Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 69

Læknablaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 69
LAUSAR STÖÐUR LANDSPÍTALI iiAskólasjúkrahús Sérfræðingur Við svæfinga- og gjörgæsludeild Landspítala Fossvogi er laus staða sérfræðings í svæfinga- og gjörgæslulækningum. Um er að ræða fullt starf. Æskilegt er að umsækjandi hafi sérþekkingu á sviði gjörgæslulækninga. Þátttaka í kennslu heilbrigðis- stétta og vísindarannsóknum er áskilin. A deildinni er fjölbreytt starfsemi og vinnuaðstaða er góð. Náið samstarf er milli svæfinga- og gjörgæsludeilda Landspítala Fossvogi og Hringbraut. Laun skv. kjarasamningum sjúkrahúslækna. Upplýsingar veitir Ólafúr Jónsson yfirlæknir í síma 525 1000, netfang olafjon@landspitali.is. Umsóknir þar sem getið er um náms- og starfsferil, kennslu- og vísindastörf, sendist í tvíriti Oddi Fjalldal sviðs- stjóra á svæfinga- gjörgæslu og skurðstofusviði, Landspítala Hringbraut, 101 Reykjavík, fyrir 24. mars n.k. Ráðning frá 1. júní 2001. Sérfræðingur í myndgreiningu Staða sérfræðings í myndgreiningu (100%) við röntgendeild Fossvogi er Iaus til umsóknar. Umsóknum fylgi upplýsingar um nám, fyrri störf, kennslu og vísindavinnu. Geta skal um helstu þekkingar- og áhugasvið innan greinarinnar. Viðkomandi skal hafa góða samstarfshæfileika. Starfinu fylgir kennsluskylda. Staðan veitist eftir nánara samkomu- lagi. Umsóknir skal senda í tvíriti til Péturs H. Hannessonar yfirlæknis, fyrir 9. apríl n.k. sem gefúr nánari upplýsingar í síma 525 1000, netfang peturh@landspitali.is Deildarlæknir óskast til starfa á röntgendeild Fossvogi í 100% stöðu. Staðan veitist til sex mánaða með möguleika á framleng- ingu. Samkomulagsatriði hvenær á vormánuðum viðkom- andi hefur störf. Starfið hentar vel þeim er hyggja á framhaldsnám í myndgreiningu sem er ört vaxandi grein. Reynsla á röntgendeild er einnig dýrmæt fyrir störf í öðrum sérgreinum. Umsóknarfrestur er til 12. mars n.k. Umsóknir skal senda í tvíriti til Péturs H. Hannessonar yfirlæknis, sem gefúr nánari upplýsingar í síma 525 1000, netfang peturh@landspitali.is. V J Seroquel AstraZeneca, 960203 TÖFLUR; N 05 A H 04 R * (Sérlyfjaskrártexti) Hver tafla inniheldur: Quetiapinum INN, fúmarat, samsvarandi Quetiapinum INN 25 mg, 100 mg eða 200 mg. Töflumar innihalda mjólkursykur (laktósu). Ábendingar: Seroquel er notað til meðhöndlunar á geðklofa. Skammtar og lyfjagjöf: Seroquel á að gefa tvisvar á dag, með eða án matar. Fullorðnir: Heildardagskammtur fyrstu fjóra daga meðferðarinnar er 50 mg (dagur 1), 100 mg (dagur 2), 200 mg (dagur 3) og 300 mg (dagur 4). Eftir þessa fjóra daga er mælt með 300 mg dagskammti. Dagskammtinn má aðlága að kliniskum viðbrögðum og þoli viðkomandi sjúklings, á bilinu 150-750 mg/dag. Aldraðir: Eins og með önnur geðlyf. skal lyfið notað með varúð hjá öldruðum, sérstaklega i upphafi meðferðar. Skammtaaukning getur þurft að vera hægari og dagsskammtur lægri en hjá yngri sjúklingum, og fer það allt eftir klínískum viðbrögðum og þoli viðkomandi sjúklings. Klerans quetiapíns var að meðaltali um 30-50% minni hjá öldruðum samanboriö við yngri sjúklinga. Börn og unglingar: Mat á öryggi og verkun lyfsins hjá börnum og unglingum er ekki fyrirliggjandi. Sjúklingar með nýrnabilun: Ekki er nauðsynlegt að aðlaga skammtinn. Sjúklingar með lifrarbilun: Quetiapin umbrotnar að miklu leyti f lifur, og skal því notað með varúð hjá sjúklingum með lifrarbilun, sérstaklega í upphafi meðferðar. Upphafsskammtur lyfsins skal vera 25 mg/dag hjá sjúklingum með lifrarbilun. Skammtinn skal auka daglega um 25-50 mg þar til viðunandi skammti er náð, og fer það allt eftir klínískum viðbrögðum og þoli viðkomandi sjúklings. Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum lyfsins. Varnaðarorö og varúöarreglur: Samtímis sjúkdómar: Lyfið skal nota með varúð fyrir sjúklinga með þekkta hjarta- og æðasjúkdóma, sjúkdóma í heilaæðum og fyrir sjúklinga sem hættir til að fá of lágan blóðþrýsting. Seroquel getur orsakað stöðubundið blóðþrýstingsfall, sérstaklega í upphafi þegar verið er að auka skammta smám saman. Flog: í klfnískum samanburðarránnsóknum var enginn munur í tíðni floga hjá sjúklingum sem fengu lyfið eða lyfleysu. Eins og með önnur geðlyf, skal gæta varúðar við meðhöndlun sjúklinga sem fengið hafa flog. Síðkomin hreyfitruflun (tardive dyskinesia): I klínískum samanburðarrannsóknum var enginn munur í tíðni extrapýramídal einkenna hjá sjúklingum sem fengu ráðlagða meðferðarskammta af lyfinu eða lyfleysu. Þetta bendir til að lyfið valdi síður síðkominni hreyfitruflun en venjuleg sefandi lyf. Hafa skal i huga að minnka skammta lyfsins eða hætta notkun þess ef vísbending og einkenni um síðkomna hreyfitruflun koma fram. Illkynja sefunarheilkenni: lllkynja sefunarheilkenni hefur verið tengt við sefandi lyfjameðferð. Klfnísk einkenni eru t.d. ofurhiti, breytt andlegt ástand, vöðvastifni, óstöðugleiki f ósjálfráða taugakerfinu og hækkun á kreatínín fosfókínasa. í slíkum tilvikum skal hætta notkun á lyfinu og gefa viðeigandi lyfjameðferð Milliverkanir: Aðalverkun lyfsins er á miðtaugakerfið, og þvf skal gæta varúðar við samtímis notkun annarra lyfja sem verka á miðtaugakerfið og alkóhóls. Lyfjahvörf lithíums breytast ekki ef það er notað samtímis lyfinu. Samtímis notkun á sefandi lyfjunum risperidon eða halóperidól hefur ekki marktæk áhrif á lyfjahvórf quetiapins. Samtímis notkun á thíoridazín eykur klerans quetiapins. Lyfið örvar ekki lifrarensimin sem taka þátt í umbrotum fenazóns. Samtímis notkun á fenýtóíni (örvar microsomal ensfm) veldur aukningu f klerans quetiapins. Sjúklingar sem taka samtimis lyfinu og fenýtóín, eða önnur lyf sem örva lifrarensím s.s. karbamazepín, barbítúröt og rffampicín, geta þurft að auka skammtinn af lyfinu til að hafa stjóm á einkennum sjúkdómsins. Ef sjúklingur hættir að taka fenýtóín og tekur í staðinn lyf sem örva ekki lifrarensím, s.s. natríum valpróat, getur þurft að minnka skammtinn af lyfinu. Ensfmið CVP3A4 er helst ábyrgt fyrir sýtókróm P450 tengdum umbrotum quetiapins. Samtfmis notkun á cimetidíni, sem letur P450 ensímið, hefur ekki áhrif á lyfjahvörf quetiapins. Samtímis notkun á geðdeyfðarlyfjunum imipramín (letur CYP2D6) eða flúoxetín (letur CYP3A4 og CYP2D6) hefur ekki marktæk áhrif á lyfjahvðrf quetiapins. Samt sem áður er mælt með að gæta varúðar þegar lyfið er notað samtímis lyfjum sem letja CYP3A4 (t.d. ketókónazól eða erýthrómýcín). Meöganga og brjóstagjöf: Ekki hefur verið færð sönnun á öryggi og verkun lyfsins á meðgöngu. Pvf skal aðeins nota lyfið á meðgöngu ef kostir þess réttlæta hugsanlega áhættu af notkun þess. Ekki er vitað að hve miklu leyti lyfið útskilst í móðurmjólk. Því skal ráðleggja konum sem nota lyfið að forðast að hafa börn á brjósti. Akstur og stjórnun annarra véla: Sjúklingum skal ráðlagt að aka ekki bifreið eða stjórna öðrum tækjum fyrr en þeir vita hvaða áhrif lyfið hefur. Aukaverkanir: Algengasta aukaverkunin er svefnhöfgi, sem kemur helst fram í upphafi meðferðar, en hættir yfirleitt við áframhaldandi meðferð. Lyfið veldur ekki hækkun á prólaktini Ifkt og mörg önnur geðlyf. Algengar (>1%): Taugakerfi: Svefnhöfgi. Almennt: Próttleysi, svimi. Hjarta- og æðakerfi: Réttstöðuþrýstingsfall, of lágurblóðþrýstingur, hraðtaktur. Meltingarfæri: Hægðatregöa, munnþurrkur, meltingartruflun. Blóð: Fækkun hvítra blóðkoma, hlutleysiskymingafæð. Efnaskipti: SGPT (ALT) hækkun, SGOT (AST) hækkun, þyngdaraukning. Öndunarfæri: Nefslimubólga. Sjaldgæfar (0,1-1%): Almennt: lllkynja sefunarheilkenni. Hjarta- og æðar: Yfirlið. Efnaskipti: Kólesterólhækkun. blóðfítuhækkun, hækkun á gamma-GT. Blóð: Fjðlgun eósínfikla. Taugakerfi: Rykkjakrampi, grand mal rykkjakrampi. Meðferð með lyfinu hefur tengst örlítilli skammtaháðri lækkun á skjaldkirtilshormónum, sérstaklega í heildar T4 og frfu T4. Lækkunin náði hámarki á fyrstu 2-4 vikum meðferðarinnar, en við áframhaldandi notkun varð ekki frekari lækkun. Ofskömmtun og eiturverkanir: Takmörkuð reynsla er af ofskömmtun á lyfinu í klínískum rannsóknum. Útlit: Töflur 25 mg: Kringlóttar, 0 6 mm, ferskjulitaðar, kúptar og filmuhúðaðar. Töflur 100 mg: Kringlóttar, 0 8,5 mm, gularað lit, kúptar og filmuhúðaðar. Töflur 200 mg: Kringlóttar, 0 11 mm, hvítar að lit, kúptar og filmuhúðaðar. Pakkningar: Töflur 25 mg: 100 stk (þynnupakkað);10952-kr. Töflur 100 mg: 30 stk. (þynnupakkað);7.105-kr. 100 töflur (þynnupakkað);20.652-kr. Töflur 200 mg: 30 stk. (þynnupakkað);10.350-kr. 100 töflur (þynnupakkað);30.263-kr. Umboö á íslandi: Pharmaco hf AstraZeneca, Hörgatúni2, 210 Garðabæ, Sími:535 7152 Fax: 565 7366 Læknablaðið 2001/87 261
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.