Fréttablaðið - 22.03.2014, Side 101

Fréttablaðið - 22.03.2014, Side 101
LAUGARDAGUR 22. mars 2014 | LÍFIÐ | 65 Breyttu ramma í lyklahengi 1 Finnið ramma sem ykkur finnst fallegur. Hægt er að halda í upp- runalega litinn eða spreyja hann í einhverum skemmtilegum lit. 2 Takið glerið og bakhlið ramm- ans af. 3 Merkið með blýanti hvar þið vilj- ið hengja króka fyrir lykla í efri brún rammans. 4 Borið viðeigandi stór göt þar sem merkingarnar eru og skrúfið krókana í. 5 Hengið rammann upp og njótið! * fengið af vefsíðunni purplecarrotkc.com. Nánari upplýsingar og fleiri myndir af verkefninu má finna á Lífið á visir.is. Lumar þú á einföldu og skemmtilegu verkefni sem hægt er að framkvæma sjálfur? Sendu það endilega á okkur á netfangið. liljakatrin@frettabladid.is NÝTT HLUTVERK Ramminn nýtur sín vel í ganginum til dæmis. Föndraðu Ofurfyrirsætan Miranda Kerr segir að heilsusamlegt líferni hennar hafi jákvæð áhrif á Flynn, son hennar og leikarans Orlandos Bloom. „Hann bað um að fá að gera smoothie um daginn. Síðan sagði hann við mig: „Þessi drykk- ur er fyrir þig. Hann er fullur af andoxunarefnum.“ Hann er þriggja ára, hvernig veit hann þetta? Hann hefur greinilega heyrt mig tala um þetta,“ segir Miranda og bætir við að hún stundi líka líkamsrækt með Flynn litla. „Við erum alltaf dansandi, hann elskar það. Það er í uppá- haldi hjá honum.“ - lkg Æfi r með syninum GÓÐ MAMMA Miranda og Flynn eru afar náin. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Þessar spurningar bárust mér nafnlaust frá 13 til 15 ára gömlum unglingum á höfuðborg- arsvæðinu. ? Er hægt að fá kynsjúkdóm án þess að stunda samfarir? SVAR: Kynsjúkdóm er hægt að fá í háls- inn svo hann getur smitast við munnmök. Þó er algengara að smitast með samför- um í leggöng eða endaþarm. Gott er að muna að allir kynsjúkdómar geta verið einkennalausir og því getur þú verið með kynsjúkdóm án þess að vita af því. Eina verjan sem ver gegn kynsjúkdómum er smokkurinn. Ef þú notaðir ekki smokkinn þá þarftu að fara í kynsjúkdómaskoðun. ? Er ekki óhollt að stunda rassamök (getur ekki eitthvað skemmst)? SVAR Við örvun endaþarms þarf að fylgja ákveðnum reglum því þetta svæði er við- kvæmt og til að einmitt „skemma“ ekki eitt- hvað eða valda sársauka þá þarf að fara var- lega. Þó ber ekki svo að skilja að ef þú sért að nudda endaþarminn eða örva hann að þú munir skemma eitthvað. Endaþarmurinn er teygjanlegur en það þarf að fara varlega og virða mörk líkamans. Það er gott að byrja bara rólega á einum fingri og nota fullt af sleipiefni. Ef þér er illt þá er gott að hætta. Ef þú ert áhugasöm/samur um endaþarminn þá getur þú kannað hann í næstu sjálfsfróun. Allt kynlíf byrjar á þér sjálfum/ri í sjálfsfró- un og því er það kjörið tækifæri til að kanna þetta svæði ef þér þykir það spennandi og lært inn á eigin líkama. ? Ef þú vilt ekki fá sæði í munninn [innskot, við munnmök] er þá ekki betra að nota smokk sem bragð er af? SVAR Þar sem kynsjúkdómar geta smitast við munnmök þá eru smokkar með bragði einmitt framleiddir til þess að nota við munn- mök. Kostur og markmið smokksins er að hann grípur og geymir sæðið og því þarf ekki að hafa áhyggjur af því að fá það upp í sig. Þó ber að nefna að það þarf ekki að fá sæði í munninn við munnmök, það er allt í lagi að hætta að stunda munnmök áður en að sáðláti kemur. Þá er einnig í lagi að nota smokk með bragði í samförum. Alls kyns bragðtegundir eru til svo þú ættir að geta fundið eitthvað sem þér geðjast að. ? Getur fólk fest saman í samförum eins og hundar þegar þeir eru í samförum? SVAR Það getur allt gerst en almennt séð þá festist fólk ekki saman í samförum. Þó geta leggöng fengið krampa þar sem við- komandi þarf að ná að slaka verulega á til að limur getur losnað úr leggöngum en slíkt er ekki algengt. Líffræði hunda er önnur en mannfólks og að mér skilst þá er limur hunda þannig að hann stækki við samfarir og hundar festist saman í smá tíma við sam- farir. Dýralæknir gæti kannski svarað þessu betur. En almennt séð þá þarft þú ekki að hafa áhyggjur af því að festast við bólfélag- ann þinn. Getur fólk fest saman í samförum?
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.