Fréttablaðið - 22.03.2014, Qupperneq 80
22. mars 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 44
ÞÝSKALAND INNLIMAR SÚDETALAND 1938
ÞÝSKALAND
PÓLLAND
TÉKKÓSLÓVAKÍA
UNGVERJALAND RÚMENÍA
AUSTURRÍKI
Hluti Þýskalands
síðan í mars 1938
Prag
Berlín Varsjá
Búdapest
Vínarborg
München
Godwin-lögmálið er hún kölluð, sú að því er virðist ófrávíkjan-lega tilhneiging að í rökræðum (ekki síst á netinu), þá endar alltaf
með því að einhverjum verður líkt
við Adolf Hitler. Mike Godwin,
sá er áttaði sig á þessu, er banda-
rískur lögmaður og rithöfundur,
hann setti lögmálið sitt fram þegar
árið 1990. Reductio ad Hitlerum
er aftur á móti hugtak sem heim-
spekingurinn Leo Strauss smíðaði
árið 1951 til að lýsa algengri villu
manna í rökræðum. Hún gengur
út á að sýna fram á að andstæðing-
urinn í rökræðunum hafi að ein-
hverju leyti svipaðar skoðanir og
Adolf Hitler á eiginlega bara ein-
hverju, og þar með sé augljóst að
hann sé óalandi og óferjandi, þótt
viðkomandi skoðun snúist alls ekki
um sjálft deiluefnið í rökræðunum.
Slíkt fannst Strauss ekki góð latína,
en hann var Þjóðverji af gyðinga-
ættum sem endaði í Bandaríkj-
unum.
Nú má vera að ég falli í gryfj-
ur bæði Godwin-lögmálsins og
villunnar hans Strauss með eftir-
farandi flækjusögu. En það verður
þá að hafa það. Það er nefnilega
svo margt sambærilegt við annars
vegar framferði Vladimírs Pútin í
málum Úkraínu nú og hins vegar
framferði Hitlers í málum Tékkó-
slóvakíu á fjórða áratugnum, að
það er með öllu ástæðulaust að
reyna að leyna því hvað er tilefni
greinarinnar sem hér fer á eftir.
Það er haustið 1938. Tuttugu ár
eru frá hruni Þýskalands í kjölfar
ósigurs í fyrri heimsstyrjöld. Þjóð-
verjum þykir sumum tímabært
að reisa sig til stórveldis á
ný. Til valda er kominn
Adolf Hitler, ákafur
þjóðernissinni og
yfirgangsseggur.
Hann hefur þegar
lýst því í smáatrið-
um í bókinni Mein
Kampf hvernig Þjóð-
verjar eiga í nafni
kynþáttayfirburða að
undiroka aðrar þjóðir í
Mið- og Austur-Evrópu og
í reynd hneppa þær í þrældóm. Nú
er hann að safna í þýskt stórríki, til
að undirbúa herferð sína í austur,
og á útmánuðum þetta ár hafði
hann sent her sinn inn í Austurríki.
Þar voru íbúar af mjög svipuðu
bergi brotnir og í Þýskalandi og
flestir tóku innrásinni vel – vildu
heldur tilheyra endurreistu þýsku
stórveldi en því smáríki sem
Austurríki var þá orðið.
Í lok fyrri heimsstyrj-
aldar hafði stórveldi
Austurríkis hrunið
gjörsamlega og mörg
ríki slavneskra þjóða
orðið til úr rústum
þess, auk Ungverja-
lands. Og nú hefur
Adolf Hitler beint
sjónum sínum að einu
þeirra, nágrannaríkinu
Tékkóslóvakíu.
Þegar Austurríki sundraðist
hafði orðið úr að nágrannaþjóð-
irnar Tékkar og Slóvakar gengu
í bandalag og mynduðu nýtt ríki.
Tékkar lögðu meðal annars til
Bæheim sem fram á 16. öld hafði
verið sjálfstætt ríki og nokkuð öfl-
ugt. Bæheimur var að vestan og
norðan umkringdur hinum lágu og
gróðursælu Súdetafjöllum en þau
voru snemma byggð Þjóðverjum
að töluverðu leyti. Í umrótinu 1918
hafði um tíma verið rætt um að
Súdetafjöll skyldu falla til Þýska-
lands en ekki hinnar verðandi
Tékkóslóvakíu, en ekki varð það úr.
Ekki var talin ástæða til að verð-
launa Þýskaland með nýjum hér-
uðum eftir framgöngu þess í fyrri
heimsstyrjöld, auk þess sem þessi
svæði höfðu náttúrulega aldrei til-
heyrt því sameinaða Þýskalandi
sem til varð á 19. öld. Þá vildu
Tékkar skiljanlega halda fjöllunum
sem náttúrulegum landamærum
(og varnarlínu) gegn Þjóðverj-
um.
Fyrirmyndarríki
Sú Tékkóslóvakía sem
varð til 1918 var að
mörgu leyti fyrir-
myndarríki og til
dæmis hið eina af
nýjum ríkjum Mið-
og Austur-Evrópu
þar sem lýðræði hélst
óskert allt frá stofnun
eftir fyrri heimsstyrjöld.
Forsetarnir Tomáš Masaryk og
síðan Edvard Beneš lögðu sig fram
um að halda þjóðum og þjóðarbrot-
um Tékkóslóvakíu góðum, og Þjóð-
verjar í Súdetafjöllum höfðu marg-
vísleg réttindi, enda voru þeir alls
nærri fjórðungur íbúafjölda lands-
ins, eða um 22 prósent árið 1921.
Þegar kom fram á fjórða áratug-
inn bar ekki á öðru en hinir
þýsku íbúar landsins
væru þokkalega sáttir
við hlutskipti sitt sem
íbúar Tékkóslóvakíu.
En fljótlega eftir að
nasistar komust til
valda í Þýskalandi
byrjuðu þeir að róa
í Súdeta-Þjóðverj-
um að krefjast sam-
einingar héraða sinna
við Þýskaland og eftir að
Austurríki hafði verið inn-
limað fór sá áróður á fullt.
Allt í einu fylltust þýsk blöð af
frásögnum um ægilegt harðræði
og kúgun sem þýskir íbúar Tékkó-
slóvakíu þyrftu að sæta af hendi
hinna grimmu og illu Tékka. Ef
marka mátti þann áróður allan,
þá var líf allra þýskra íbúa lands-
ins í stórhættu og leiðtogar þeirra
ákölluðu Hitler ákaft um að koma
og „vernda“ sig. Ótal sögur komust
á kreik um fantaskap Tékka og
Hitler fór mikinn í ræðum um það
ÞEGAR TÉKKÓSLÓVAKÍA VAR MYRT
mikla „vandamál“ sem uppi væri
og ekki yrði leyst nema Súdeta-
héruðin fengju að komast undir
verndarvæng Þýskalands. En hin
forhertu stjórnvöld í Prag skelltu
skollaeyrum við öllum sanngjörn-
um kröfum Súdeta-Þjóðverja! arg-
aði hann í alla sína hljóðnema. Og
ætluðu að bæla niður menningu og
tungumál Súdeta-Þjóðverja, þessir
vondu menn!
Hljómar kunnuglega, ekki satt?
Í reynd hafði Hitler auðvitað skap-
að vandamálið sjálfur. Sögur um
slæma sambúð Tékka og Þjóðverja
í Súdetalöndum voru ýmist tómur
tilbúningur frá upphafi til enda eða
ýktar upp úr öllu valdi, þótt auð-
vitað færi að bera á taugaóstyrk og
titringi þegar búið var að æsa alla
aðila upp – en reyndar héldu stjórn-
völd í Prag ró sinni alveg furðan-
lega og vildu flest til vinna að ekki
kæmi til stríðs við Þjóðverja eins
og Hitler var nú opinskátt farinn
að hóta. Einn helsti leiðtogi Súdeta-
Þjóðverja, nasistinn Konrad Hen-
lein, hafði reyndar verið kallaður
sérstaklega á leynifund með Hitler
um sumarið 1938 þar sem honum
var skipað að setja ævinlega fram
algjörlega óraunhæfar kröfur í við-
ræðum sínum við stjórnvöld í Prag.
Þannig yrði þeim alltaf kennt um
að hafa hafnað samningum.
Nú má spyrja, voru kröfur Hitl-
ers nokkuð óréttmætar í þetta
sinn? Íbúar Súdetahéraða voru
sannanlega að meirihluta til Þjóð-
verjar og því skyldu þeir ekki fá
að tilheyra því ríki sem þeir kusu?
Því er meðal annars til að
svara að öllum mátti þá
þegar vera ljóst að
það var ekki ein-
skær umhyggja
fyrir Súdeta-Þjóð-
verjum sem vakti
fyrir Hitler.
Eftir því sem
málið þróaðist
varð æ augljós-
ara að hann ætlaði
sér einfaldlega að
leggja Tékkóslóvakíu
í rúst. Ríkið var of öfl-
ugt og í of nánum tengslum
við Vesturlönd til að hann gæti
þolað slíkt. Það var einmitt eitt
af áróðursbrögðum Hitlers gegn
Prag-stjórninni að hún væri ekki
annað en leppur Vesturveldanna,
einkum Frakklands, sem ætlaði
að nota Tékkóslóvakíu sem stökk-
bretti fyrir áróður og síðan stríðs-
rekstur gegn Þýskalandi. Hljómar
það ekki svolítið kunnuglega? – nú
þegar áróðursmenn Pútins og sam-
verkamenn þeirra halda því statt
og stöðugt fram að ný stjórnvöld í
Úkraínu séu ekki annað en leppar
CIA og NATO gegn hinum stoltu
Stór-Rússum?
En sannleikur var sá að stríð
gegn Tékkóslóvakíu var einfald-
lega hluti af stríðsplönum Hitlers,
og hefði átt að vera öllum augljóst
þegar þarna var komið sögu.
Beneš, forseti Tékkóslóvakíu,
treysti lengi vel á bandalag sitt við
Breta og Frakka, en þeim ríkjum
til ævarandi skammar fórnuðu þau
Tékkóslóvakíu á hinum alræmda
Münchenar-fundi í lok september
1938. Chamberlain, forsætisráð-
herra Breta, beitti sér eindregið
fyrir því að Þjóðverjum yrði heim-
ilað að innlima Súdetalöndin, og
var stjórn Beneš ekki einu sinni
spurð álits, þótt hún yrði að fallast
á niðurstöðuna. Pólverjar og Ung-
verjar notuðu um leið tækifærið
þegar Tékkóslóvakía lá vel við
höggi og hirtu sína búta af landinu.
Skriðdrekunum fagnað
Og íbúar Súdetahéraðanna fögn-
uðu óspart þegar skriðdrekar
Hitlers ösluðu yfir landamærin,
nú fengju þeir loksins (!) „vernd“
gegn ofsóknum Tékka, enda hefðu
héruðin „ávallt“ verið sannur hluti
Þýskalands. Tékkneskir íbúar
Súdetahéraðanna voru svo strax
reknir á braut.
Chamberlain taldi sig, eins og
frægt varð, vera að tryggja „frið
um vora daga“ því nú myndi Hitler
láta staðar numið og stríðshætta
væri úr sögunni. Því fór auðvitað
víðs fjarri. Með undanlátssemi
sinni uppskar Chamberlain bara
fullkomna fyrirlitningu Hitlers
sem taldi sig þaðan í frá geta
aukið sífellt kröfur sínar og
heimtufrekju. Sú lemstr-
aða Tékkóslóvakía
sem lifði af fund-
inn í München var
endanlega myrt í
mars 1939 þegar
Hitler gerði for-
málalitla innrás
í landið og lagði
tékkneska hlut-
ann undir sig en
slóvakískir nasistar
stofnuðu þýskt lepp-
ríki í austurhlutanum.
Og svo var röðin komin að
Pólverjum. Þá var jafnvel frið-
þægingarpostulanum Chamberlain
nóg boðið og síðari heimsstyrjöldin
braust út.
Sú styrjöld sem alltaf mátti búast
við eftir að Hitler hóf frekjuher-
ferð sína gegn nágrannalöndunum
í austri, með undirróðri, hótunum
og loks hervaldi – til dæmis gegn
hinni ógæfusömu Tékkóslóvakíu.
Og nú skal hver draga sína lær-
dóma, burtséð frá Godwins-lögmál-
inu eða villunni hans Leo Strauss.
En kaldhæðnislegast af öllu er að
ef Bretar og Frakkar hefðu haft
bein í nefinu og neitað algjörlega að
láta undan ofstopa Hitlers í Mün-
chen, þá hefði Hitler að öllum lík-
indum verið steypt af stóli. Ýmsir
æðstu menn þýska hersins töldu
að sú styrjöld sem Hitler þráði
hlyti að enda með algjörum ósigri
Þýskalands og þeir höfðu undirbúið
valdarán haustið 1938. Þegar mót-
herjar Hitlers lyppuðust hins vegar
niður baráttulaust, þá töldu herfor-
ingjarnir sig ekki hafa vopn í hönd-
unum gegn Foringjanum og hættu
við allt saman.
FLÆKJUSAGA
Illugi Jökulsson reynir
ekki einu sinni að
draga fjöður yfir hvað
honum finnst Úkraínu-
málið núna svipað
haustinu 1938
þegar Adolf
Hitler þóttist
þurfa að
„vernda“
þýska íbúa
Súdeta-
landa. Hljómar kunnuglega, ekki satt? Í reynd hafði
Hitler auðvitað skapað
vandamálið sjálfur. Sögur
um slæma sambúð Tékka og
Þjóðverja í Súdetalöndum
voru ýmist tómur tilbún-
ingur frá upphafi til enda
eða ýktar upp úr öllu valdi.
SÚDETA-
ÞJÓÐVERJAR
FAGNA
HITLER
BENEŠ
Tónlistarskóli FÍH
auglýsir eftir umsóknum um skólavist
fyrir skólaárið 2014-2015
Innritun nýnema fyrir næsta skólaár 2014-2015 stendur yfir hjá
Tónlistarskóla FÍH til 6. apríl n.k. Sótt er um skólavist á heimasíðu
skólans www.tonlistarskolifih.is og á rvk.is (Rafræn Reykjavík)
Umsækjendur fá svar um skólavist í lok maí.
Allir nýnemar þreyta inntökupróf í skólann. Umsækjendur fá
bréf um miðjan apríl um tíma fyrir inntökupróf en þau fara
fram dagana 2-3 maí n.k.
Tónlistarskóli FÍH er framsækinn skóli með vel menntaða úrvalskennara sem eru virkir
þát t takendur í íslensku tónlistarlíf i. Skólinn hefur mikla sérstöðu meðal tónlistarskóla
landsins þar sem kennd er hefðbundin tónlist (sígild tónlist) og ry thmiskri tónlist
( djass, popp, rokk,) Tónlistarskóli FÍH býður nemendum sínum got t námsumhverfi
og fjölbreyt t námsframboð og um leið gerir skólinn kröfur til nemenda hvað varðar
ástundun og námsframvindu.
Ef þú vilt verða góður tónlistarmaður er Tónlistarskóli FÍH rétti skólinn fyrir þig.