Fréttablaðið - 22.03.2014, Síða 88
22. mars 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 52
Elskuleg eiginkona mín
móðir okkar og tengdamóðir,
HÓLMFRÍÐUR BÁRA
MAGNÚSDÓTTIR
er látin. Útförin fer fram frá
Safnaðarheimilinu í Sandgerði
miðvikudaginn 26. mars kl. 13.00.
Brynjarr Pétursson
Guðrún Magnea Hafsteinsdóttir Jóhannes Kr. Jónsson
Borghildur Brynjarsdóttir Karl Lúðvíksson
Pétur Brynjarsson Björk Garðarsdóttir
Magnús Brynjarsson Ólöf Björg Kristjánsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og vinarhug vegna andláts
og útfarar okkar ástkæra
ÓSKARS LÁRUSAR TRAUSTASONAR
Svöluási 20, Hafnarfirði.
Guðrún Pálsdóttir
Trausti Ó. Lárusson Hanna Kjeld
Auður Traustadóttir Guðmundur Á. Tryggvason
Anna Kristín Traustadóttir
Sigrún Traustadóttir
Þórunn Sigurðardóttir Sigurður Knútsson
Elín Ósk, Trausti, Svava Dís, Bjarni, Páll Arnar og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu vegna
andláts og útfarar ástkærrar dóttur okkar,
systur, mágkonu, barnabarns og frænku,
SIGURVEIGAR ÞÓRARINSDÓTTUR
læknis.
Þórarinn Baldursson Birta Einarsdóttir
María Loftsdóttir Jón K. Valdimarsson
Sigrún Þórarinsdóttir Ingólfur Finnbogason
Loftur Þórarinsson Mayuko Ono Þórarinsson
Davíð Leifsson Lanny Leifsson
Sigurveig Þórarinsdóttir
og aðrir aðstandendur hinnar látnu.
Okkar ástkæri
EIRÍKUR YNGVI SIGURGEIRSSON
Miðteigi 7, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn
15. mars. Útför hans fer fram frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 24. mars
kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er
bent á Heimahlynningu á Akureyri.
Lísa Björk Sigurðardóttir
Lára Halldóra Eiríksdóttir Jón Torfi Halldórsson
Margrét Eiríksdóttir
Hulda Sif Hermannsdóttir Jón Valgeir Halldórsson
Berglind Hermannsdóttir Rolf Hauritz
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SVAVA ÞORBJARNARDÓTTIR
Öldugötu 33 í Reykjavík,
lést þriðjudaginn 18. mars á hjúkrunar-
heimilinu Grund. Hún verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn
2. apríl kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Landspítalann.
Guðný Bernhard Reynir Bjarnason
Þorbjörg Bernhard
Helga Kristín Bernhard Gísli Jón Magnússon
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
Okkar innilegustu þakkir færum við öllum
þeim sem á margvíslegan hátt heiðruðu
minningu og sýndu samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
AÐALHEIÐAR GEIRSDÓTTUR
Víkurbraut 28, Höfn.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
hjúkrunarþjónustunnar Karitas og líknardeildar Landspítala
fyrir frábæra umönnun og hlýju.
Margrét Sigurðardóttir Sigurjón Arason
Anna Sigurðardóttir Gunnar Þór Árnason
Halldóra Sigríður Sigurðardóttir Jóhannes Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
„Þetta er hefð í kringum sýningar,
þarna gefst fólki kostur á að fræð-
ast um listsköpunina og verkin. Ég
held einhverja tölu og sit svo fyrir
svörum,“ segir Snorri Ásmundsson
myndlistarmaður sem býður upp á
listamannsspjall og fer einnig með
gjörning í Týsgalleríi á sunnudag-
inn klukkan 15.00.
Þar ætlar Snorri að gefa fólk kost
á að spyrja um verk hans en hann er
með sýningu í galleríinu sem nefnist
I am so funny, en sýningin er tuttug-
asta og fimmta einkasýningin sem
Snorri hefur haldið undanfarin ár.
„Ég geri ráð fyrir að þetta lista-
mannsspjall verði einstaklega
skemmtilegt því ég er mjög fynd-
inn og skemmtilegur maður,“ segir
Snorri spurður út í spjallið. Nafn
sýningarinnar er einmitt dregið
af persónuleika Snorra sem þykir
einkar skemmtilegur maður. „Menn
hafa komið að mér hlæjandi, þar
sem ég er í einrúmi og skellihlæ
að sjálfum mér. Ég er svo ánægður
með lífið og það endurspeglast í list
minni,“ útskýrir Snorri.
Snorri er þekktur fyrir ýmis upp-
átæki þar sem hann ögrar og stríðir
ríkjandi gildum. „Ég er krónískur
óþekktarormur,“ bætir Snorri við.
Listmannsspjallið hefst klukkan
15.00 í Týsgalleríi sem stendur við
Týsgötu 3.
gunnarleo@frettabladid.is
Óþekktarormur svarar
fyrir sig og list sína
Myndlistarmaðurinn Snorri Ásmundsson býður upp á listamannsspjall og fer einnig með
gjörning á sunnudag í Týsgallerýi. Hann lofar skemmtilegri stund.
SNORRI ÁSMUNDSSON
SKEMMTILEGUR ÓÞEKKTARORMUR Snorri Ásmundsson býður upp á listamannsspjall og fer einnig með gjörning á sunnudag. MYND/SPESSI
Dómsmálaráðuneytið sendi öllum lögreglu-
og fangelsisstjórum landsins bréf þennan
dag árið 1976 þar sem tilgreint var að
notkun á hljóðtækjum til að róa fanga væri
bönnuð.
Ábending hafði borist stjórn Íslenskrar
réttarverndar um að sérstök hátíðnihljóð-
tæki væru notuð í fangelsum hér á landi.
Samkvæmt lýsingu voru tækin tengd hátal-
arakerfi inn í fangaklefana og átti hljóðið
að róa fanga sem væru með óspektir og
hávaða. En fullyrt var að um pyntingartæki
væri að ræða.
Í kjölfarið sendi stjórn félagsins menn
á sínum snærum í heimsókn í þau tvö
fangelsi sem tiltekin voru í bréfinu og
staðfestu að tækin væru til staðar en ekki
hafði verið veitt heimild fyrir notkun þeirra.
Annað tækið hafði verið smíðað hér á landi
en hitt hafði verið pantað að utan.
ÞETTA GERÐIST: 22. MARS 1976
Bannað að róa fanga með hljóðum