Fréttablaðið - 22.03.2014, Side 88

Fréttablaðið - 22.03.2014, Side 88
22. mars 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 52 Elskuleg eiginkona mín móðir okkar og tengdamóðir, HÓLMFRÍÐUR BÁRA MAGNÚSDÓTTIR er látin. Útförin fer fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði miðvikudaginn 26. mars kl. 13.00. Brynjarr Pétursson Guðrún Magnea Hafsteinsdóttir Jóhannes Kr. Jónsson Borghildur Brynjarsdóttir Karl Lúðvíksson Pétur Brynjarsson Björk Garðarsdóttir Magnús Brynjarsson Ólöf Björg Kristjánsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra ÓSKARS LÁRUSAR TRAUSTASONAR Svöluási 20, Hafnarfirði. Guðrún Pálsdóttir Trausti Ó. Lárusson Hanna Kjeld Auður Traustadóttir Guðmundur Á. Tryggvason Anna Kristín Traustadóttir Sigrún Traustadóttir Þórunn Sigurðardóttir Sigurður Knútsson Elín Ósk, Trausti, Svava Dís, Bjarni, Páll Arnar og fjölskyldur. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar ástkærrar dóttur okkar, systur, mágkonu, barnabarns og frænku, SIGURVEIGAR ÞÓRARINSDÓTTUR læknis. Þórarinn Baldursson Birta Einarsdóttir María Loftsdóttir Jón K. Valdimarsson Sigrún Þórarinsdóttir Ingólfur Finnbogason Loftur Þórarinsson Mayuko Ono Þórarinsson Davíð Leifsson Lanny Leifsson Sigurveig Þórarinsdóttir og aðrir aðstandendur hinnar látnu. Okkar ástkæri EIRÍKUR YNGVI SIGURGEIRSSON Miðteigi 7, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn 15. mars. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 24. mars kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Heimahlynningu á Akureyri. Lísa Björk Sigurðardóttir Lára Halldóra Eiríksdóttir Jón Torfi Halldórsson Margrét Eiríksdóttir Hulda Sif Hermannsdóttir Jón Valgeir Halldórsson Berglind Hermannsdóttir Rolf Hauritz og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SVAVA ÞORBJARNARDÓTTIR Öldugötu 33 í Reykjavík, lést þriðjudaginn 18. mars á hjúkrunar- heimilinu Grund. Hún verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 2. apríl kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Landspítalann. Guðný Bernhard Reynir Bjarnason Þorbjörg Bernhard Helga Kristín Bernhard Gísli Jón Magnússon ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn. Okkar innilegustu þakkir færum við öllum þeim sem á margvíslegan hátt heiðruðu minningu og sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, AÐALHEIÐAR GEIRSDÓTTUR Víkurbraut 28, Höfn. Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunarþjónustunnar Karitas og líknardeildar Landspítala fyrir frábæra umönnun og hlýju. Margrét Sigurðardóttir Sigurjón Arason Anna Sigurðardóttir Gunnar Þór Árnason Halldóra Sigríður Sigurðardóttir Jóhannes Kristjánsson barnabörn og barnabarnabörn. „Þetta er hefð í kringum sýningar, þarna gefst fólki kostur á að fræð- ast um listsköpunina og verkin. Ég held einhverja tölu og sit svo fyrir svörum,“ segir Snorri Ásmundsson myndlistarmaður sem býður upp á listamannsspjall og fer einnig með gjörning í Týsgalleríi á sunnudag- inn klukkan 15.00. Þar ætlar Snorri að gefa fólk kost á að spyrja um verk hans en hann er með sýningu í galleríinu sem nefnist I am so funny, en sýningin er tuttug- asta og fimmta einkasýningin sem Snorri hefur haldið undanfarin ár. „Ég geri ráð fyrir að þetta lista- mannsspjall verði einstaklega skemmtilegt því ég er mjög fynd- inn og skemmtilegur maður,“ segir Snorri spurður út í spjallið. Nafn sýningarinnar er einmitt dregið af persónuleika Snorra sem þykir einkar skemmtilegur maður. „Menn hafa komið að mér hlæjandi, þar sem ég er í einrúmi og skellihlæ að sjálfum mér. Ég er svo ánægður með lífið og það endurspeglast í list minni,“ útskýrir Snorri. Snorri er þekktur fyrir ýmis upp- átæki þar sem hann ögrar og stríðir ríkjandi gildum. „Ég er krónískur óþekktarormur,“ bætir Snorri við. Listmannsspjallið hefst klukkan 15.00 í Týsgalleríi sem stendur við Týsgötu 3. gunnarleo@frettabladid.is Óþekktarormur svarar fyrir sig og list sína Myndlistarmaðurinn Snorri Ásmundsson býður upp á listamannsspjall og fer einnig með gjörning á sunnudag í Týsgallerýi. Hann lofar skemmtilegri stund. SNORRI ÁSMUNDSSON SKEMMTILEGUR ÓÞEKKTARORMUR Snorri Ásmundsson býður upp á listamannsspjall og fer einnig með gjörning á sunnudag. MYND/SPESSI Dómsmálaráðuneytið sendi öllum lögreglu- og fangelsisstjórum landsins bréf þennan dag árið 1976 þar sem tilgreint var að notkun á hljóðtækjum til að róa fanga væri bönnuð. Ábending hafði borist stjórn Íslenskrar réttarverndar um að sérstök hátíðnihljóð- tæki væru notuð í fangelsum hér á landi. Samkvæmt lýsingu voru tækin tengd hátal- arakerfi inn í fangaklefana og átti hljóðið að róa fanga sem væru með óspektir og hávaða. En fullyrt var að um pyntingartæki væri að ræða. Í kjölfarið sendi stjórn félagsins menn á sínum snærum í heimsókn í þau tvö fangelsi sem tiltekin voru í bréfinu og staðfestu að tækin væru til staðar en ekki hafði verið veitt heimild fyrir notkun þeirra. Annað tækið hafði verið smíðað hér á landi en hitt hafði verið pantað að utan. ÞETTA GERÐIST: 22. MARS 1976 Bannað að róa fanga með hljóðum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.