Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 31

Læknablaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 31
FRÆÐIGREINAR / LJÓSAÐLÖGUN KEILNA plötu með yfirborðshita um 37 gráður. Unnið var úr gögnum með tölfræðiforritinu Instat (útgáfa 2.01). Beitt var pöruðu t-prófi við tölfræðilega greiningu og miðað við marktektarmörk a = 0,05 (öryggismörk 95%). Spennuútslag rafsvara er gefið upp sem meðaltal ± staðalvilla (SEM). Nidurstöður Áður en áhrif ljósaðlögunar voru mæld voru sjónhimnurit í rökkri (scotopic ERG) skráð. Mynd 1 sýnir að eftir aðlögun að rökkri eru sjónhimnurit kanínu og marsvíns ólík að lögun, en sýna bæði a- og b-bylgjur eins og sýnt er á myndinni. Sjónhimnurit kanínu er svipað og hjá mönnum, músum og öpum, með stóra a-bylgju, en enn stærri b-bylgju (b/a hlutfall = 2,3 að meðaltali). Aftur á móti er sjónhimnurit marsvína mjög lágt að spennu og næstum neikvætt, hefur stóra a-bylgju en aðeins eilítið stærri b-bylgju (b/a hlutfall =1,3 að meðaltali). Þegar áhrif ljósaðlögunar voru skoðuð kom í ljós að sjónhimnurit keilna hjá marsvínum eykst að spennu við aðlögun að ljósi, en er háð tíðni ertingar (mynd 2). Ef tíðni ertingar er hærri en 20 Hz lækkar spenna sjónhimnurits hjá marsvínum verulega og er nánast ómælanlegt við 30 Hz. B-bylgja sem svar við stuttum ljósblikkum var að meðaltali 25 ± 6 pV rétt eftir að kveikt hafði verið á bakgrunnsljósi, en eftir um 10 mínútna aðlögun að ljósinu jókst spennan að meðaltali í 40 ± 8 pV. Þessi munur í spennu er töl- fræðilega marktækur (p = ,0178). Svar við 20 Hz ljósblikkum var að meðaltali 29 ± 7 pV rétt eftir að kveikt hafði verið á bakgrunnsljósi, en jókst að spennu í 45 ± 11 pV að meðaltali eftir um 10 mínútna aðlögun að ljósi, og er þessi munur marktækur (p = ,0236). Aukning í spennu b-bylgju var svipuð og í spennu svars við 20 Hz ljósblikkum við aðlögun að ljósi. Það er hins vegar eftirtektarvert af mynd 2 að aukningin í svari við 20 Hz ljósblikkum fylgir veldisfalli, en ekki b-bylgja. Á mynd 3 eru sýndar tvær skráningar sjónhimnuritssvara frá marsvíni við stuttum ljósblikkum 30 sekúndum eftir að kveikt var á bakgrunnsljósi og eftir 10 mínútna stöðuga aðlögun að sama ljósi. Sjónhimnurit keilna er stærri að spennu í kanínum en marsvínum. Sjónhimnurit keilna hjá kanínum eykst að spennu við aðlögun að ljósi, en er háð tíðni ertingar. Sjónhimnurit keilna hjá kanínum er mælan- legt með tíðni ertingar allt að 50 Hz. Mynd 4 sýnir breytingar í spennu sjónhimnurits sem fall af tíma frá því kveikt var á bakgrunnsljósi fyrir kanínur. B- bylgja sem svar við stuttum ljósblikkum var að meðaltali 103 ± 16 pV en jókst við ljósaðlögun í 124 ± 22 pV að meðaltali. Þessi munur í spennu er tölfræðilega marktækur (p = ,0221). Svar við 30 Hz ljósblikkum var að meðaltali 70 ± 13 pV en jókst við aðlögun að ljósi í 102 ± 19 pV að meðaltali, sem er marktækur munur (p = ,0273). Það Scotopic electroretinograms Figure 1. Electroretinogram (ERG) recordings under scotopic conditions from a rabbit (upper record) and guinea pig (lower record) in response to a 1.8 log cd x sec/m2 stimulus, whose presentation is indicated by arrows. Note the different calibrations for voltage ofthe two recordings. The a- and b-waves of the rabbit ERG are marked "a" and "b", respectively. 50 45 > 40 =L 35 30 3 • rm 25 ’a E 20 < 15 10 2 4 6 8 10 12 14 16 Time in light (minutes) Figure 2. Changes in the amplitude ofthe guinea pig ERG in response to individual brief light pulses (filled cirles) and a train of20 Hz flashes ("flicker", open diamonds), as a function of time from turning on an 1.7 log cd/m2 white steady background light. Læknablaðið 2001/87 223
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.