Fréttablaðið - 22.03.2014, Side 104
22. mars 2014 LAUGARDAGUR| SPORT | 68
visir.is
Meira um leiki
gærkvöldsins
FÓTBOLTI Það er óhætt að segja að
það besta sé geymt þar til síðast
þessa íþróttahelgina. Helgin endar
nefnilega á El Clásico annað kvöld
og nú er ekki bara heiðurinn og
stoltið undir heldur einnig spænski
meistaratitillinn.
Á sama tíma og Carlo Ancelotti
hefur fest allar skrúfur í stjörn-
um prýddu Real Madrid-vélinni á
sínu fyrsta tímabili hefur spænska
pressan verið dugleg að spá um
væntanlega „endalok“ og kynslóða-
skipti hjá einu besta fótboltaliði
allra tíma.
BBC-þríeykið
Sóknarlína Real Madrid hefur
vissulega stolið senunni á Spáni
á þessu tímabili en þeir Cris-
tiano Ronaldo, Karim Benzema
og Gareth Bale hafa sem dæmi
skorað saman 76 mörk á leiktíð-
inni. Spænsku fjölmiðlamennirnir
voru fljótir að kalla þá „BBC“ eftir
þeim Bale (14 mörk), Benzema (21
mark) og Cristiano (41 mark).
Aðalhetja Börsunga, Lionel
Messi, hefur aftur á móti verið að
vakna úr „dvala“ eftir meiðsla-
hrjáða mánuði um mitt tímabilið
en gengi Barcelona hefur á sama
tíma verið allt annað en sann-
færandi heima fyrir. Menn sjá nú
breytingu á því, sumir spekingar
hafa hlegið hátt að „krísuumræð-
unni“ og benda á að Barcelona
eigi enn möguleika á þrennunni á
fyrsta tímabili Gerardos Martino.
Landi hans Messi hefur nú
skorað í átta af síðustu níu leikjum
Börsunga, þar á meðal þrennu í 7-0
sigri á Osasuna um síðustu helgi,
og því má segja að bæði liðin komi
inn í leikinn með sína fremstu
menn í stuði.
Tíu fleiri stig en Barca
Barcelona var með sex stiga for-
skot á Real eftir 2-1 sigur á Real
Madrid í fyrri El Clásico-leiknum
sem fór fram í lok október. Nú er
staðan hins vegar allt önnur enda
hefur Real Madrid verið á mikilli
siglingu á þessu ári og er nú með
fjórum stigum meira en Barcelona
þegar tíu leikir eru eftir.
Á þessum 147 dögum hefur Real
fengið tíu fleiri stig og skorað sex
fleiri mörk en Barcelona og um
leið tekið að sér forystuhlutverkið í
baráttunni um meistaratitilinn.
Leikmenn Real Madrid hafa,
síðan þeir yfirgáfu Nývang með
skottið á milli lappanna, leikið
31 leik í röð í öllum keppnum án
þess að tapa og í 26 leikjanna
hafa þeir fagnað sigri. Börsungar
hafa tapað fjórum sinnum heima
fyrir á þessu tímabili þar á meðal
fyrir liðum eins og Real Sociedad
og Real Valladolid.
Bæði Barcelona og Real
Madrid styrkti sig með stjörnu-
sóknarmönnum í sumar. Real
Madrid setti heimsmet í kaupun-
um á Gareth Bale og Börsungar
náðu í Brasilíumanninn Neymar
frá Santos.
Neymar maður fyrri leiksins
Neymar stimplaði sig inn í fyrri
leik liðanna með því að skora eitt
mark og leggja upp annað.
Síðan hefur heyrst minna af
stráknum innan vallar en hann
verið meira milli tannanna á
fólki fyrir „óhrein“ kaup Barce-
lona en stór hluti upphæðarinn-
ar fór meðal annars beint í vasa
foreldra hans. Gareth Bale átti
aftur á móti ekki þátt í marki og
var tekinn af velli eftir rúmlega
klukkutíma leik.
Síðan þá hefur hróður Gareths
Bale aukist, hann hefur náð sér
af meiðslunum og myndar nú
einn þriðja af hinum ógnvæn-
lega þríhöfða Real sem tætir í sig
hverja vörnina á fætur annarri í
bæði spænsku deildinni og Meist-
aradeildinni.
Sviðið hans Messis
Því má samt ekki gleyma að El
Clásico hefur verið sviðið hans
Messis síðustu ár og á morgun
getur hann skorað sitt 19. mark
í leikjum á móti Real Madrid og
því hefur enginn annar náð í sögu
El Clásico.
Leikir Real Madrid og Barce-
lona eru ávallt mikil skemmtun
og ekki spillir fyrir að spænski
meistaratitillinn er undir að
þessu sinni – að minnsta kosti
fyrir Börsunga.
Það hafa líka verið skoruð
mörk í þessum leikjum og bæði
liðin hafa sem dæmi skorað í und-
anförnum fjórtán innbyrðisviður-
eignum sínum í öllum keppnum.
Hatrið hefur oft sett sinn svip á
El Clásico-leikina en hvaða fót-
boltaáhugamaður getur misst af
því horfa á helstu hæfileikamenn
heimsfótboltans bæta við magn-
aða sögu risaveldanna í landi
heimsmeistaranna?
SPORT
Messi á móti Þríhöfðanum
Það hefur mikið breyst síðan Barcelona vann Real Madrid á Nývangi í október. Real hefur síðan leikið 31
leik í röð án taps og nú þarf Barcelona helst að vinna á Bernabéu á morgun til að missa ekki af lestinni.
Óskar Ó. Jónsson
ooj@frettabladid.is
Gareth Bale
14 mörk
16 stoðsendingar
Átti þátt í 30 mörkum
í 31 leik í öllum
keppnum
Karim
Benzema
21 mark
11 stoðsendingar
Átti þátt í 32 mörkum
í 38 leikjum í öllum
keppnum
Cristiano
Ronaldo
41 mark
15 stoðsendingar
Átti þátt í 56 mörkum
í 37 leikjum í öllum
keppnum
Lionel
Messi
31 mark
14 stoðsendingar
Átti þátt í 45 mörkum
í 33 leikjum í öllum
keppnum
HANDBOLTI Hornamaðurinn Hanna Guðrún Stefánsdóttir og
markvörðurinn Florentina Stanciu verða fjarri góðu gamni
þegar Ísland mætir Frökkum tvívegis, hér heima og ytra, í
mikilvægum leikjum í undankeppni EM 2014. Verður þeirra
sárt saknað enda í stóru hlutverki hjá toppliði Stjörnunnar í
Olísdeild kvenna.
Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari hefur valið
þær Marthe Sördal og Dröfn Haraldsdóttur í hópinn
í þeirra stað.
Leikið verður gegn Frökkum hér á miðviku-
daginn og svo ytra eftir viku. Frakkland er á toppi
riðilsins með fjögur stig að loknum tveimur leikjum
en Ísland og Slóvakía koma næst með tvö stig hvort.
Finnland rekur svo lestina í riðlinum án stiga en tvö
efstu liðin komast áfram í úrslitakeppnina sem fer fram í
Króatíu og Ungverjalandi í desember. - esá
Florentina og Hanna Guðrún úr leik
KÖRFUBOLTI Stjörnumenn mæta til
leiks næsta vetur með nýjan þjálf-
ara en Teitur Örlygsson lætur af
störfum eftir tímabilið. Eftirmað-
ur hans verður Hrafn Kristjáns-
son, fyrrverandi þjálfari KFÍ,
Þórs, Breiðabliks og KR. Þetta
hefur Fréttablaðið eftir öruggum
heimildum.
Það kemur ekki mikið á óvart
að Teitur skuli láta af störfum en
margir bjuggust við því að hann
myndi hætta eftir síðasta tímabil.
Hann ákvað að taka slaginn eitt
tímabil til viðbótar en ætlar nú að
yfirgefa Garðabæinn.
„Ég veit ekki
hvað ég geri.
Ég get alveg
viðurkennt að
mig er farið að
langa í smá frí
en ég þori samt
ekki að lofa
neinu á þessum
tímapunkti,“
sagði Teitur við
Fréttablaðið
fyrr í mánuðinum.
Búið er að tilkynna ákveðnum
hópum innan Stjörnunnar að þjálf-
arabreyting verði á liðinu, þar á
me ð a l le i k-
mönnum liðsins.
Tímabili
Stjörnumanna
er ekki lokið en
liðið er í miðri
r i m m u v i ð
Keflavík í átta
liða úrslitum
deildarinnar.
Hrafn Krist-
jánsson þjálfaði
síðast KR frá 2010-2012 en hann
gerði liðið að Íslandsmeisturum
eftir sigur á Stjörnunni í úrslita-
rimmu, 3-1.
Sem þjálfari Þórs fór Hrafn
með liðið upp úr 1. deildinni 2007
eftir að hafa fallið árið áður.
Hann starfar í dag sem þjálfari
unglingaflokks hjá Stjörnunni og
þekkir því vel til í Garðabænum.
Undir stjórn Teits Örlygsson-
ar er Stjarnan orðin einn af stóru
strákunum í íslenskum körfubolta
en liðið hefur á síðustu fimm árum
með Teit í brúnni unnið bikar-
meistaratitilinn í tvígang og tvisv-
ar farið í lokaúrslitin. Liðið hafði
aldrei leikið til úrslita í bikarnum
né komist í úrslitakeppnina áður
en Teitur tók við. - tom
Hrafn tekur við af Teiti hjá Stjörnunni
Teitur Örlygsson lætur af störfum hjá Stjörnunni eft ir fi mm tímabil og tvo titla í Garðabænum.
HRAFN
KRISTJÁNSSON
TEITUR
ÖRLYGSSON
KÖRFUBOLTI Haukar þurfa að bíða
fram á þriðjudag til að komast að því
hvaða liði þeir mæta í lokaúrslitum
Domino‘s-deildar kvenna. Valur
knúði fram oddaleik gegn Snæfelli
með öruggum sigri í gær. Þetta var
fjórði leikur liðanna á aðeins sex
dögum og Snæfellingar dauðþreyttir.
Valur er hins vegar með stærri leik-
mannahóp og gat leyft sér að dreifa
álaginu meira á milli leikmanna.
Valur knúði fram oddaleik gegn dauðþreyttum Snæfellingum
ÖRUGGT Valsarinn Anna Martin sækir að Hildi Sigurðardóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
ÚRSLIT
DOMINO‘S-DEILD KVENNA
UNDANÚRSLIT, 4. LEIKUR
VALUR - SNÆFELL 82-56 (41-25)
Valur: Kristrún Sigurjónsdóttir 16, Anna Martin
14, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 9, Rut Herner Kon-
ráðsdóttir 8, Þórunn Bjarnadóttir 8, Ragnheiður
Benónísdóttir 8, María Björnsdóttir 8, Guðbjörg
Sverrisdóttir 7, Margrét Einarsdóttir 2, Ragna Mar-
grét Brynjarsdóttir 2.
Snæfell: Hildur Sigurðardóttir 12, Guðrún Gróa
Þorsteinsdóttir 11, Eva Margrét Kristjánsdóttir
9, Hildur Björg Kjartansd. 9, Chynna Brown 5,
Berglind Gunnarsdóttir 4, Rebekka Rán Karlsdóttir
3, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 3.
Staðan í einvíginu er 2-2.
DOMINO‘S-DEILD KARLA
8 LIÐA ÚRSLIT, 1. LEIKUR
KEFLAVÍK - STJARNAN 81-87 (32-43)
Keflavík: Michael Craion 28/17 fráköst, Magnús
Þór Gunnarsson 18/5 stoðsendingar, Darrel Keith
Lewis 11/5 fráköst, Arnar Freyr Jónsson 9, Valur
Orri Valsson 7, Guðmundur Jónsson 6/4 fráköst,
Gunnar Ólafsson 2.
Stjarnan: Justin Shouse 28/8 stoðsendingar,
Matthew James Hairston 17/17 fráköst, Marvin
Valdimarsson 15/10 fráköst, Jón Sverrisson
11/9 fráköst, Dagur Kár Jónsson 7, Fannar Freyr
Helgason 5, Sæmundur Valdimarsson 4.
NJARÐVÍK - HAUKAR 88-84 (41-49)
Njarðvík: Tracy Smith Jr. 33/18 fráköst, Logi
Gunnarsson 16/4 fráköst, Elvar Már Friðriksson
16/9 stoðsendingar, Ólafur Helgi Jónsson 13/6
fráköst/5 stoðsendingar, Ágúst Orrason 4, Maciej
Stanislav Baginski 3, Hjörtur Hrafn Einarsson 3.
Haukar: Terrence Watson 21/18 fráköst, Haukur
Óskarsson 21, Sigurður Þór Einarsson 14, Davíð
Páll Hermannsson 9, Emil Barja 6/5 fráköst/5
stoðsendingar, Kristinn Marinósson 5, Kári
Jónsson 4, Svavar Páll Pálsson 2, Helgi Björn
Einarsson 2.
FÓTBOLTI Dregið var í fjórðungs-
úrslit Meistaradeildar Evrópu
í gær og fengu David Moyes og
hans menn í Manchester United
erfitt verkefni, en andstæðing-
ur liðsins verða sjálfir Evrópu-
meistararnir í Bayern München.
Fyrri leikurinn fer fram á Old
Trafford þann 1. apríl.
„Ég var fyrst og fremst ánægð-
ur með að vera með í pottinum,“
sagði Moyes við enska fjölmiðla
í gær. „Þetta verður erfitt enda
Bayern líklega sigurstrangleg-
asta liðið í keppninni. Ég hefði
líklega kosið að eiga síðari leik-
inn á heimavelli en við verðum
bara að taka þessu.“
Peningaliðin Chelsea og PSG
eigast við og það verður Spánar-
slagur þegar Atletico Madrid
leikur gegn Barcelona. Að síð-
ustu mætast Dortmund og Real
Madrid og fær því síðarnefnda
liðið tækifæri til að hefna ófar-
anna eftir að Þjóðverjarnir slógu
Cristiano Ronaldo og félaga úr
leik í undanúrslitunum í fyrra.
Síðari leikirnir fara fram 8. og
9. apríl. - esá
Verðum bara
að taka þessu
SENDIHERRANN Luis Figo dró liðin í 8
liða úrslitunum saman í gær en hann er
fulltrúi Lissabon sem hýsir úrslitaleikinn
í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/GETT