Læknablaðið - 15.03.2001, Blaðsíða 53
u
RÆÐA & FRÉTTIR /
H A
OFTAUTKALL
Háloftaútkall
Undirritaður var staddur í Flugleiðavél í
október síðastliðnum á leið frá Orlando til íslands.
Flugfreyjan benti mér brosandi á, að vel ætti nú við,
að ég sæti beint undir sjúkratöskunni þar sem mér
var ætlaður sess á aftasta bekk (sætisröð 35 ef ég man
rétt) stjórnborðsmegin. Rétt er að benda mönnum á
að forðast þessa sætisröð eins og heitan eldinn, því
sætin eru enn þrengri en önnur og til dæmis er ekki
hægt að halla sætisbaki. Til að gera aðstöðuna enn
skemmtilegri þá er maður síðastur í afgreiðsluröð
matar, þannig að maturinn sem okkur var ætlaður
var uppurinn þegar að okkur kom, en okkur boðið
upp á fisk sem hafði greinilega verið nokkurra daga
gamall þegar hann var eldaður, svo jafnvel mat-
maðurinn ég, sem til þessa hef borðað allan flugmat
og yfirleitt þótt hann góður, sendi fiskinn ónotaðan
til baka.
En þetta var útúrdúr! Yfir miðju Atlantshafi fór
stór og mikill farþegi að gerast skringilegur og
fjarrænn með meiru og reyndist æði hýpótensífur
þegar ykkar einlægur mældi hann. Þá tíma sem eftir
lifðu ferðar upp undir Islandsstrendur eyddi ég því
bograndi yfir manninum eða standandi í flugeld-
húsinu þar sem við lögðum hann. Hvort það var mun
óþægilegra en að sitja í hálfgerðri fósturstellingu í
öftustu röð skal ósagt látið, en mér finnst reyndar að
annað hvort eigi þessi sæti að víkja, eða seljast
einvörðungu bráðungu og hressu fólki og þá á hálf-
virði.
Hvað um það, þegar nær dró Iandi þurfti að
ákveða framhaldið og þar sem sjúklingurinn hafði
hjarnað vel við ákvað ég að leyfa honum að halda
áfram för til heimabæjar (London) og að afþakka
sjúkrabíl og spítalaferð í Keflavík. Fyrir þá sem
áhuga hafa: læknataska er í flugvélum og furðu vel
búin, enda skilst mér að slíkt sé í umsjá Árna
Kristinssonar. Mér tókst að vísu ekki að finna inn-
rennslisvökva, en vel má vera að þeir leynist í vél-
unum.
Þar sem aukin umræða um ábyrgð lækna hefur
varla farið fram hjá mönnum hef ég velt ýmsu fyrir
mér eftir ferðina. Auðvitað var mér ljúft og skylt að
bregðast við útkalli, en ef ég hefði gert eitthvað
óviðurkvæmilegt í háloftunum, eða hefði maðurinn
til dæmis látist af lungnaembólíu eftir að ég leyfði
honum að halda áfram för, hvers er þá ábyrgðin? í
annan stað: Bíllinn minn beið í Keflavík svo ekki var
etanóldropi í blóðinu, en ekki er ótítt að ég, og
jafnvel aðrir læknar, séu ekki bláedrú í flugferðum.
Hverju breytir það ef einhverju í ábyrgð og skyldum?
I þriðja lagi fjarskylt efni: Unglæknar og lækna-
nemar aðallega taka gjarnan að sér einhvers konar
læknisþjónustu á þjóðhátíð og öðrum útihátíðum,
hvar hvflir þá ábyrgð og bótaskylda?
Svona í lokin: Einhver veltir því örugglega fyrir
sér hvernig sé með umbun fyrir háloftaútkall og ef til
vill einhverra klukkustunda vinnu við erfið skilyrði.
Eg hef heyrt að Atlanta hafa brugðist við slíku með
nýrri ferð, en þetta er óstaðfest. Þessar ágætu
flugfreyjur, sem ég var samferðu, tóku skilmerkilega
niður nafn mitt og aðrar upplýsingar og meðal annars
hvenær ég flygi næst með Flugleiðum. Töldu þær
öruggt að ég yrði uppfærður í Saga klass, þar sem
rými er nægt og maturinn ætur. Ekkert slíkt gerðist í
þau tvö skipti sem ég hef flogið síðan. Reyndar átti ég
hvorki von á flugpunktum né uppfærslu frá þessu
félagi, því miður, en átti hálft í hvoru von á stöðluðu
þakkarbréfi eða jólakorti, en, nei ekkert slíkt.
Félagi minn á slysadeild hefur sömu reynslu af
þessu félagi, háloftaútkall, nafn og númer skráð
vandlega en síðan ekki einu sinni, svei þér! Gaman
væri að vita hvað tíðkast hjá flugfélögum í hinum
siðmenntaða heimi í svona tilfellum. Maður veltir því
fyrir sér, reyndar með örlítilli ofsóknarkennd, til
hvers félagið þurfi nafn og númer læknisins, nema því
aðeins að geta gripið til hans ef eitthvað fer úrskeiðis
með sjúklinginn.
Hrafnkell Óskarsson
Lýðheilsa
og leítarstarf
Leitarstöð Krabbameinsfélagsins hefur gefið út í
sérriti greinar Kristjáns Sigurðssonar yfirlæknis,
sviðsstjóra leitarsviðs Krabbameinsfélagsins, er
hann birti í Morgunblaðinu í desember síðast-
liðnum. Bæklingurinn er gefinn út í tilefni 50 ára
afmælis Krabbameinsfélagsins en meginmarkmið
hans er að „gefa almenningi og heilbrigðisstéttum
innsýn í miklvægi forvama almennt séð og hlut
krabbameinsleitar í því starfi“, eins og höfundur
segir í kynningarbréfi.
Læknablaðið 2001/87 245