Læknablaðið - 15.02.2004, Blaðsíða 3
FRÆÐIGREINAR
Læknablaðið
THEÍCELANDIC MEDICAL10URNAL
103 Ritstjórnargreinar:
Læknablaðið á netinu
Vilhjálmur Rafnsson, Védís Skarphéðinsdóttir
105 Heilbrigðisþjónusta á tímamótum
Dögg Pálsdóttir
111 Könnun á þekkingu almennings á algengum orðum
úr læknisfræði
Birgir Briem, Porlákur Karlsson, Geir Tryggvason,
Ólafur Baldursson
Ekkert vegur þyngra en samskipti læknis og sjúklings og rannsóknir sýna
að öll fræðsla bætir líðan hins síðarnefnda. Jafnframt er talið að margar
kærur á hendur heilbrigðisstarfsmönnum byggist á misskilningi. Með þetta
að leiðarljósi var kannaður skilningur 1167 íslendinga á aldrinum 16-75 á
ellefu læknisfræðilegum orðum, svo sem langvinn lungnateppa, sykursýki,
sökk, ein tafla tvisvar á dag. Lýst er helstu niðurstöðum.
121 Vistunarmat aldraðra á árunum 1992-2001 - Tengsl
við lifun og vistun
Oddur Ingimarsson, Thor Aspelund, Pálmi V. Jónsson
Til er staðlað vistunarmat fyrir aldraða sem allir þeir sem vilja komast á
stofnun fyrir þann hóp hérlendis þurfa að undirgangast. í þessari rannsókn
voru skoðaðir þeir sem óskuðu eftir vistun á höfuðborgarsvæðinu og á
Akureyri á tíu ára tímabili, 1992-2001. Einnig voru skoðaðir sérstaklega
þeir þættir vistunarmatsins sem kynnu að hafa forspárgildi fyrir lifun.
131 Æðaæxli í sjónhimnu (Angiomatosis retinae)
Gunnar Már Zoéga, Einar Stefánsson
Æðaæxli í sjónhimnu (Von Hippel-Lindau sjúkdómur) felur í sér æðaæxli
af háræðagrunni í sjónhimnu eða sjóntaugarósi. Sjúkdómurinn er sjald-
gæfur. Æxlin eru lítil og oft eru mörg æxli í sama auga. Fyrsta einkenni
þeirra getur verið óskýr sjón eða skyndilega skert sjónsvið. Hægt er að
takmarka stærð og afleiðingar flestra æxla en einstaka augu verða blind
af þessum sökum.
133 Sjúkratilfelli: Ristilbólga af völdum bólgueyðandi lyfja
(Bjarnason’s disease)
Hjörtur Fr. Hjartar, Nick Cariglia, Jóhannes Björnsson
Fyrsta tilfelli af sárasjúkdómi í ristli með hringlaga þrengslum var lýst árið
1993. Flest tilfelli síðan þá hafa verið sjúklingar með gigt eða langvinna
stoðkerfisverki sem meðhöndlaðir hafa verið með bólgueyðandi lyfjum
um lengri eða skemmri tíma. Með aukinni notkun þessháttar lyfja sem ná
hámarksþéttni á löngum tíma eða frásogast neðar í meltingarvegi má búast
við fjölgun þessara sjúkdómsgreininga.
138 Nýr doktor - Fritz H. Berndsen
139 Nýjar starfsreglur Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins 2004
2. tbl. 90. árg. Febrúar 2004
Aðsetur
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogi
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Símar
Læknafélög: 564 4100
Læknablaðið: 564 4104
Bréfasími (fax): 564 4106
Læknablaðið á netinu
vvmv. laeknabladid. is
Ritstjórn
Emil L. Sigurðsson
Hannes Petersen
Jóhannes Björnsson
Karl Andersen
Ragnheiður Inga Bjarnadóttir
Vilhjálmur Rafnsson ábm.
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Brynja Bjarkadóttir
brynja@lis.is
Blaðamennska/umbrot
Þröstur Haraldsson
throstur@lis.is
Upplag
1.600
Áskrift
6.840,- m.vsk.
Lausasala
700,- m.vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Prentun og bókband
Prentsmiðjan Gutenberg hf.,
Síðumúla 16-18,
108 Reykjavík
Pökkun
Póstdreifing ehf.,
Dugguvogi 10,
104 Reykjavík
ISSN: 0023-7213
Við vinnslu janúarheftis Læknablaðsins urðu þau mistök að innihaldslýsingar greina skiluðu sér
ekki á réttan stað. Við birtum nú rétt efnisyfirlit janúarheftisins á bls. 194 í þessu tolublaði og
biðjumst velvirðingar.
Læknabladið 2004/90 99