Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 9

Læknablaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 9
FRÆÐIGREINAR / RITSTJÓRNARGREIN Matthías Halldórsson Höfundur er aðstoðarlandlæknir. • • Ororka og öryrkjar Ekki er allt sem sýnist í heilbrigðistölfræði fremur en í annarri tölfræði. Ymsum brá í brún við að skoða greinargott línurit yfir fjölda öryrkja á 15 ára tímabilinu 1985 til 1999, sem birt var í síðasta hefti af ritinu Staðtölur almannartrygginga 1999. Þar gaf að líta að öryrkjum með 75% örorku eða meira hafði fjölgað úr 3456 í 8673 á tímabilinu. Sé fjölda einstaklinga með endurhæfingarlífeyri, sem var tekinn upp árið 1990 og jafngildir fullri örorku hvað upphæð snertir, bætt við, en þeir voru 279 árið 1999, verður fjölgunin enn meiri eða alls 8952 árið 1999. Fréttamenn og aðrir spuðu á hvaða leið heilsufar þjóðarinnar væri með bættum aðbúnaði og aukinni tækni og framförum á öllum sviðum Eins og fram kemur í rannsókn Sigurður Thorlacius tryggingayfirlæknis og félaga í þessu hefti Læknablaðsins, en hún nær yfir annað og lengra tímabil, eða 1976-1996, segja hráar tölur um fjölda örorkulífeyrisþega ekki alla söguna. Að minnsta kosti þrjú atriði þarf að taka með í reikninginn: í fyrsta lagi fjölgun þjóðarinnar, í öðru lagi breytta aldurssamsetningu og í þriðja lagi innbyrðis skiptingu á fjölda öryrkja með hærra og lægra örorkustig. Augljóst er að eftir því sem landsmönnum fjölgar má búast við fleiri örokubótaþegum að öðru jöfnu. Áhrif breyttrar aldurssamsetningar eru ekki eins augljós. Almennar örorkubætur voru greiddar á aldursbilinu 16-66 ára, en eðli málsins samkvæmt eru örorkulíf- eyrisþegar fleiri í eldri aldurshópum. Þannig var fjöldi örorkulífeyrisþega í yngsta aldurshópi öryrkja um 1% af yngsta aldurshópnum, það er 16-19 ára, árið 1999, en um 15% af körlum og 25% af konum í elsta aldurshópnum sama ár. Sú spurning vaknar hvað tölur sem þessar segja okkur eftir að þær hafa farið gegnum hreinsunareld hinnar tölfræðilegu aðferðar. Svarið er að þær benda til þess að ekki hafi í raun orðið mikil breyting á þessu tímabili á hlutfallslegum heildarfjölda öryrkja, en heldur hefur fjölgað í hópi þeirra sem fá fulla örorku, en fækkað í hópi þeirra, sem fá einungis örokrustyrk (eru metnir 50-65% öryrkjar). Það styrkir niðurstöður rannsóknarinnar að engin grundvallarbreyting varð á matsaðferðum á ofan- greindu tímabili; þær breytingar sem urðu síðar, eða 1998, á matsaðferðum verða til þess að torvelda samanburð í framtíðinni. Mismunandi matsaðferðir gera okkur einnig örðugt um vik við samanburð við aðrar þjóðir. Erum við að þessu sögðu í stakk búin til þess að lesa breytingar á heilsufari þjóðarinnar úr umræddri rannsókn á 20 ára tímabili? Svarið við því er neitandi. Hér er of stórt spurt. Breytingar á örlæti (sumir myndu segja nísku) kerfisins kunna að hafa orðið, svo og á ytri aðstæðum, til dæmis möguleikum á vinnumarkaði og fleira af þeim toga, sem vitað er að hefur áhrif á eftirspurn. Þá kunna viðhorf til örorku að hefa breyst á tímabilinu. Aðrir þættir kunna einnig að hafa áhrif, ekki síst milli hlutfallslegs fjölda örorkulífeyrisþega annars vegar og örorkustyrksþega hins vegar, svo sem fríðindi sem voru tengd hærra örorkustiginu árið 1980. Höfundar ofangreindrar greinar þakka í lokin framsýni þeirra sem stóðu fyrir tölvuvæðingu örorkuskrárinnar fyrir rúmum aldarfjóðungi, sem gerði rannsókn þeirra mögulega og skal tekið undir þau orð. Tölvudeild Tryggingastofnunar virðist öflug. En henni er ekki ætlað að safna nema takmörkuðum upplýsingum á sviði heilbrigðismála. Rannsókn, eins og að ofan er greint frá, getur ekki svarað - og er ekki ætlað að svara - hinni víðtækari spurningu um breytingar á heilsufari þjóðarinnar. Til þess þarf endurtekna upplýsingasöfnun af öðrum toga, sem leiðir hugann að almennri stöðu upplýsinga um heilbrigðismál og heilbrigðistölfræði hér á landi. Landlæknisembættinu ber að fylgjast með heilsufari landsmanna. Vegna skorts á mannafla til að vinna að þessum málum er nú svo komið að við erum orðnir eftirbátar annarra þjóða og dálkar Islands eru auðir á vettvangi þar sem þjóðir bera saman bækur sínar. Hér virðast allir bíða eftir Godot (eða deCODE). Dómur Hæstaréttar Gagnrýnt hefur verið að þeir öryrkjar sem meira bera úr býtum hagnist mest á niðurstöðu Hæstaréttar í öryrkjamálinu svokallaða. Svo kann að vera um sinn, en vonir standa til að sú umræða sem fram hefur farið um kjör öryrkja hér á landi í kjölfar dómsins opni augu almennings fyrir bágri stöðu þessara mála hér á landi. Þá má nefna að kröfurnar snerust ekki eingöngu um bótaupphæðir heldur um mannréttindi og ákvæði um einstaklingsbundin félagsréttindi samkvæmt stjórnarskrá, sem meirihluti Hæstaréttar taldi ekki fullnægt. í ágætri bók Stefáns Ólafssonar prófessors um almannatryggingar á Islandi í fjölþjóðlegum saman- burði, sem kom út á vegum Tryggingastofnunar ríkisins árið 1999, kemur fram að íslenska kerfið er mun snautlegra en almannatryggingakerfi nágranna- landanna hvað varðar bótaupphæðir. Þeir sem ein- ungis lifa af framfærslulífeyri almannatrygginga hafa mun lakari stöðu en sambærilegir hópar í nágranna- löndunum. Meðalörorkulífeyrir er svo lágur hér á Læknablaðið 2001/87 201
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.