Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 59

Læknablaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 59
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐAPISTILL 131 Jóhann Heiðar Jóhannsson Netfang: johannhj@landspitali.is Dægradvöl VI Vilmundur sagði meðal annars þetta: „Ymislegt kann manni þó að detta í hug um þá Færeyja- gikki íslenzkrar læknastéttar, sem að því er virðist fyrir einnar saman for- dildar sakir bera annars góð og gild fræðsluerindi á borð fyrir ólæknislært fólk á þeirri andhælislegu djöflaþýzku, sem þeir kalla íslenzkt lækna- mál og engum öðrum en læknum er ætlandi að grynna neitt í. Þeir læknar, ef nokkrir kynnu að vera, sem betur mega, en halda því þó til streitu að ræða og rita um fræði sín á því hrakmáli, mættu hugleiða mál- far sitt frá almennu þrifnaðarsjónarmiði.“ Complex í NÝLEGRI FYRIRSPURN BIRTIST ENSKA NAFNORÐIÐ complex. Eins og fram kom í 96. pistli (Læknablaðið 1997;84:63) er það komið úr latínu. Latneska nafnorðið complexio merkir sameining, samsetning, samstœða og lýsingarorðið complexus merkir flókinn, samofinn, samsettur. í Ensk-íslenskri orða- bók Arnar og Örlygs má finna skýringar á enska lýsingarorðinu: 1. samsettur, margbrotinn. 2. marg- slunginn, flókinn. og enska nafnorðinu: 1. samsett og margbrotin heild. 2. samstœða. 3. (í sálfrœði) geð- hnútur, duld, geðflœkja, kerfi bœldra tilfinninga. 4. (í efnafrœði) samsett efnasamband. 5. (óformlega) sterkar ósjálfráðar tilfinningar, einkum fordómar, óbeit eða andúð. Undirritaður gerði mjög ítarlega leit í íðorðasafni lækna og fann þar eftirtaldar þýðingar, ýmist stakar eða í samsetningum: duld, flóki, flœkja, hnútur, kerfi, mynd, samstœða, útslag. QRS-complex í texta þeim, sem fyrirspurnin vísaði til, kom fyrir samsetningin „broad and/or narrow complex tachycardias". íðorðasafnið nefnir tachycardia hraðtakt eða hraðslátt og QRS-compIex er nefnt QRS-mynd. Eftir að hafa ráðfært sig við hjartalækni fór undirritaður þá leið að vísa í bylgjur hjartarafritsins og nefna þetta hraðslátt með gleiðri eða mjórri bylgjumynd (QRS-complex). í stað bylgjumyndar hefði mátt tala um bylgjusamstæðu (QRS-samstæðu). Gaman væri að fá fregnir af því ef hjartalæknar hafa fundið aðra lausn. Paroxysmal Pannig hittist á að sama daginn kom annar hjarta- læknir, Árni Kristinsson, með hugmynd að þýðingu á lýsingarorðinu paroxysmal í tengslum við hjart- sláttartruflanir. Slíkar truflanir segist hann nefna tilfallandi, en þær viðvarandi sem sumir aðrir læknar nefna krónískar. Uppfletting í íðorðasafninu leiðir í ljós að paroxysm er kast eða hviða og paroxysmal fær þar þýðingarnar köstóttur eða hviðu-. Paroxysmal tachycardia er hraðsláttur sem kemur í köstum og nefnir íðorðasafnið slíkt hraðsláttarköst. Hugmynd Árna þarf að skoða betur. Gott er að ráða yfir mismunandi kostum til þýðinga við mismunandi kringumstæður. Þar sem við hittumst í biðröð í matsalnum voru ekki tök á miklum eða löngum útskýringum. Fljótt á litið finnst undir- rituðum að hraðsláttartruflanir geti verið tilfallandi, hvort sem þær koma í köstum eða ekki. íslensk orðabók Máls og menningar skýrir tilfallandi þannig: sem kemur eða verður án sýnilegrar (ytri) ástœðu. Taugaflækja Elísabet Guðmundsdóttir, deildarlæknir, var að skrifa fræðigrein og vantaði íslensk heiti á tvö líffærafræðileg fyrirbæri, annars vegar það sem á latínu nefnist plexus myentericus og hins vegar plexus submucosus. Latneska orðið plexus er ýmist talið lýsingarorð eða lýsingarháttur sagnorðs. Læknisfræðiorðabók Stedmans og hin nýja læknis- fræðiorðabók Dorlands nota enska orðið braid til að útskýra plexus. Um nafnorðið braid segir Ensk- íslensk orðabók Arnar og Örlygs: 1. fléttuband, fléttingur; hárflétta. 2. brydding, borði. 3. hárband. I Líffærafræðiheitunum, Nomina anatomica, er ætíð notað orðið flækja þegar vísað er í samsett net æða eða tauga. Undirritaður vildi þó miklu fremur nefna slíkt fléttu, bæði vegna ofangreindrar orð- skýringar og eins vegna þess persónulega skilnings að flækja vísi til þess sem er í óreiðu og skipulagsleysi en flétta til þess sem er samofið og skipulagt. Til fyllingar má benda á að plexus myentericus, sá hluti af taugaflækju meltingarvegar sem liggur milli vöðvalaganna, er einnig nefndur Auerbachs plexus. Líffærafræðiheitin nefna hann vöðvahjúpsflœkju. Annar hlutinn, plexus submucosus, liggur í slímhúðarbeðnum og nefnist slímubeðsflœkja, en þriðji hlutinn liggur undir hálu, tunica serosa, og nefnist liálubeðsflœkja. Síðasta dægradvöl Dægradvölin í 130. pistli var tekin úr grein í Læknablaðinu árið 1958 (9.-10. tbl., bls. 132-41), sem bar heitið „Oehlenschláger í Arnarhváli“. Þar var á ferðinni Arinbjörn Kolbeinsson, læknir, til að setja ofaní við Vilmund Jónsson, þáverandi landlækni, fyrir grein hans „Thorvaldsen og Oehlenschlager“ sem birtist í Læknablaðinu árið 1955 (8.-9. tbl., bls. 124-39). Vilmundur hafði gagnrýnt stflsmátann í ritsmíðum íslenskra lækna (sjá kassa) og Arinbjörn brást hart við: „Nauðsynlegt er að brýna fyrir Iesendum Læknablaðsins, nú og þó einkum síðar, sem ekki þekkja V.J. nægilega, að með sínum sérstöku verknaðartökum á íslensku ritmáli, getur hann auðveldlega villt mönnum sýn, þannig að þeim yfirsjáist verulegir gallar á meðferð efnis og geri sér ekki nægilega ljósan tilgang ritgerðarinnar. Með glæstum stflsmáta er unnt að leiða athygli og dómgreind lesandans á villigötur líkt og skrautlegar umbúðir geta blekkt grandalausan kaupanda." Læknablaðið 2001/87 251
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.