Fréttablaðið - 22.03.2014, Page 80

Fréttablaðið - 22.03.2014, Page 80
22. mars 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 44 ÞÝSKALAND INNLIMAR SÚDETALAND 1938 ÞÝSKALAND PÓLLAND TÉKKÓSLÓVAKÍA UNGVERJALAND RÚMENÍA AUSTURRÍKI Hluti Þýskalands síðan í mars 1938 Prag Berlín Varsjá Búdapest Vínarborg München Godwin-lögmálið er hún kölluð, sú að því er virðist ófrávíkjan-lega tilhneiging að í rökræðum (ekki síst á netinu), þá endar alltaf með því að einhverjum verður líkt við Adolf Hitler. Mike Godwin, sá er áttaði sig á þessu, er banda- rískur lögmaður og rithöfundur, hann setti lögmálið sitt fram þegar árið 1990. Reductio ad Hitlerum er aftur á móti hugtak sem heim- spekingurinn Leo Strauss smíðaði árið 1951 til að lýsa algengri villu manna í rökræðum. Hún gengur út á að sýna fram á að andstæðing- urinn í rökræðunum hafi að ein- hverju leyti svipaðar skoðanir og Adolf Hitler á eiginlega bara ein- hverju, og þar með sé augljóst að hann sé óalandi og óferjandi, þótt viðkomandi skoðun snúist alls ekki um sjálft deiluefnið í rökræðunum. Slíkt fannst Strauss ekki góð latína, en hann var Þjóðverji af gyðinga- ættum sem endaði í Bandaríkj- unum. Nú má vera að ég falli í gryfj- ur bæði Godwin-lögmálsins og villunnar hans Strauss með eftir- farandi flækjusögu. En það verður þá að hafa það. Það er nefnilega svo margt sambærilegt við annars vegar framferði Vladimírs Pútin í málum Úkraínu nú og hins vegar framferði Hitlers í málum Tékkó- slóvakíu á fjórða áratugnum, að það er með öllu ástæðulaust að reyna að leyna því hvað er tilefni greinarinnar sem hér fer á eftir. Það er haustið 1938. Tuttugu ár eru frá hruni Þýskalands í kjölfar ósigurs í fyrri heimsstyrjöld. Þjóð- verjum þykir sumum tímabært að reisa sig til stórveldis á ný. Til valda er kominn Adolf Hitler, ákafur þjóðernissinni og yfirgangsseggur. Hann hefur þegar lýst því í smáatrið- um í bókinni Mein Kampf hvernig Þjóð- verjar eiga í nafni kynþáttayfirburða að undiroka aðrar þjóðir í Mið- og Austur-Evrópu og í reynd hneppa þær í þrældóm. Nú er hann að safna í þýskt stórríki, til að undirbúa herferð sína í austur, og á útmánuðum þetta ár hafði hann sent her sinn inn í Austurríki. Þar voru íbúar af mjög svipuðu bergi brotnir og í Þýskalandi og flestir tóku innrásinni vel – vildu heldur tilheyra endurreistu þýsku stórveldi en því smáríki sem Austurríki var þá orðið. Í lok fyrri heimsstyrj- aldar hafði stórveldi Austurríkis hrunið gjörsamlega og mörg ríki slavneskra þjóða orðið til úr rústum þess, auk Ungverja- lands. Og nú hefur Adolf Hitler beint sjónum sínum að einu þeirra, nágrannaríkinu Tékkóslóvakíu. Þegar Austurríki sundraðist hafði orðið úr að nágrannaþjóð- irnar Tékkar og Slóvakar gengu í bandalag og mynduðu nýtt ríki. Tékkar lögðu meðal annars til Bæheim sem fram á 16. öld hafði verið sjálfstætt ríki og nokkuð öfl- ugt. Bæheimur var að vestan og norðan umkringdur hinum lágu og gróðursælu Súdetafjöllum en þau voru snemma byggð Þjóðverjum að töluverðu leyti. Í umrótinu 1918 hafði um tíma verið rætt um að Súdetafjöll skyldu falla til Þýska- lands en ekki hinnar verðandi Tékkóslóvakíu, en ekki varð það úr. Ekki var talin ástæða til að verð- launa Þýskaland með nýjum hér- uðum eftir framgöngu þess í fyrri heimsstyrjöld, auk þess sem þessi svæði höfðu náttúrulega aldrei til- heyrt því sameinaða Þýskalandi sem til varð á 19. öld. Þá vildu Tékkar skiljanlega halda fjöllunum sem náttúrulegum landamærum (og varnarlínu) gegn Þjóðverj- um. Fyrirmyndarríki Sú Tékkóslóvakía sem varð til 1918 var að mörgu leyti fyrir- myndarríki og til dæmis hið eina af nýjum ríkjum Mið- og Austur-Evrópu þar sem lýðræði hélst óskert allt frá stofnun eftir fyrri heimsstyrjöld. Forsetarnir Tomáš Masaryk og síðan Edvard Beneš lögðu sig fram um að halda þjóðum og þjóðarbrot- um Tékkóslóvakíu góðum, og Þjóð- verjar í Súdetafjöllum höfðu marg- vísleg réttindi, enda voru þeir alls nærri fjórðungur íbúafjölda lands- ins, eða um 22 prósent árið 1921. Þegar kom fram á fjórða áratug- inn bar ekki á öðru en hinir þýsku íbúar landsins væru þokkalega sáttir við hlutskipti sitt sem íbúar Tékkóslóvakíu. En fljótlega eftir að nasistar komust til valda í Þýskalandi byrjuðu þeir að róa í Súdeta-Þjóðverj- um að krefjast sam- einingar héraða sinna við Þýskaland og eftir að Austurríki hafði verið inn- limað fór sá áróður á fullt. Allt í einu fylltust þýsk blöð af frásögnum um ægilegt harðræði og kúgun sem þýskir íbúar Tékkó- slóvakíu þyrftu að sæta af hendi hinna grimmu og illu Tékka. Ef marka mátti þann áróður allan, þá var líf allra þýskra íbúa lands- ins í stórhættu og leiðtogar þeirra ákölluðu Hitler ákaft um að koma og „vernda“ sig. Ótal sögur komust á kreik um fantaskap Tékka og Hitler fór mikinn í ræðum um það ÞEGAR TÉKKÓSLÓVAKÍA VAR MYRT mikla „vandamál“ sem uppi væri og ekki yrði leyst nema Súdeta- héruðin fengju að komast undir verndarvæng Þýskalands. En hin forhertu stjórnvöld í Prag skelltu skollaeyrum við öllum sanngjörn- um kröfum Súdeta-Þjóðverja! arg- aði hann í alla sína hljóðnema. Og ætluðu að bæla niður menningu og tungumál Súdeta-Þjóðverja, þessir vondu menn! Hljómar kunnuglega, ekki satt? Í reynd hafði Hitler auðvitað skap- að vandamálið sjálfur. Sögur um slæma sambúð Tékka og Þjóðverja í Súdetalöndum voru ýmist tómur tilbúningur frá upphafi til enda eða ýktar upp úr öllu valdi, þótt auð- vitað færi að bera á taugaóstyrk og titringi þegar búið var að æsa alla aðila upp – en reyndar héldu stjórn- völd í Prag ró sinni alveg furðan- lega og vildu flest til vinna að ekki kæmi til stríðs við Þjóðverja eins og Hitler var nú opinskátt farinn að hóta. Einn helsti leiðtogi Súdeta- Þjóðverja, nasistinn Konrad Hen- lein, hafði reyndar verið kallaður sérstaklega á leynifund með Hitler um sumarið 1938 þar sem honum var skipað að setja ævinlega fram algjörlega óraunhæfar kröfur í við- ræðum sínum við stjórnvöld í Prag. Þannig yrði þeim alltaf kennt um að hafa hafnað samningum. Nú má spyrja, voru kröfur Hitl- ers nokkuð óréttmætar í þetta sinn? Íbúar Súdetahéraða voru sannanlega að meirihluta til Þjóð- verjar og því skyldu þeir ekki fá að tilheyra því ríki sem þeir kusu? Því er meðal annars til að svara að öllum mátti þá þegar vera ljóst að það var ekki ein- skær umhyggja fyrir Súdeta-Þjóð- verjum sem vakti fyrir Hitler. Eftir því sem málið þróaðist varð æ augljós- ara að hann ætlaði sér einfaldlega að leggja Tékkóslóvakíu í rúst. Ríkið var of öfl- ugt og í of nánum tengslum við Vesturlönd til að hann gæti þolað slíkt. Það var einmitt eitt af áróðursbrögðum Hitlers gegn Prag-stjórninni að hún væri ekki annað en leppur Vesturveldanna, einkum Frakklands, sem ætlaði að nota Tékkóslóvakíu sem stökk- bretti fyrir áróður og síðan stríðs- rekstur gegn Þýskalandi. Hljómar það ekki svolítið kunnuglega? – nú þegar áróðursmenn Pútins og sam- verkamenn þeirra halda því statt og stöðugt fram að ný stjórnvöld í Úkraínu séu ekki annað en leppar CIA og NATO gegn hinum stoltu Stór-Rússum? En sannleikur var sá að stríð gegn Tékkóslóvakíu var einfald- lega hluti af stríðsplönum Hitlers, og hefði átt að vera öllum augljóst þegar þarna var komið sögu. Beneš, forseti Tékkóslóvakíu, treysti lengi vel á bandalag sitt við Breta og Frakka, en þeim ríkjum til ævarandi skammar fórnuðu þau Tékkóslóvakíu á hinum alræmda Münchenar-fundi í lok september 1938. Chamberlain, forsætisráð- herra Breta, beitti sér eindregið fyrir því að Þjóðverjum yrði heim- ilað að innlima Súdetalöndin, og var stjórn Beneš ekki einu sinni spurð álits, þótt hún yrði að fallast á niðurstöðuna. Pólverjar og Ung- verjar notuðu um leið tækifærið þegar Tékkóslóvakía lá vel við höggi og hirtu sína búta af landinu. Skriðdrekunum fagnað Og íbúar Súdetahéraðanna fögn- uðu óspart þegar skriðdrekar Hitlers ösluðu yfir landamærin, nú fengju þeir loksins (!) „vernd“ gegn ofsóknum Tékka, enda hefðu héruðin „ávallt“ verið sannur hluti Þýskalands. Tékkneskir íbúar Súdetahéraðanna voru svo strax reknir á braut. Chamberlain taldi sig, eins og frægt varð, vera að tryggja „frið um vora daga“ því nú myndi Hitler láta staðar numið og stríðshætta væri úr sögunni. Því fór auðvitað víðs fjarri. Með undanlátssemi sinni uppskar Chamberlain bara fullkomna fyrirlitningu Hitlers sem taldi sig þaðan í frá geta aukið sífellt kröfur sínar og heimtufrekju. Sú lemstr- aða Tékkóslóvakía sem lifði af fund- inn í München var endanlega myrt í mars 1939 þegar Hitler gerði for- málalitla innrás í landið og lagði tékkneska hlut- ann undir sig en slóvakískir nasistar stofnuðu þýskt lepp- ríki í austurhlutanum. Og svo var röðin komin að Pólverjum. Þá var jafnvel frið- þægingarpostulanum Chamberlain nóg boðið og síðari heimsstyrjöldin braust út. Sú styrjöld sem alltaf mátti búast við eftir að Hitler hóf frekjuher- ferð sína gegn nágrannalöndunum í austri, með undirróðri, hótunum og loks hervaldi – til dæmis gegn hinni ógæfusömu Tékkóslóvakíu. Og nú skal hver draga sína lær- dóma, burtséð frá Godwins-lögmál- inu eða villunni hans Leo Strauss. En kaldhæðnislegast af öllu er að ef Bretar og Frakkar hefðu haft bein í nefinu og neitað algjörlega að láta undan ofstopa Hitlers í Mün- chen, þá hefði Hitler að öllum lík- indum verið steypt af stóli. Ýmsir æðstu menn þýska hersins töldu að sú styrjöld sem Hitler þráði hlyti að enda með algjörum ósigri Þýskalands og þeir höfðu undirbúið valdarán haustið 1938. Þegar mót- herjar Hitlers lyppuðust hins vegar niður baráttulaust, þá töldu herfor- ingjarnir sig ekki hafa vopn í hönd- unum gegn Foringjanum og hættu við allt saman. FLÆKJUSAGA Illugi Jökulsson reynir ekki einu sinni að draga fjöður yfir hvað honum finnst Úkraínu- málið núna svipað haustinu 1938 þegar Adolf Hitler þóttist þurfa að „vernda“ þýska íbúa Súdeta- landa. Hljómar kunnuglega, ekki satt? Í reynd hafði Hitler auðvitað skapað vandamálið sjálfur. Sögur um slæma sambúð Tékka og Þjóðverja í Súdetalöndum voru ýmist tómur tilbún- ingur frá upphafi til enda eða ýktar upp úr öllu valdi. SÚDETA- ÞJÓÐVERJAR FAGNA HITLER BENEŠ Tónlistarskóli FÍH auglýsir eftir umsóknum um skólavist fyrir skólaárið 2014-2015 Innritun nýnema fyrir næsta skólaár 2014-2015 stendur yfir hjá Tónlistarskóla FÍH til 6. apríl n.k. Sótt er um skólavist á heimasíðu skólans www.tonlistarskolifih.is og á rvk.is (Rafræn Reykjavík) Umsækjendur fá svar um skólavist í lok maí. Allir nýnemar þreyta inntökupróf í skólann. Umsækjendur fá bréf um miðjan apríl um tíma fyrir inntökupróf en þau fara fram dagana 2-3 maí n.k. Tónlistarskóli FÍH er framsækinn skóli með vel menntaða úrvalskennara sem eru virkir þát t takendur í íslensku tónlistarlíf i. Skólinn hefur mikla sérstöðu meðal tónlistarskóla landsins þar sem kennd er hefðbundin tónlist (sígild tónlist) og ry thmiskri tónlist ( djass, popp, rokk,) Tónlistarskóli FÍH býður nemendum sínum got t námsumhverfi og fjölbreyt t námsframboð og um leið gerir skólinn kröfur til nemenda hvað varðar ástundun og námsframvindu. Ef þú vilt verða góður tónlistarmaður er Tónlistarskóli FÍH rétti skólinn fyrir þig.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.