Fréttablaðið - 22.03.2014, Page 103
LAUGARDAGUR 22. mars 2014 | LÍFIÐ | 67
Mexikósk lkl-tacobaka:
3,5 dl möndlumjöl
50 g smjör
1 tsk. paprikuduft
1/4 tsk. salt
1 egg
Hakkfylling:
500 g nautahakk
1 laukur
3 hvítlauksrif
2 dl. vatn
1 lítil dós, eða 2-3 msk. tómatpurée
2-3 msk. chili-sósa (t.d. frá Heinz– en þessu
má sleppa og nota frekar hálfa dós af
niðursoðnum tómötum eða annað sem er
ekki jafn kolvetnaríkt og chili-sósan)
2 tsk. chili-duft (sleppið eða minnkið ef
þetta á ekki að vera mjög sterkt)
2 tsk. cumin
2 tsk. kóríanderduft
1 msk. sojasósa
1-2 tsk. salt
Ostafylling:
2-3 tómatar, eða eitt box af kirsuberja-
tómötum
1 dós, eða um 2 dl sýrður rjómi
3-4 msk. rjómaostur
150 gr. rifinn ostur
Byrjið á að gera deigið, því það þarf
smá tíma til að standa og svo til að
bakast áður en fyllingin er sett í
það. Skerið smjörið í litla teninga og
hnoðið það saman við möndlumjöl,
salt og paprikuduft. Þegar þetta er
orðið að mulningi er egginu bætt út
í og hnoðað saman. Ef deigið er of
blautt er minnsta mál að bæta við
meira möndlumjöli eða kókoshveiti
jafnvel. Þrýstið deiginu í bökuform
eða annað eldfast mót. Stingið með
gaffli hér og þar í botninn og látið
deigið standa í smá stund. Bakið svo
við 225°C í um 10 mín.
Skerið laukinn smátt og pressið
hvítlaukinn, steikið svo ásamt hakk-
inu þar til hakkið er gegnumsteikt.
Bætið vatni, tómatpurée, chili-sósu,
sojasósu og kryddum út í og látið
sjóða í 10-15 mín, eða þar til vatnið
hefur að mestu gufað upp.
Hrærið sýrðum rjóma, rjómaosti
og rifnum osti saman. Skerið tómat-
ana í bita (í helminga ef kirsuberja-
tómatar) og dreifið yfir hakkið.
Dreifið ostablandinu yfir tómatana.
Bakið við 200°C í 20 mín., eða þar
til ostablandan hefur fengið falleg-
an lit.
Baka í lágkolvetnabúningi með ljúff engri ostafyllingu
Unnur Karen Guðmundsdóttir bloggar á síðunni Hér er matur um mat … Hún deilir uppskrift að mexíkóskri böku í lágkolvetnaútgáfu.
Í HOLLARI KANTINUM Gott er að bera
bökuna fram með salati og sýrðum
rjóma– eða hverju sem er.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Söngkonan Kate Bush tilkynnti
að hún myndi halda fjölda tón-
leika síðar á árinu en það verður
þá hennar fyrsta tónleikaröð í
35 ár.
Kate, sem er hvað þekktust
fyrir lög á borð við Wuthering
Heights, Babooshka og Don‘t
Give Up, ætlar að halda fimmtán
tónleika í Hammersmith Apollo í
London í ágúst og kallar hún tón-
leikaröðina Before the Dawn.
Kate gaf út plötuna 50 Words
for Snow árið 2011 en fylgdi
henni ekki eftir með tónleikaröð
og hefur hún ekki haldið röð tón-
leika síðan árið 1979.
- lkg
Kate snýr aft ur
Tónlistarmaðurinn John Mayer
ætlar í mál við Robert Maron,
góðvin leikarans Charlies Sheen,
fyrir að selja sér eftirlíkingar af
Rolex-úrum.
John safnar Rolex-úrum og
keypti mörg þeirra af Robert
fyrir nokkrum árum. Nú segir
John hins vegar að að minnsta
kosti sjö af úrunum séu eftirlík-
ingar.
Lögfræðingar Roberts segja að
tónlistarmaðurinn hafi vitað full-
vel hvað hann væri að kaupa og
því vitað að um eftirlíkingar væri
að ræða. Charlie hefur einnig tjáð
sig um málið og segist hafa keypt
fullt af ekta úrum af vini sínum.
- lkg
Fer í mál
ÁNÆGÐIR AÐDÁENDUR Kate Bush er
goðsögn í tónlistarbransanum.
ÓSÁTTUR John er ekki skemmt.
21. - 22. MARS
Í HÁSKÓLANUM Í REYKJAVÍK
forritun.is
Í heimi sem er fullur af núllum og einum, ert þú núll eða ert þú sá Eini?