Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2002, Blaðsíða 33

Læknablaðið - 15.06.2002, Blaðsíða 33
FRÆÐIGREINAR / SAMBAND SKÓLAGÖNGU OG LÍFSLÍKNA Samband skólagöngu, líkamshreyfíngar og lífslíkna Einar Þór Þórarinsson1 Þórður Harðarson1,2 Helgi Sigvaldason3 Nikulás Sigfússon3 ‘Læknadeild Háskóla íslands, 2Lyflækningadeild Landspít- alans, ’Rannsóknarstöð Hjartaverndar. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Einar Þór Pórarinsson, Bárugata 34,101 Reykjavík, ein@islandia.is Lvkilorð: Dánartíðni, ástundun líkamsœfinga, skólaganga, hjarta- og œðasjúkdómar. Ágrip Inngangur: Vel þekkt er sambandið á ntilli lengdar skólagöngu og lífslíkna. Við höfum sýnt fram á þetta samband í Hóprannsókn Hjartaverndar. Það skýrðist aðeins að hluta til af mismunandi vægi þekktra áhættuþátta eftir skólagöngu. Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort ástundun líkams- hreyfingar væri mismikil eftir lengd skólagöngu og hvort slíkur mismunur gæti skýrt frekar samband skólagöngu og dánartíðni. Efniviður og aðferðir: Rannsókn þessi var hluti af Hóprannsókn Hjartavemdar. Til grundvallar þessara niðurstaðna eru gögn 18.912 þátttakenda, skipt í fjóra hópa eftir lengd skólagöngu. Allir þátttakendur svör- uðu spurningalista um eigið heilsufar og fleira, meðal annars ástundun líkamsæfinga. Reiknað var sam- band skólagöngu og ástundunar líkamsæfinga með aðhvarfsgreiningu (logistic regression). Reiknuð var út dánaráhætta með áhættulíkani Cox. Leiðrétt var fyrir aldri, skoðunarári, þekktum áhættuþáttum (blóðfitu, blóðþrýstingi, hæð, þyngd, reykingum, notkun háþrýstingslyfja og sykurþoli) og ástundun líkamsæfinga. Niðurstöður: Sýnt var fram á marktækt jákvætt samband á milli reglulegrar ástundunar líkamsæfinga og menntunar (p<0,001). Þegar leiðréttingu fyrir ástundun líkamsæfinga var bætt við leiðréttingu fyrir þekktum áhættuþáttum, aldri og skoðunarári minnk- aði samband skólagöngu og heildardánartíðni hjá báðum kynjum (fyrir karla úr 23% mismuni á stystu og lengstu skólagöngu í 20%. Fyrir konur voru sam- svarandi tölur 9% og 7%). Sama tilhneiging var til staðar varðandi kransæðadauða hjá körlum og að minna leyti hvað varðaði dauða af völdum krabba- meins. Alyktanir: Mismunandi ástundun líkamsæfinga eftir lengd skólagöngu á hlut í að skýra samband dánartíðni og skólagöngu hvað varðar heildardánar- tíðni og kransæðadauða. Enn stendur þó eftir mark- tækur mismunur á dánartíðni eftir lengd skólagöngu sem er óútskýrður. Inngangur Mismunur á heilsufari eftir þjóðfélagsstöðu er löngu þekkt staðreynd og hefur verið rannsóknarefni margra vísindamanna. Nú síðustu ár hefur þessi mis- munur verið á þann veg að þeir sem skipa lægri þjóð- félagshópa búa við verri heilsu og lakari lífslíkur (1-4). ENGLISH SUMMARY Þórarinsson EÞ, Harðarson Þ, Sigvaldason H, Sigfússon N The relationship between educational level, physical activity and mortality Læknablaðið 2002; 88: 497-502 Objectives: The relationship between educational level and mortality is well known. This has been shown in the Reykjavik Study and was only partly accounted for by unequal distribution of known risk factors. The objective of the present study was to explore the relationship between educational level and physical activity and whether that relationship could partly explain differences in mortality. Material and methods: This is a part of the Reykjavik Study. Presented is data from 18,912 participants, divided into four groups by educational level. Physical activity was assessed by questionnaire. The relationship between physical activity and educational level was assessed by logistic regression and between mortality and educational level by Cox regression analysis. Adjustments were made for age, year of examination, known risk factors (serum lipids, blood pressure, height, weight, smoking, use of anti- hyertensive drugs and 90 min glucose tolerance) and physical activity. Results: There was a positive relationship between physical activity and educational level (p<0.001). By adding adjustments for physical activity to a multiple regression analysis containing other known risk factors the relationship between total mortality and educational level was reduced. For highest versus lowest educational group hazard ratio was elevated from 0.77 to 0.80 for men and from 0.91 to 0.93 for women. Same trend existed for cardiovascular mortality and to a less extent for cancer mortality. Conclusion: The association between educational level and mortality can be partly explained by differences in leisure-time physical activity. In spite of adjustments for known risk factors and physical activity there remains a statistically significant relationship between educational level and mortality. Keywords: Mortality, physical activity, education, cardiovascular disease. Correspondance: Einar Þór Þórarinsson, ein@islandia.is Sá mælikvarði sem einna mest hefur verið notaður til að mæla þjóðfélagsstöðu fólks í rannsóknum síð- ustu ára er lengd skólagöngu þess. Þessi mælikvarði á þjóðfélagsstöðu hefur endurtekið reynst hafa for- spárgildi fyrir heilsu fólks og lífslíkur í þá veru að já- Læknablaðið 2002/88 497
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.