Sérfræðingur við yfirferð uppdrátta
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
Helstu verkefni og ábyrgð
byggingarleyfa.
innsend gögn og uppdrætti.
byggingarfulltrúa.
og gerð aðal- og séruppdrátta aðalhönnuða.
byggingarfulltrúa.
kjarasamningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 6. april 2014.
Sækja skal um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is undir „störf í boði“- Sérfræðingur við yfirferð uppdrátta.
bjorn.stefan.hallsson@reykjavik.is
Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
DEILDARFORSETI
TÓNLISTARDEILDAR
LISTAHÁSKÓLI ÍSLANDS AUGLÝSIR
EFTIR UMSÓKNUM UM STARF
DEILDARFORSETA TÓNLISTARDEILDAR
Umsækjandi skal vera tónlistarmaður eða tónskáld
með mikilsverða reynslu í list- og atvinnuumhverfi
tónlistar. Umsækjandi skal hafa meistaragráðu eða
sambærilega háskólagráðu í greininni.
Deildarforseti fer með yfirstjórn tónlistardeildar og
er í forystu fyrir starfsemi hennar. Hann ber ábyrgð
á gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlunar og annarra
áætlana sem varða deildina sérstaklega. Deildar-
forseti situr í framkvæmdaráði skólans og fagráði.
Deildarforseti þarf að hafa ríka skipulags- og
stjórnunarhæfileika, vera góður leiðtogi, lipur
í samskiptum og eiga auðvelt með að starfa
með öðrum.
Með umsókn skulu fylgja eftirfarandi gögn
(sjá nánar á www.lhi.is):
> Yfirlit um menntun og námsferil.
> Yfirlit yfir listrænan feril og störf umsækjanda.
> Yfirlit um stjórnunarreynslu og leiðtogastörf.
> Stutt greinagerð um kennslustörf í háskóla.
> Yfirlit um félags- og stjórnunarstörf, auk annarra
starfa á vettvangi lista og menningar.
> Upplýsingar um rannsóknir, ritsmíðar, og/eða
opinbera fyrirlestra sem tengjast faginu.
> Frumrit/afrit af umfjöllun um verk
og störf umsækjenda.
> Meðmæli eða umsagnir um fyrri störf
umsækjanda.
Að auki er gert ráð fyrir að umsókn fylgi greina-
gerð, að hámarki 1500 orð, þar sem umsækjandi
lýsir viðhorfum sínum til háskólamenntunar í
listum, framtíðarsýn sinni fyrir tónlistardeildina
og þeim stefnumótandi áherslum sem hann
myndi vilja hrinda í framkvæmd yrði hann
ráðinn til starfsins.
Um mat á hæfi og reglur um veitingu akademískra
starfa við Listaháskóla Íslands sjá nánar á heima-
síðu skólans, reglur um veitingu akademískra
starfa: www.lhi.is/skolinn/stjornsysla/log-og-reglur
Umsóknum, merktum viðkomandi starfi,
ber að skila á aðalskrifstofu skólans Þverholti 11,
105 Reykjavík, eigi síðar en þriðjudaginn
15. apríl. Umsóknargögnum skal einnig skila
á stafrænu formi (td. á USB lykli). Rektor veitir
frekari upplýsingar sé þess óskað. Farið verður
með umsóknir sem trúnaðarmál. Skólinn áskilur
sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Listaháskóli Íslands er sjálfseignarstofnun
með viðurkenningu á fræðisviðinu listir.
Skólinn starfar í fimm deildum, myndlistardeild, hönnunar- og
arkitektúrdeild, tónlistardeild, sviðslistadeild, og listkennsludeild.
Starfsstöðvar skólans eru þrjár við Þverholt, Sölvhólsgötu og
Laugarnesveg í Reykjavík. Rektor er Fríða Björk Ingvarsdóttir.