Fréttablaðið - 22.03.2014, Blaðsíða 96
22. mars 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 60
LAUGARDAGUR
SUNNUDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
LAUGARDAGUR
22. MARS 2014
Sýningar
17.00 Verið hjartanlega velkomin á
opnun laugardaginn 22. mars kl. 17 í
Kling & Bang gallerí. Sýning á nýjum
verkum eftir Emmu Heiðarsdóttur, Ingi-
björgu Sigurjónsdóttur, Loja Höskulds-
son, Margréti Helgu Sesseljudóttur
og Sigurð Ámundason. Lystisemdir,
Efasemdir, Heimsendir í Kling & Bang
gallerí.
Kvikmyndir
15.00 Geboren in Absurdistan (Fædd í
Absúrdistan) er sýnd laugardaginn 22.
mars klukkan 15.00 í Borgarbókasafninu
við Tryggvagötu 15. Ókeypis aðgangur.
Málþing
13.00 Laugardaginn 22. mars klukkan
13-15 verður haldið málþing í fyrir-
lestrasal Þjóðminjasafnsins um vefnað
og hannyrðir fyrr á öldum. Málþingið er
öllum opið og aðgangur ókeypis.
Tónlist
16.00 Jónas Ingimundarson heldur
upp á hálfrar aldar afmæli sitt með
tónleikunum Við slaghörpuna í Selfoss-
kirkju laugardaginn 22. mars kl. 16. Með
honum verða sópransöngkonan Auður
Gunnarsdóttir og Ragnheiður Steindórs-
dóttir leikkona sem flytur öll ljóðin, sem
sungin eru, þau erlendu í þýðingum
Reynis Axelssonar.
20.30 Hápunktur Menningarvikunnar í
Grindavík verða stórtónleikar í Íþrótta-
húsinu laugardaginn 22. mars kl. 20.30
þar sem hinir alkunnu Fjallabræður og
hinn geðþekki Jónas Sig munu flytja
verk sín ásamt 80 manna Lúðrasveit
Vestmannaeyja og Þorlákshafnar.
Þessir aðilar eru ekki með öllu ókunnugir
hverjir öðrum, enda hefur samstarf þess-
ara tónlistarhópa að undanförnu skilað
mikilli gleði og ánægju jafnt til flytjenda
sem og áhorfenda. Miðasala hefst laug-
ardaginn 22. febrúar í sjoppunni Aðal-
braut, Víkurbraut 31, Grindavík. Miða-
verð á tónleikana er 3.900 kr. Stefnan er
að fylla íþróttahúsið í Grindavík.
21.00 Good Moon Deer er tónlistarsjálf
grafíska hönnuðarins Guðmundar Inga
Úlfarssonar sem hófst með smávægilegu
svefnherbergisgutli en í samkrulli með
vininum og trommaranum Ívari Pétri
Kjartanssyni (FM Belfast, Benni Hemm
Hemm & Miri) hefur það tekið á sig
áþreifanlegri mynd. Tónlistinni hefur
verið lýst sem djass fyrir stafræna öld en
á tónleikum Good Moon Deer má búast
við framúrstefnulegum og geðklofnum
smölunarbútum í bland við þunga
trommutaktar og margvíslega, lifandi
sjónræna skreytingar. Aðgangseyrir er
2.000 kr. Fer fram í Mengi, Óðinsgötu 2.
22.00 Útgáfutónleikar + bestu lögin
í Gamla bíói laugardaginn 22. mars
2014. SúEllen heldur nú loksins tónleika
í Reykjavík og ætlar að kynna nýjan
geisladisk og spila sín þekktustu lög í
Gamla bíói. Sérstakur heiðursgestur tón-
leikanna verður Bjartmar Guðlaugsson.
22.30 Hljómsveitin Frost Heldur sína
fyrstu tónleika á árinu með stæl á Gamla
Gauknum 22. mars. Ásamt Frost koma
fram Hljómsveitirnar Different Turns og
Morgan Kane. Húsið er opnað kl. 22.30
og veislan byrjar á slaginu 23.00. 1.500
krónur kostar inn.
23.00 Ellert Sigurðarson skemmtir á
Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8, laugar-
daginn 22. mars kl. 23.00. Aðgangur er
ókeypis.
23.00 Hljómsveitin Á móti sól leikur á
stórdansleik á Spot, Kópavogi í kvöld.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
SUNNUDAGUR
23. MARS 2014
Fræðsla
14.00 Halldór B. Runólfsson, safnstjóri
Listasafns Íslands, verður með leiðsögn
um yfirlitssýningu á verkum Magn-
úsar Kjartanssonar, Form, litur, líkami:
Háspenna / lífshætta, sunnudaginn
23. mars, kl. 14.00, í Listasafni Íslands
Fríkirkjuvegi 7.
Félagsvist
14.00 Félagsvist í Breiðfirðingabúð sunnu-
daginn 23. mars kl. 14. Allir velkomnir.
Kvikmyndir
15.00 Helsinki-Napoli All Night Long
(Helsinki-Napólí, úti alla nóttina) er sýnd
sunnudaginn 23. mars klukkan 15.00
á Borgarbókasafninu Tryggvagötu 15.
Ókeypis aðgangur.
15.00 Kl. 15 verður fyrri hluti hinnar
frægu kvikmyndar Sergeis Eisenstein Ívan
grimmi sýndur í MÍR, Hverfisgötu 105.
Eisenstein vann að gerð myndarinnar á
dögum síðari heimsstyrjaldarinnar, 1941-
1944, en hún fjallar um Ívan IV stórfursta
sem krýndur var keisari yfir öllu Rússlandi
á árinu 1547 og hlaut síðar viðurnefnið
hinn grimmi. Nikolaj Tsjerkasov leikur titil-
hlutverkið, tónlist er eftir Sergei Prokofjev.
Enskur texti. Aðgangur ókeypis.
Kynningar
17.00 Andrea Jónsdóttir leikur og kynnir
lög af hljómplötum á Ob-La-Dí-Ob-La-Da,
Frakkastíg 8, sunnudaginn 23. mars kl.
17.00.
Dansleikir
20.00 Dansað verður í félagsheimili eldri
borgara i Stangarhyl 4 í Reykjavík næst-
komandi sunnudagskvöld kl. 20.00-23.00.
Danshljómsveitin Klassík leikur fyrir dansi.
Aðgangseyrir er 1.500 kr fyrir félagsmenn
en 1.800 fyrir gesti. Allir velkomnir.
Leikrit
14.00 Tumi tímalausi er nýr barnasöng-
leikur eftir Pétur Guðjónsson og Jokku.
Tónlistin er af vísnaplötum Gunnars Þórð-
arsonar: Einu sinni var og Út um græna
grundu. Leikritið fjallar um Tuma, sem er
ungur smaladrengur og getur ekki beðið
eftir að verða eldri og lenda í ævintýrum.
Fjórar sýningar fara fram yfir daginn.
Tónlist
15.15 Leifur, Caput, Carter, Rómantík og
raðtækni. Tuttugustu aldar tónlist eins og
hún gerist best á tónleikum Caput hóps-
ins í 15.15 tónleikasyrpunni í Norræna
húsinu, sunnudaginn 23. mars kl. 15.15.
17.00 Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
og Tinna Þorsteinsdóttur frumflytja nýjan
píanókonsert eftir Eirík Árna Sigtryggsson
sunnudag kl. 17.00 í Seltjarnarneskirkju.
Nafn konsertsins er Grúi.
17.00 Hljómeyki er fjörutíu ára í ár. Því
fara fram afmælistónleikar í Norður-
ljósum 23. mars klukkan 17.00. Fram
koma einnig Hallveig Rúnarsdóttir, Hrönn
Þráinsdóttir og Stefán Jón Bernharðsson.
20.00 Kammerkvöld Elektra Ensemble:
Heiðríkja og haustvindar, Kjarvalsstaðir,
sunnudag 23. mars kl. 20. Yfirskrift tón-
leika Elektra Ensemble að þessu sinni er
Heiðríkja og haustvindar en á efnisskránni
eru kammerverk fyrir flautu, klarínett og
strengi.
20.00 Þann 23. mars næstkomandi mun
eini dömukór landsins, Graduale Nobili,
ráðast á vígi karlakóra og flytja mörg
þekktustu karlakóralög landsins eins og
Brennið þið vitar, Hraustir menn, Sveinar
kátir syngið og fleiri gullmola. Tónleikarnir
verða haldnir í okkar ástkæru Langholts-
kirkju og byrja á slaginu 20.00. Almennt
miðaverð er 2.000 kr. Meðlimir Langholts-
kirkju Listafélags, karlakórsmeðlimir nær
og fjær og fátækir námsmenn fá miðann
á 1.500 kr.
20.00 Fimmtu og síðustu tónleikar
með þessu sniði í tónleikaröðinni Við
slaghörpuna í hálfa öld verða í Salnum
sunnudaginn 23. mars kl. 20.00. Þá mun
sópransöngkonan góðkunna Sigrún Hjálm-
týsdóttir, Diddú, mæta ásamt leikkonunni
Guðrúnu Gísladóttur. Sem fyrr situr Jónas
Ingimundarson við flygilinn.
Markaðir
15.00 Sunnudaginn 23. mars, kl. 15-17,
stendur Ungmennaráð UNICEF fyrir skipti-
markaði barna með leikföng, spil, bækur
og annað í Borgarbókasafni, Tryggvagötu 15.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is
ALLRA SÍÐUSTU
SÝNINGAR!
SÍÐASTA AUKASÝNING, 3. APRÍL, KOMIN Í SÖLU
22. MARS - UPPSELT
28. MARS - ÖRFÁ SÆTI
29. MARS - UPPSELT
3. APRÍL - LAUS SÆTI
6. APRÍL - UPPSELT
ALLAR SÝNINGAR
HEFJAST KL. 20
MIÐASALA Í HÖRPU OG Á HARPA.IS
MIÐASÖLUSÍMI 528 5050
H.A. DV
J.S. FBL
Ragnheiður – ópera eftir
Gunnar Þórðarson
og Friðrik Erlingsson
„Það búa tveir meðlimir sveitar-
innar úti og annar þeirra er á
landinu og því ætlum við að nýta
tækifærið og telja í tónleika,“
segir Valdimar Guðmundsson,
söngvari og básúnuleikari hljóm-
sveitarinnar Valdimars. Sveitin
kemur fram á tónleikum á Café
Rosenberg á laugardagskvöldið.
Hljómsveitin hefur lítið komið
fram hér á landi undanfarið og eru
þetta fyrstu tónleikar sveitarinnar
á Íslandi á árinu. „Við fáum Arnljót
Sigurðsson til að hlaupa í skarðið
fyrir okkur og plokka bassann.“
Sveitin lauk nýverið við sína
fyrstu tónleikaferð um Evrópu en
þar lék hún á sjö tónleikum í Þýska-
landi, Austurríki og í Sviss.
Valdimar er nú á fullu að vinna
í nýrri plötu. „Við erum búnir að
taka upp grunnana að mestu leyti
þannig að Guðlaugur bassaleik-
ari og Þorvaldur trommari eru
að mestu búnir að taka sína parta
upp. Við stefnum svo á að reyna
koma plötunni út seint í sumar,“
segir Valdimar um nýju plötuna.
Hljómsveitin hefur áður gefið út
tvær breiðskífur, Undraland og
Um stund.
Valdimar ætlar að leika nýtt
efni á tónleikunum. „Við tökum
eitthvað af nýjum lögum en er
þó ekki alveg viss hversu mörg,“
segir Valdimar.
Tónleikarnir eru eins og fyrr
segir á Café Rosenberg, Klappar-
stíg og hefjast klukkan 22.00.
Miðaverð er 2.000 krónur og eru
miðar seldir við innganginn.
gunnarleo@frettabladid.is
Valdimar spilar nýtt
efni á Rosenberg
Hljómsveitin Valdimar kemur fram á tónleikum á Café Rosenberg í kvöld. Þetta
eru fyrstu tónleikar sveitarinnar á Íslandi á þessu ári. Nýtt efni verður fl utt.
LOKSINS Á ÍSLANDI Hljómsveitin Valdimar leikur á sínum fyrstu tónleikum á Íslandi á þessu ári, á Rosenberg á laugardags-
kvöldið. Hér sjáum við góða mynd úr góðu tónleikaferðalagi um Evrópu. MYND/EINKASAFN