Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 53

Læknablaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 53
u RÆÐA & FRÉTTIR / H A OFTAUTKALL Háloftaútkall Undirritaður var staddur í Flugleiðavél í október síðastliðnum á leið frá Orlando til íslands. Flugfreyjan benti mér brosandi á, að vel ætti nú við, að ég sæti beint undir sjúkratöskunni þar sem mér var ætlaður sess á aftasta bekk (sætisröð 35 ef ég man rétt) stjórnborðsmegin. Rétt er að benda mönnum á að forðast þessa sætisröð eins og heitan eldinn, því sætin eru enn þrengri en önnur og til dæmis er ekki hægt að halla sætisbaki. Til að gera aðstöðuna enn skemmtilegri þá er maður síðastur í afgreiðsluröð matar, þannig að maturinn sem okkur var ætlaður var uppurinn þegar að okkur kom, en okkur boðið upp á fisk sem hafði greinilega verið nokkurra daga gamall þegar hann var eldaður, svo jafnvel mat- maðurinn ég, sem til þessa hef borðað allan flugmat og yfirleitt þótt hann góður, sendi fiskinn ónotaðan til baka. En þetta var útúrdúr! Yfir miðju Atlantshafi fór stór og mikill farþegi að gerast skringilegur og fjarrænn með meiru og reyndist æði hýpótensífur þegar ykkar einlægur mældi hann. Þá tíma sem eftir lifðu ferðar upp undir Islandsstrendur eyddi ég því bograndi yfir manninum eða standandi í flugeld- húsinu þar sem við lögðum hann. Hvort það var mun óþægilegra en að sitja í hálfgerðri fósturstellingu í öftustu röð skal ósagt látið, en mér finnst reyndar að annað hvort eigi þessi sæti að víkja, eða seljast einvörðungu bráðungu og hressu fólki og þá á hálf- virði. Hvað um það, þegar nær dró Iandi þurfti að ákveða framhaldið og þar sem sjúklingurinn hafði hjarnað vel við ákvað ég að leyfa honum að halda áfram för til heimabæjar (London) og að afþakka sjúkrabíl og spítalaferð í Keflavík. Fyrir þá sem áhuga hafa: læknataska er í flugvélum og furðu vel búin, enda skilst mér að slíkt sé í umsjá Árna Kristinssonar. Mér tókst að vísu ekki að finna inn- rennslisvökva, en vel má vera að þeir leynist í vél- unum. Þar sem aukin umræða um ábyrgð lækna hefur varla farið fram hjá mönnum hef ég velt ýmsu fyrir mér eftir ferðina. Auðvitað var mér ljúft og skylt að bregðast við útkalli, en ef ég hefði gert eitthvað óviðurkvæmilegt í háloftunum, eða hefði maðurinn til dæmis látist af lungnaembólíu eftir að ég leyfði honum að halda áfram för, hvers er þá ábyrgðin? í annan stað: Bíllinn minn beið í Keflavík svo ekki var etanóldropi í blóðinu, en ekki er ótítt að ég, og jafnvel aðrir læknar, séu ekki bláedrú í flugferðum. Hverju breytir það ef einhverju í ábyrgð og skyldum? I þriðja lagi fjarskylt efni: Unglæknar og lækna- nemar aðallega taka gjarnan að sér einhvers konar læknisþjónustu á þjóðhátíð og öðrum útihátíðum, hvar hvflir þá ábyrgð og bótaskylda? Svona í lokin: Einhver veltir því örugglega fyrir sér hvernig sé með umbun fyrir háloftaútkall og ef til vill einhverra klukkustunda vinnu við erfið skilyrði. Eg hef heyrt að Atlanta hafa brugðist við slíku með nýrri ferð, en þetta er óstaðfest. Þessar ágætu flugfreyjur, sem ég var samferðu, tóku skilmerkilega niður nafn mitt og aðrar upplýsingar og meðal annars hvenær ég flygi næst með Flugleiðum. Töldu þær öruggt að ég yrði uppfærður í Saga klass, þar sem rými er nægt og maturinn ætur. Ekkert slíkt gerðist í þau tvö skipti sem ég hef flogið síðan. Reyndar átti ég hvorki von á flugpunktum né uppfærslu frá þessu félagi, því miður, en átti hálft í hvoru von á stöðluðu þakkarbréfi eða jólakorti, en, nei ekkert slíkt. Félagi minn á slysadeild hefur sömu reynslu af þessu félagi, háloftaútkall, nafn og númer skráð vandlega en síðan ekki einu sinni, svei þér! Gaman væri að vita hvað tíðkast hjá flugfélögum í hinum siðmenntaða heimi í svona tilfellum. Maður veltir því fyrir sér, reyndar með örlítilli ofsóknarkennd, til hvers félagið þurfi nafn og númer læknisins, nema því aðeins að geta gripið til hans ef eitthvað fer úrskeiðis með sjúklinginn. Hrafnkell Óskarsson Lýðheilsa og leítarstarf Leitarstöð Krabbameinsfélagsins hefur gefið út í sérriti greinar Kristjáns Sigurðssonar yfirlæknis, sviðsstjóra leitarsviðs Krabbameinsfélagsins, er hann birti í Morgunblaðinu í desember síðast- liðnum. Bæklingurinn er gefinn út í tilefni 50 ára afmælis Krabbameinsfélagsins en meginmarkmið hans er að „gefa almenningi og heilbrigðisstéttum innsýn í miklvægi forvama almennt séð og hlut krabbameinsleitar í því starfi“, eins og höfundur segir í kynningarbréfi. Læknablaðið 2001/87 245
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.