Skessuhorn - 27.05.2014, Qupperneq 69
69ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014
Óskum sjómönnum
og fjölskyldum þeirra
til hamingju með
sjómannadaginn
Jón Frímann Eiríksson er uppalinn
Skagamaður en búsettur í Grund-
arfirði þar sem hann hefur lífsvið-
urværi sitt af sjómennsku. Hann er
stýrimaður og afleysingaskipstjóri
á togskipinu Hring SH 153 sem
gerður er út af G.Run hf. Jón Frí-
mann byrjaði ungur til sjós. Hann
var aðeins 18 ára þegar hann fór
sinn fyrsta túr á ísfisktogaranum
Sturlaugi H. Böðvarssyni AK 10.
Eríkur Jónsson faðir Jóns var skip-
stjóri á Sturlaugi á þessum tíma og
er það reyndar ennþá. „Reyndar
var pabbi ekki í þessum fyrsta túr.
Ég hafði samt oft farið með hon-
um sem gutti.“
Verkfall kennara réði
úrslitum
Kennaraverkfall 1995 breytti áætl-
unum Jóns en þá stundaði hann
nám við Fjölbrautaskóla Vestur-
lands á Akranesi. „Þegar það hófst
ákvað ég að hætta í skólanum og
reyna við sjómennskuna. Ég var
mikið sem lausamaður á Sturlaugi
út árið 1995. Svo fékk ég fast pláss
í ársbyrjun 1996.“ Haustið 1997
fór Jón svo í Stýrimannaskólann.
Hann tók alltaf lausaróðra í öll-
um fríum til að fjármagna námið.
„Ég útskrifaðist úr Stýrimanna-
skólanum vorið 1999. Þá fékk ég
fast pláss á Sveini Jónssyni KE 9
sem bátsmaður. Þeim togara var
svo lagt um haustið.“ Sama haust,
eftir að Sveini Jónssyni KE var
lagt, fékk Jón Frímann pláss sem
háseti á Haraldi Böðvarssyni AK
12. Hugurinn stefndi þó hærra hjá
þessum upprennandi sjómanni.
„Á milli jóla og nýárs árið 1999
bauðst mér fast pláss sem annar
og fyrsti stýrimaður á Heiðrúnu
GK sem varð síðar Ingimundur
SH 335. Þar var Óli Fjalar Óla-
son skipstjóri. Ég lærði ég mikið
af honum.“
Eldskírn á
Ingimundi SH
„Ég hef aldrei lært jafn mikið um
sjómennsku og á Ingimundi. Ég
tapaði trollinu fyrstu nóttina sem
fyrsti stýrimaður. Það skeði svo
reyndar aftur einu ári síðar upp á
dag en það er önnur saga. Við lent-
um í öllu sem hægt er að lenda í
varðandi sjómennsku,“ segir Jón
Frímann. Hann minnist þessa tíma
sposkur á svip.
Í september 2001 var Ingimundi
lagt. „Þá fer ég sem annar stýrimað-
ur á Hring SH 535 hjá sömu útgerð
en G.Run gerði út báða bátana.“ Í
janúar 2002 tók G.Run þá ákvörð-
un að senda Ingimund SH til rækju-
veiða við Grænland. „Við fórum til
Grænlands í apríl 2002. Það varð
mikið ævintýri. Þar var ég stýri-
maður og leysti af sem skipstjóri
frá apríl til desember 2002. Ég held
að Ingimundur SH 335 sé það skip
sem mér þykir hvað vænst um af
þeim sem ég hef róið á. Þar lærði
ég afskaplega mikið um skipstjórn
og þess háttar,“ segir Jón Frímann.
Frystitogaramennskan
hentaði ekki
Eftir að Jón Frímann kom frá
Grænlandi fór hann aftur á Hring
SH 535 sem annar og fyrsti stýri-
maður. Í ágúst 2003 fór hann á sjó
með Höskuldi Bragasyni útskriftar-
félaga sínum úr Stýrimannaskólan-
um. „Við réðum okkur á Björn RE
79 sem síðar varð Þorvarður Lár-
usson SH 129 og var hér í Grund-
arfirði. Á Birni vorum við á rækju-
veiðum og fiskitrolli í eitt ár. Það
var bölvað bras á okkur allan tím-
ann sem endaði svo að skipinu var
lagt í ágúst 2004. Eftir það var ég í
afleysingum hér og þar,“ segir Jón.
„Ég fór nokkra túra á frystitogur-
um. Svo var ég á rækjuveiðum frá
Húsavík og þá oftast sem annar
stýrimaður.“
Í júní 2005 fékk Jón Frímann
pláss á frystitogaranum Höfrungi
III AK 250 sem bátsmaður, háseti
og annar stýrimaður. „Það var rosa-
lega gott að vera um borð í Höfr-
ungi. Áhöfnin þar var frábær. All-
ir vissu upp á hár hvað þeir voru að
gera. Skipinu var afar vel stjórnað
af þeim Kristjáni Péturssyni og
Sturlaugi Gíslasyni,“ segir Jón og
minnist þessa tíma með hlýju. Út-
haldið var þó mikið á Höfrungi III.
Jón Frímann leitaði því á önnur
mið tæpu ári síðar.
Sinnir hátíðarhöldum
sjómanna
Það var svo í byrjun maí 2006 að Jón
Frímann hefur samband við Ingi-
mar Hinrik Reynisson skipstjóra á
Hring SH 153 í leit að vinnu. Þar
fékk hann sitt núverandi pláss sem
fyrsti stýrimaður og afleysingaskip-
stjóri. „Það var gott að komast und-
ir hjá Rikka. Hann hefur kennt mér
afar mikið enda er hann mikill fiski-
maður.“ Jón Frímann hefur verið í
þessu plássi allar götur síðan. Hann
er kvæntur Láru Magnúsdóttur.
Þau eiga tvö börn og una hag sínum
vel. Fjölskyldan býr í Grundarfirði.
„Ég ætlaði alltaf að verða sjómaður
eins og pabbi,“ segir Jón Frímann
og vísar þar til Eiríks Jónssonar föð-
ur síns sem er skipstjóri á Sturlaugi
H. Böðvarssyni eins og áður kom
fram. „Það voru ófá skiptin sem ég
fékk að fara með honum á sjóinn
sem gutti. Það heillaði mjög.“
Fljótlega eftir að Jón Frímann
flutti til Grundarfjarðar fór hann
að hafa afskipti af sjómannadagshá-
tíðarhöldum. „Björgunarsveitin
Klakkur hélt utan um hátíðardag-
skrána en þeir voru að draga sig út
úr því 2007. Þá gekk ég í þetta ásamt
nokkrum góðum mönnum. Við
tókum að okkur stjórn sjómanna-
dagsins. Ég hef verið með puttana
í þessu flest öll ár síðan,“ segir Jón.
„Við höfum reynt að hafa þetta fjöl-
skyldudag og stílum skemmtiat-
riði og kappleiki fyrir börn og full-
orðna.“ Hann lofar góðri skemmt-
un í ár. tfk
Ætlaði alltaf að verða sjómaður
Jón Frímann Eiríksson stýrimaður og afleysingaskipstjóri á Hring SH í Grundarfirði í skipstjórnarstólnum.